jólakort og gjafir
Sunday, 19. November 2006, 16:03:03
Mörgum þætti það merkilegt að heyra að maður er búin að kaupa flestar jólagjafirnar fyrir aðventu, en svoleiðis verður maður að hafa það ef maður ætlar að koma þeim á réttum tíma til skila. Við höfum að vísu ekki ákveðið hvort að við sendum út einn eða tvo kassa þar sem við erum að meta kosti og galla þess að senda allt heila klabbið til mömmu og láta hana um að senda pakkana austur og dreifa öllum jólakortunum á Íslandi fyrir okkur
Meiga mamma og austfirðingarnir auðvitað koma sínum skoðunum á framfæri. Annars var ég að komast að því að ég er búin að týna littlu bókinni með öllum heimilsföngum ættingja og vina minna. Þannig að nú veit ég bara heimilsfangið hennar mömmu, reyndar má bæta inn öllum sveitabæunum á þann lista en í þeirra tilvikum veit ég ekki póstnúmerið. Í dag er svo meiningin að finna gjafir handa pabba og Salla og pakka öllum gjöfunum, skrifa kortin og loka þeim svo inn í skáp svo að kettirnir láti þá í friði. Við munum senda þau út í vikunnu, ekki seinna en á miðvikudag og vonandi kemst allt þetta til skil fyrir jól þetta árið



How to use Quote function: