Update
Friday, March 30, 2007 10:21:28 PM
Við erum búnar að vera nokkuð duglegar þessa vikuna, vinna, leita af vinnum, læra, halda extreme makeover kvöld og ég veit ekki hvað og hvað. Búnar að koma okkur saman við kennarana um hvar við eigum að taka prófin og allt saman! Geri tvær stúlkukindur betur! Ég byrjaði vikuna á því að mæta klukkutíma of seint í vinnuna, af því að það var verið að breyta tímanum hérna og enginn af ensku vinum okkar hafði fyrir því að segja okkur frá því, kudos fyrir þeim! En það var í góðu, þeir hlógu bara af litlu útlensku stelpunni sem að veit mest lítið í sinn haus.
Síðasta helgi var náttúrlega tekin með trompi eins og okkar er von og vísa, ætluðum að kíkja í einn öl bara í druslufötunum en enduðum á djamminu í dúnúlpunni, gríðarlega töff, erum á góðri leið með að verða helstu trendsetterar London, Kate Moss getur farið að vara sig, hún var víst að festa kaup á dúnúlpu. Kynntumst einhverjum ungum drengjum frá Nýja Sjálandi, þeir voru hressir.
Erum að fara út að borða á morgun með nokkrum íslendingum, þannig að við skvísurnar skelltum okkur niður á Oxford Street í dag að athuga hvort það væri ekki hægt að finna eitthvað klæðilegt, ég náttúrlega keypti mér kjól, átti það nú alveg skilið. En það var nú samt ekki hápunkturinn, heldur þegar við vorum að vippa okkur yfir eina götuna hérna og það kemur einhver gaur á hjóli, alveg út úr heiminum með ipodinn sinn, og hjólar á mig!!! Ég þarf varla að taka það fram að ég var ekkert voðalega sátt, þetta var ekkert voðalega töff atriði, og mér var illt í löppinni! Helv.. bretar með ipoda á hjólum! Ég og bresk umferð eigum ekki samleið.
Erum að fara að fá fyrstu heimsóknina okkar í næstu viku, Erla Malen ætlar að skella sér til okkar frá Danmörku og kíkja aðeins á Londonlífið. Það verður væntanlega eintóm gleði,enda góð stúlka þar á ferð.
En þá eru þau atriði upp talin sem við erum búnar að áorka í þessari viku, erum nú bara ekki meira spennandi en þetta, þannig að þið, og amma verðið bara að sætta ykkur við þetta í bili. Hendum inn góðri færslu eftir helgi, þangað til bið ég ykkur öll vel að lifa..
Silla.


Unregistered user # Friday, March 30, 2007 10:54:01 PM
Unregistered user # Saturday, March 31, 2007 5:47:24 PM
Unregistered user # Saturday, March 31, 2007 7:47:48 PM
Unregistered user # Monday, April 2, 2007 4:48:33 PM
Unregistered user # Tuesday, April 10, 2007 12:23:30 AM
Unregistered user # Wednesday, April 11, 2007 1:01:13 PM
Unregistered user # Friday, April 13, 2007 1:32:04 PM