Kári Yngva

Það er aðeins til eitt eintak af mér svo þið verðið bara að deila því

Subscribe to RSS feed

Fótós mon

Jöbb, henti inn myndunum hans Gulla frá því við við vorum að djamma einhverntímann fyrir löngu
eða var þett ekki fyrir löngu? drunk tíh, reyndar ekkert alltof margar myndir..

Myndirnar

Þar sem Ari var e-ð ósattur með þetta blogg vil ég minn á aðdáendaklúbb Ara p

Long time no see

Já það er helvíti langt síðan maður hefur sett eitthvað hingað inn. Ég er bara búinn að vera svo upptekinn við annað p eins og að skemmta mér í páskafríinu(sem er nú reyndar löngu búið) og læra.
Já held að þetta sé það eina sem ég er búinn að vera að gera, páskafríið var þarna 7. til 17. fyrir mig, vinna og tveir skóladagar og svo árshátíð hjá ÍTR, ég bauð honum Ara(ath ari rokkar fanclub..coming soon).

Árshátíðin var haldin í gullhömrum sem er leeeengst í burtu samt fínasti salur svosem.
Það var mjög góður matur smile og kostaði ekki nema 1500kr(þriggja rétta máltíð) up
En skemmtiatriði og kynnar voru í lakari kanntinum down

Ég fékk mér nú nokkra bjóra á þessu laugardagskvöldi en var svosem ekkert fullur, reyndar bara blá edrú þegar við Ari ákvaðum að halda heim til hans.
Heima hjá Ara voru meðleigendur hans og ég einhverjar 1,2 manneskjur í viðbót, við sátum þar heillengi að sötra og syngja í singstar.
Svo var ákveðið að fara niðrí bæ...labbandi, ekki beint stutt en ekkert alltof langt.
Og eftir göngu var maður orðinn ennþá meira blá edrú heldur en þegar maður var hjá Ara angel

Við Ari, Sjonni, Sigurjón, Diddi, einhver gaur og tveir flottir bossar kíktum á Gaukinn, ágætis hópamyndun þar en ekkert alltof gaman, skelltum okkur á dansgólfið þar sem Jói frá þorlákshöfn var(Þið kannski munið eftir honum sem "gaurnum sem var að rífa kjaft við mig ásamt 1900 öðrum vestmanneygingum á fimmtudeginum fyrir þjóðarann í fyrra og var svo nefbrotinn")
Hann kannaðist ekkert við mig að ég held en fór samt að böggast í einum af okkur og stuttu seinna fór hann og vældi í dyravörðunum confused Veit ekki afhverju, hann græddi lítið á því..
Eftir að hafa verið þarna í smá tíma,(ekki lengur en eina klst.) þá ákvað ég bara að rölta heim.
var kominn heim um 4-5 og steinsofnaði smile

Jæja þá er það komið...
Síðustu daga er ég búinn að vera að læra eins og HESTUR!
Já, ég var einmitt með frjálsa mætingu í USF(upplýsinga og samskiptafræði).
En frjáls mæting þýðir ekki að þú eigir ekki að skila verkefnum nervous
Þessi verkefni er ég svo búinn að vera að vinna hérna á fullu, þau eru nú öll frekar einföld greyin en taka samt hvert fyrir sig tíma.
Svo er ég að vinna í öðru verkefni líka hjá sama kennara sem ég var með svona semi frjálsa mætinug, held ég hafi ekki mætt í fleiri en 10 tíma..ef svo marga.
Það er einmitt mun skemmtilegra en þessi usf verkefni en ég ætla ekki að vera algert nörd og fara að lýsa því fyrir ykkur.
Framundan er svo ennþá meiri lærdómur.. Ég er núna að byrja að læra fyrir stærðfræðiprófið sem er á þriðjudaginn 2. maí (stæ303) og já það verður late nights og early mornings coffee
Þar sem ég er ekki búinn að vera beint fyrirmyndar nemandinn í þessum áfanga, missti af 3 vikum úr skóla í heildina sad

Skelli svo einni mynd af mér hérna með wink

Rólegheit

Helgin var fín, var bara heima og horfði á spólu með Gulla wink

Eða nei, en planið var allavega einhvernveginn svona sko:whistle: en svo hringdi hann Gunnlaugur í mig á föstudaginn þegar ég er að labba út í bíl og segir "beer í kvöld?" hehehe
Eftir þetta kíktum við ásamt Atla(sem var nýlega kosinn formaður nemendafélagsins í FÁ), tilhamingju með það, kallinn með 48% atkvæði sherlock
Þegar við vorum búnir að splæsa í áfenig fyrir alltof mikinn pening þá fórum við og átum okkur troðna á trocadero(og ældum náttla eftir matinn, ekki vill maður verða feitur lol )

