Kristianus Journalus

Verð að muna að velja "vista texta"

Ég tók eftir því þegar ég kom á síðuna í dag að ég hafði gleymt að vista seinustu innfærsluna mína. Hún var einmitt um það hversu hversu bagalegt það hafi verið að hafa gleymt að vista innfærsluna á undan sem hafði innihaldið nokkra góðar sögur um gæludýrin mín.

Annars hef ég ekkert það mikið að segja. Nema hvað að ég fékk þokkalega upphæð frá skattinum. Ég ákvað síðan að taka peninginn út í næsta banka. Sá banki var ekki með kortalesara! En það er víst enn mjög algengt að strauja kreditkortin, og reyndar debitkortin líka þar sem að þau hafa númerið að fullu á framhliðinni hér, á gamla mátan. Þannig að ég fór þá í hraðbankan, sem tekur ekki við kortum frá bönkum utan Kentucky! irked Hafiði heyrt annað eins? Fór því næst á pósthúsið, sá var bilaður. Og svona gekk það koll af kolli þar til að klukkutíma seinna var ég kominn í Tates Creek Center, sem er samskonar og Spöngin nema stærri. Þar eru þrír bankar og það var þar sem mér loks tókst að taka peninginn út. Á leiðinni heim var ég virkilega farinn að verða var við að það var rúm 35°C hiti og mjög rakt. Þannig að ég stoppaði í ísbúðinni á horninu og keypti stóran "bragðaref"... allavega er "bragðarefurinn" það sem kemst næst því að vera DQ Blizzard

Nýr gluggiAf hundi og köttum... önnur tilraun

Comments

Anonymous Sunday, August 6, 2006 11:40:54 PM

Hulda mágkona... writes: Má þá ekki bjóða þér að borga álagninguna sem við fengum?

How to use Quote function:

  1. Select some text
  2. Click on the Quote link

Write a comment

Comment
(BBcode and HTML is turned off for anonymous user comments.)

If you can't read the words, press the small reload icon.


Smilies

February 2012
S M T W T F S
January 2012March 2012
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29