Kannski full seint, en...
Thursday, 23. November 2006, 23:03:04
Mér datt nú að setja inn eina eða tvær hugmyndir af jólagjöfum. Reyndar datt mér þetta í hug í október en gleymdi alltaf að setja þær inn. Til að mynda langar mig í stuttermabol sem á stendur "I'm Icelandic, what's your excuse?" Helst þá í dökkum litum. Síðan eru nokkrir aðrir séríslenskir bolir þarna á markaðnum sem ég gæti vel hugsað mér að klæðst í í vinnuna. Jessicu langar í óléttuföt þessi jólin. Upphaflega buxnastærðin hennar var 14 (eftir ammríska kerfinu). Okkur langar líka í dúnsæng í stærðinni 200x220 cm, verst að við eigum enga ríka ættingja
, og sængurverasett til að hylja hana (ég á tvö sængurver). Síðan vantar okkur lök á drottningarstærðar dýnu, jersey lök væru vel þegin... annars dettur mér ekkert annað í hug í bili... kannski seinna í kvöld eða á morgun



How to use Quote function: