Jæja góðir hálsar! Við erum að standa okkur í blogginu og höfum hugsað okkur að halda því áfram, svo lengi sem netið dettur ekki út. Síðustu dagar eru búnir að vera frekar íslenskir en veðrið er búið að vera rigning og ekkert svo hlýtt eins og Silla sagði hér í blogginu á undan.
Við erum farnar að þurfa að vakna kl 7 á morgnanna til þess að mæta í vinnuna á réttum tíma og það er ekkert það auðveldasta. En það er að takast!
Ég var að setja inn myndir frá fyrsta eða öðru kvöldinu okkar í Londonborg en þá kíktum við á pub með Sif og vinum hennar sem heita John, Jim, Guy og AL. Okkur fannst við vera komnar inn í ömurlega breska bíómynd á pub þar sem karlkynið var í meiralagi og bjórinn flæðandi um allt. Eftir að búið var að loka þar, fórum við líka á þennan klúbb/pub/bar, en þar var meirihlutinn litað fólk (ekki illa meint) en við ekki alveg að fýla stemninguna en gerðum bara gott úr þessu. Það var jú bar þarna.
Þetta kvöld endaði svo með svaka party-i heima Hjá Sif og Al þar sem sumir drápust, aðrir reyktu sígarettur og enn aðrir dönsuðu og svona sveigjanlega líka!

Kl. var nú að verða 5 að morgni til og við Silla ekki enn farnar heim! Það var sko þriðjudagur eða miðvikudagur.
Við fórum því að huga að heimferð, Sif smellti Svölu í pels og myndavélin var á lofti alla leiðina heim. Okkur fannst hálf skrítið að fara heim af djamminu í strætó. Samt mjög fínt því sif á heima svo nálægt okkur. Það sem var svo fyndið við þennan pels, var það að ég var í svona blettatígra sokkabuxum (rauðum takið eftir), í huge pels frá New York og með veski sem er úr kanínuskinni.
Við hefðum verið handteknar af PETA.... en komumst heim á leið.
Svo núna síðustu daga er maður búin að þurfa að vera í yfirhöfn (þurftum þess ekki fyrstu vikuna)

en veðurspáin segir að það eigi að fara að lagast á næstunni og þá kemur sól og hiti á ný.
Helgin verður mest róleg hugsa ég og ætlum við að taka lærdómshelgi plús að fara í Big Ben og fleiri byggingar sem við eigum eftir að sjá. British Museum bíður okkar líka. Gvuð við erum svo menningarlegar!! En það er must að sjá öll þessi söfn og byggingar. Við þurfum líka að koma aftur við í Buckingham Palace og taka myndir í staðin fyrir þær sem þurkuðust út.
Og eitt annað. Þar sem við erum svo miklar líkamsræktarmanneskjur þá leituðum við uppi næstu líkamsræktarstöð og fundum hana loksins. Kíktum inn og ætluðum að fá að vera með.
Okkur var rétt þessi bæklingur sem við þurftum að fylla út og með allskonar spurningum og mest megnis tilgangslausar. Allavegana, þá getum við EKKI fengið að fara í ræktina nema að vera "member" (Maður þarf að vera btw. í nokkrum membership-um hérna til að geta gert eitthvað), þú verður að vera komin með bankareikning hérna úti (og það er sko ekkert hlaupið að því neitt), þú þarft að vera með pott þéttar tekjur og oft á tíðum þarftu að hringja og panta tíma í ræktina!! HVAÐ er það!! Þú getur ekkert borgað þig 500 kall inn f. eitt skipti og hoppað aðeins. Rosalegt ferli sem maður gengur í gegnum. . . en maður þarf víst að venjast þessu og það er ALLT að fara að gerast hjá kjéllingunum!
En þið getið skoðað myndirnar og hlegið aðeins. . .
hafið það gott elskurnar!
Ykkar
Svala
Þetta er vinur minn sem hafði rosalegan áhuga á ljósmyndunum okkar. Meira krúttið.
Silla heima hjá Sif. Það var ÖFGA gaman!

Og svo outfit-ið sem Sif lét mig labba í heim. Rétt sluppum!