Blogg um ekki neitt...
Tuesday, March 20, 2007 9:10:42 PM
Ég vil nota tækifærið og þakka fyrir öll kommentin, núna skil ég afhverju allir bloggarar eru alltaf heimtandi komment, það er gaman að heyra frá ykkur truttunum. Keep up the good work.
Erum núna að byrja að kynnast fólki í gegnum vinnuna, fullt af skrítnu fólki sem að kemur inn á hverjum degi sem að gaman er að spjalla við, til dæmis kom einhver miðaldra svartur maður inn í gær og tók okkur á taugum, maðurinn spurði gríðarlega margra spurninga, spes að geta ekki svarað spurningum um sjálfan sig, held hann hafi verið eitthvað skrítin, en hann má samt eiga það að hann er algjör mannvitsbrekka, við ætlum að verða svona þegar við verðum stórar.
Svo erum við að vinna með ítala, hann heitir Nino, og hann býr til guðdómlegan mat! Sem er ekki alveg að gera sig þegar maður er stelpa í krónískri megrun. Maðurinn hefur unun af því að troða góðum mat ofan í litlar stelpur frá Íslandi.
Annars erum við að vinna fyrir tvo frakka sem að eru ALLTAF seinir, as in always ef að þið vitið hvað ég á við. Alveg hreint skelfilegt ástand. Samt voðalega vinalegir greyjin, þannig að maður lætur þetta yfir sig ganga.. i bili.
Næsta helgi er plönuð sem svona túristahelgi, ætlum að skella okkur á vaxmyndasafnið, svo á barinn, svo í svona sightseeing tour, af því að við erum litlu nær um hvernig þessi borg liggur og virkar, svo ætlum við á barinn, endum svo á því að kíkja smá á barinn. Við munum taka myndavélina með og skella inn nokkrum vel völdum til þess að deila með ykkur. Annars má fastlega búast við því að heimasíminn okkar fari að virka í lok þessarar viku og skypið líka, þannig að nú getum við farið að heyra í fólkinu heima.
En jæja, þetta er án efa ein sú tilgangslausasta bloggfærsla sem rituð hefur verið, þannig að það er spurning að fara að ljúka þessu. Ég vil ljúka þessu með því að senda baráttukveðjur til Kela míns, gríðarlega mikið að gera hjá kjéllingunni núna en ég veit að hún á efir að rúlla þessu upp með stæl. Þið hin fáið líka baráttukveðjur.
Bless í bili...
Silla.


Unregistered user # Tuesday, March 20, 2007 9:40:27 PM
Unregistered user # Monday, March 26, 2007 11:58:14 PM