Kristianus Journalus

ferleg mistök

Ég fór á pósthúsið í dag til að senda pakkana og kortin. Voru flest kortin reyndar í kassanum, en þannig svo um búið að ég gæti auðveldlega tekið þau úr kassanum og sett þau í venjulegan póst. Svo var ég spurður hvort ég vildi borga 4500 kr (2-3 vikur) eða 2500 kr (4-5 vikur) og að einhverjum ástæðum þá hugsaði ég með mér "Vá, sem betur fer eru 5 vikur til jóla. Þannig að nú er gott að spara smá pening." Síðan borgaði ég og labbaði út í bíl. Þegar ég var að starta bílnum þá skaust eftir tvær hugsanir upp í kollinum á mér: "Nei bíddu... það eru fjórar vikur til jóla... Hérna, eru ekki öll ættingjakortin ennþá í kassanum?" Blótandi setti ég bílinn í gír og keyrði heim. Þegar ég sagði J frá þá leit hún á mig og spurði mig hvort að hún hafi ekki varað mig við því að fara á pósthúsið eldsnemma að morgni þegar ég væri nývaknaður, þannig að ég ullaði bara á hana og tók Rorý með mér í göngutúr

Kannski full seint, en...urrrr

Comments

Unregistered user Sunday, November 26, 2006 2:34:41 PM

mamma writes: Sem sagt mamma þín í jólasveinahlutverk fyrir þig "eftir jól"!:D

Unregistered user Monday, November 27, 2006 6:08:38 PM

Unnar writes: Þú gætir grísað á það að pakkinn sendi frá sér komutilkynninguna á Þorláksmessu og kætt hana mömmu þína enn frekar í jólaösinni þann daginn. Sent hana þannig á útopnu um allan bæ eldsnemma á aðfangadagsmorgun við að bera út jólakortin. :p

Write a comment

New comments have been disabled for this post.

June 2012
S M T W T F S
May 2012July 2012
1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30