Núna er komið að því, fórum til Gullz og byrjuðum að drekka bjór og chilla bara við þrír, eftir smá tíma skelltum við okkur til Beggu skvísu sem býr bara í næstu blokk, Anna Margrét og Linda voru einmitt í heimsókn hjá henni, bara fullt af skvísum p

Anna var víst búin að þrífa alla íbúðina og taka smá workout líka..þvílíkur orkubolti, líka höruflottar myndir af henni í workoutinu bigsmile

Eftir smá glens og gaman þá var bara haldið niður í bæ, þar sem við fórum á Gaukinn og unnum stelpurnar í pool...það var víst e-ð veðmál í gangi með það, en þær stóðu ekki við sinn hluta whistle áætla að ég hafi verið kominn heim um 5 eða 6 man ekki alveg fínasta kvöld það smile

Oooog auðvitað var djammað á laugardaginn líka nervous
Já dagurinn byrjaði bara helvíti snemma var vaknaður og kominn frammúr held ég fyrir 2, sem er MJÖG ólíkt mér, drykkja eða engin drykkja kvöldið áður.
Kíkti til Gulla og við fórum að kaupa mér nýjan síma, ætlaði fyrst að kaupa razor, en hann var hvergi til þannig ég keypti mér Sony Ericsson J300i kostaði ekki nema 9000kr, sem ég er bara helvíti sáttur með og ennþá sáttiri svona eftir á að hafa ekki eytt 22.000 kr í síma happy

Jæja...ég sem hélt þetta yrði stutt blogg..Allavega ég var svo að eitthvað skutlast og svona svo stungu stelpurnar upp á að við myndum öll borða saman(s.s. ég, linda, begga, anna og gulli)
Jújú fórum út í búð og keyptum kjúlla og tikkamasalasósu(held ég að það heiti) og viðeigandi meðlæti svo fór ég heim og hlóð símann minn bigsmile og kíkti svo á skvísurnar um ööö átt held ég og þá var Anna búnað elda dilisjús kjúlla. Með kjúllanum var grjónagrautur og linar franskar hehehe(þetta var mjög gott Anna mín) p

Eftir helvíti fínt start á kvöldinu þá byrjaði maður að drekka bjór, sátum heima hjá henni Berglindi, hún náttla, Anna, Linda, Biggi og GísliGB voða rólegt og fínt smile Gulli kom held ég eitthvað uppúr 9, kallinn var bara sofandi hehe p
Enívei til að einhver nenni að lesa þetta þá ætla ég að reyna að fara klára þetta í næstu línum..Við kíktum svo til hans Ara(sem er einnig kallaður offAri)en þar var smá partey, eftir smá spjall og svona svo héldu allir í bæinn nema offARI, stoppuðum reyndar aðeins heima hjá mér og löbbuðum þaðan sem ég verð að segja að hafi verið mistök, því það var svo ógeðslega fríggin kalt :domo:

Svooo þegar við komum dántáwn þá eru raðir allstaðar byrjum á staðnum sem er næst(glaumbar), biðum þar þangað til nokkrir útlimir frusu nervous Svo var alveg stappað inná staðnum þannig eftir smástund fórum við út og yfir á Gaukinn, og þegar við erum aaalveg að verða komin inn koma Ólöf og Thelma Ýr út og draga okkur yfir á pravda eða mig og GíslaGB, sat þar aðeins að spjalla, svosem fínt fór svo yfir á gaukinn og var þar sem eftir var af nóttinni, þar var bara e-ð spjall dansaði frekar lítið, ekkert miðað við kvöldið áður HEH(var rifinn úr skyrtunni á dansgólfinu, reyndar af GAUR drunk )Tók heldur ekkert pool, hefði verið alveg djöfulli til í það, en svo var haldið heim á svipuðum tíma og nóttina áður eftir fínt kvöld bara.

