Good times

UK

Buckingham Palace, London eye, London bridge, Oxford street og við....

Góðan og blessaðan daginn og velkomin á nýja og fína bloggið okkar party
Við erum búnar að hafa meira en nóg að gera... t.d. labba.... og labba.... og labba! Sækja um vinnur og skoða okkur um, týnast nokkrum sinnum hér og þar en það er bara gott mál. Íbúðin er frekar lítil, en mjög fín og er víst MEGA fín á breskan mælikvarða. Góður staður sem við erum á, Highbury & Islington (eða í Arsenal hverfinu, föttuðum það um daginn;)) og Sif á heima bara RÉTT hjá okkur. Tökum busin í 5 mín og komnar til hennar. Hún bauð okkur í mat um daginn, enduðum á pubbanum að sjálfsögðu og erum búnar að halda upp á afmælið hennar Svölu líka síðustu helgi og ég veit ekki hvað og hvað! Héldum upp á það á laugardaginn svona með fólkinu, Sif, hildi, AL og svo auðvitað ég og silla. Fórum á Indverskan veitingastað sem var bara very nice, svo á klúbb í nágreninnu, Brick Lane hverfinu. Svaka stuð. Svala og Hildur stungu svo af í House tónlistina á Pacha og það var djammað laaangt fram unir morgun. Svo á þriðjudaginn var svo afmælisdagurinn hennar Svölu og við fórum auðvitað að gera eitthvað skemmtilegt í tilefni þess. Fórum í Buckingham palace, London eye, löbbuðum yfir brýr og byggingar og ekkert smá flott og fallegt og skemmtilegt að sjá þetta allt saman. smile Síðustu dagar hafa svo verið bara í rölt og göngur og það er alltaf gott veður hérna. Alltaf. Sól og 15-17 stiga hiti cool Sumarið er að koma hérna og grasið að grænka.sherlock
Fyrir utan hvað allt er búið að vera frábært hjá okkur þá er Hildur og Russel (vinir Svölu) að bjóða okkur á Chelsea fótboltaleik á morgun. party ...þeir taka víst á móti Tottenham að mér skilst og verður þetta fyrsti fótboltaleikurinn okkar... Án efa stemning... held að það sé hittingur kl 13:00 á morgun, Hildur og einhverjar stelpur sem búa hérna í London (íslenskar þar að segja) og við ætlum að hittast einhverstaðar og halda hópinn. drunk
Vinnumálin eru að komast á hreint og við erum í viðtölum hér og þar og svo er bara að velja. wink
Top Shop er búið að hafa samband við SveiL og boðin í viðtal á sunnudaginn hmmm (varð að monta mig)
whistle
En )/"%#$#&%$#&%$#/$&#/=$ Það eyddust allar myndirnar ÚT úr myndavélinni sem við tókum í Buckingham palace og London eye og það.... EKKI sátt... en ég meina... kíkjum bara aftur wink

En við verðum duglegar að blogga, fáum netið bráðum heim.

Heit sólarkveðja úr London

Sill & SveiL

Jose baby!

Comments

Unregistered user Saturday, March 17, 2007 3:02:30 PM

Heiddi writes: gaman!!! skemmtiði ykkur vel í lundúnum:) svo stefnum við á hópferð í lok júlí þegar Global Gathering er..... væri gaman að rekast á ykkur þar! :) hugsa að Hildur ætli líka

Unregistered user Sunday, March 18, 2007 4:38:25 PM

Hildur H writes: Hæhæ skvísur! Takk fyrir gærdaginn. Það var geggjað. Rosalega er þetta fín síða =) Verið duglegar að blogga sætu =) Nidda

Unregistered user Sunday, March 18, 2007 8:46:41 PM

Anní penní!! writes: Hæ helv. %$&%%$& ykkar!! Ég er náttúrulega BARA abbó!! EN vona að þið séuð að skemmta ykkur þarna í Lon og Don :o).. Kem ábyggilega í smá heimsókn í sumar og ÞÁ FYRST verður tekið á því!! ;o) Have-fun og Til lukku með viðtalið Svala!! :o)

Unregistered user Monday, March 19, 2007 11:02:54 AM

Svala writes: Takk elskurnar. Og Heiddi, ad sjalfsogdu sjaumst vid a Global. ;)

Unregistered user Sunday, March 25, 2007 6:15:27 PM

momy writes: Úff og ég ekki á svæðinu til að passa ykkur. Farið varlega elskurnar! Momy

Write a comment

New comments have been disabled for this post.