Sængin mín er dáin
Sunday, October 22, 2006 10:30:20 PM
Síðan þegar að það kom tími að fara í rúmið ákvað ég að skifta á því, fyrst við værum búin að finna restina af sængurfötunum. Það var þá að ég tók eftir því að sængin er dáin. Það er ekki nóg með það að hún er farin að gefa sig meðfram öllum saumum helfur er efnið sjálft farið að rifna í sundur, með tilheyrandi dúndreifingu. Ákvað ég því að þrjóskast við og tróð sænginni inni hreint sængurver og svo virðist að sú hliðin sem er ver farin er mín megin í rúminu því að það tók um mínútu að "sópa" öllum dúninum í einn bing. Hef reyndar ekki enn ákveðið hvort ég hendi honum eða treð honum aftur í sængina. Ekki er hægt að fara með sængurgarminn eitthvert í þessari borg og láta gera við hana, þannig að það er ekki spurning um hvort heldur hvenær í vetur við þurfum að láta hana af hendi.
Og fyrir þá sem eru haldnir Google Earth fíkn þá skal slá inn eftirfarandi hnit í leitargluggann: 37°59'28.96" N 84°27'36.67" W . þarf eflaust að súma nokkuð inn, en ef þetta er gert rétt þá er myndavélinn beint fyrir ofan þakið á íbúðinni.
Og um daginn fékk ég emil frá einum vinnu mínum þar sem hann minnti mig á bloggið sitt. Mér fannst þetta nokkuð merkilegt vegna þess að ég les hans blogg þá sjaldan sem hann bloggar. Fór ég þá að velta því fyrir mér hvernig hann vissi hvort ég læsi hans blogg eða ekki. Þaðan lá braut hugsananna um vangaveltur um hvort hann hafði hugsað sér að ég skrifaði í athugasemdakerfið við hverja færslu. Stuttu seinna hnötraði ég um þá staðreynd að ég hafði ekki sett inn link á bloggið hans. Þá rann upp það ljós fyrir mér að hann var í raun ekki að minni mig á bloggið svo að ég læsi það oftar, heldur var han leint og óljóst að biðja mig um að "linka" á sig í von um fleiri lesendur. Jæja Unnar minn, ég hef loksins bætt þér á listan yfir aðra bloggara. Farðu nú og bættu einhverju inn, Robba Mass færslan er orðin nokk gömul



Unregistered user # Tuesday, October 24, 2006 10:42:26 PM
Unregistered user # Tuesday, October 24, 2006 11:13:42 PM