Gulli tók nokkrar myndir á föstudeginu, hann setur þær held ég á sína síðu bráðlega..
Takk fyrir góða helgi fólk up

Ég er gerður úr stáli

Um helgina tókst mér að klemma höndina á mér helvíti illa var alveg stokkbólginn svona frá öðrum liðamótum puttanna fram á handabak. Systir mín og fleiri héldu því fram að ég væri brotinn, "pottþétt brotinn", "örugglega brákaður" right

Eftir þetta fór mér ekkert að lítast á þetta þannig ég ákvað að skella mér á læknavaktina(sem er í kópavogi). Jæja þegar ég kem þangað er ég látinn borga 1750kr í komugjald, bíð í alveg 30-40 mínútur svo kallar læknirinn á mig og spyr mig hvað sé að og eftir að hafa meitt mig aðeins í höndinni endar hann svo á að segja mér að allt bendi til þess að þetta sé brotið nervous

Ekki nóg með það þá segir hann að ég þurfi að fara niður í fossvog í myndatöku þar! irked
URR, tilhvers í andskotanum var ég að fara þangað? Borgaði 1750kr og talaði við lækni í 2min.
Okey okey, fyrst að læknirinn sagði að þetta væri með öllum líkindum brotið þá fór ég á pizza king og fékk mér djúsi slæsu(þar sem ég er frekar blankur núna þá ákvað ég að fá mér að borða þar sem það gæti verið að það væri í síðasta skiptið í mánuðinum).

Svo fer ég uppá slysó, fékk hýrt bros frá afgreiðslukonunni sem flissaði að brandarnum mínum yes Og þá byrjar biðin! Ég var mættur þangað uppeftir e-ð um sjö og um níu er mér loksins hleypt úr biðstofunni inn á eitthvað herbergi og jú þar er ég látinn bíða í 20min þangað til það kemur læknir að tala við mig, hann meiddi mig ekkert happy en sendi mig á biðstofu nr. 3 þar sem ég beið nú samt ekki nema í svona 10 min, þá loksins fer ég í myndatöku, svo þarf ég náttúrulega að bíða eftir að það sé skoðað myndirnar tók svosem stuttan tíma miðað við heildina.
Loksins kemur læknirinn á biðstofu(nr. 4 takk fyrir)og segir "Ekki brotinn, teygjubindi" og labbar í burtu og ég fæ teygjubindi left og borga fyrir þetta 5472kr, s.s. fyrir þennan daginn borgaði ég 7222kr í lækniskostnað. Og það eina sem ég fékk var teygjubindi.
Verð að viðurkenna að eftir alla þessa bið og peninga þá var maður farinn að vonast til að vera brotinn svo maður hefði nú ekki bara verið þarna til einskis knockout

Ekki hjálpar að þegar þessi dagur byrjaði var aleigan mín tæpar 8000kr og núna á ég 1200kr á kortinu mínu, skulda systir minni 2000kr og Ara 2700kr :clown:

Þeir sem hafa áhuga á að hjálpa (fallegum)fátækum námsmanni hafið samband á msn kari_yngva[at]hotmai.com p

Jæja eftir að hafa hangið á slysó frá 19:00 til 22:30 þá ætla ég að bara að fara að glápa á eitthvað sniðugt smile

Eyjar, Bryan og stuð

Það var skellt sér til Heimaeynnar um helgina, við Gulli, Ari og Hafdís fórum með seinni ferð á föstudaginn, maður kíkti náttla aðeins heim og á hann Viktor kallinn áður en haldið var út á lífið, Viktor var bara rólegur þar sem hann var að fara í vinnu kl. 7 um morguninn eftir.
Ég Gulli og Ari fórum svo í partý hjá Sigga Einis, drulluflott íbúð/hús tilhamingju með það wink
Nokkuð magnað party Scooter sjálfur mætti bara og litlu munaði að eitthvað lið úr Mosó kæmi líka rolleyes Svo var náttla drífandi og lundinn..að mig minnir allavega confused

Á laugardaginn kom hann Geiri(bryan) ny orðinn 22 tilhamingju wink Það var aftur byrjað hja Gulla vorum nokkur þar. Ekkert nema ógeðslega fallegt fólk sko. Svo bara sama saga og kvöldið áður, drífandi og pottþétt ludinn happy nema við lugum að öllum að Geiri héti Bryan og væri ameríkani frá Massachusetts, heeel góður í íslenskum blótyrðum og spænsku ekki furða enda Massachusetts rett hjá mexico wink hahaha
Þetta djók gekk alveg þangað til við fórum aftur til Gulla kappa sem eg held að ég hafi ekki farið frá fyrr en kl 9 um morguninn.

Hörkugóð eyjaferð sem við verðum að endurtaka einhverntimann, takk fyrir helgina fólk wink