Mars á enda
Monday, April 2, 2007 11:13:13 PM
Við erum enn að brasast í vinnumálum en samt eru þau mál orðin skýrari og skýrast með hverjum deginum. Sólin farin að láta sjá sig meira og meira og stelpurnar heldur betur að fýla það! Hlökkum ekkert smá til sumarsins og góða veðursins framundan og ég tala nú ekki um að vera komnar í góðar vinnur. Það er mjög stórt skref að hoppa yfir í annað land, bara með fötin sín og íbúð tilbúna.
Flugurnar eða fuglarnir eins og ég kýs að kalla það eru líka byrjaðar að fara á stjá og mín er sko ekkert voðaleg sátt með það. Silla mín verður kletturinn minn í þeim málum í sumar og ég kaupi flugnaspaða handa henni til að vera með á sér! kannski næ ég að venjast þeim, aldrei að vita.
Fórum á laugardaginn að hitta Íslendinga og ræða um vinnur og svona, enduðum á djamminu í fínu fötunum okkar, sem er aftur á móti ekkert nýtt! En á morgun á bara að fá sér kaffibolla og ræða þau mál. Við látum heyra í okkur þegar við fáum einhverjar fréttir. Ég er hálftóm alltaf þegar ég er byrjuð að skrifa línur hérna.
Setti inn eitthvað af myndum frá helginni, ég veit það er kannski ekkert voðalega spennandi að skoða þær því það eru alltaf alveg eins myndi. Ég og Silla með svona svip og svo ég og Silla með svona svip.

En þangað til næst hafið það gott og gleiðlega páska!
Svala
Mér finnst þessi rosa fyndin!


Unregistered user # Wednesday, April 11, 2007 12:04:44 AM
Unregistered user # Wednesday, April 11, 2007 10:00:37 AM