Skip navigation.

Kristianus Journalus

Af hundi og köttum... önnur tilraun

Ég ætla að byrja á því að gleðja mömmu mína með því að upplýsa ykkur um, að það eru komnar myndir af mér og Jessicu í myndaalbúmið. En vert er að taka það fram að hvorugt okkar var ánægt með myndirnar. Við hreinlega gáfumst upp eftir 3 tilraunir.

Eitthvað er minnið að stríða mér vegna þess að ég man ekki allar góðu sögurnar af því sem gæludýrin af tekið uppá, en samt sem áður ætla ég að reyna.

Stuttu eftir að við fengum kettlingana keyptum við klórustöng og feldklóru á klóruspjaldi. Það tók ekki langan tíma þar til þeir lærðu að nota klórustöngina rétt, en feldklóruna? Það fyrsta sem þeim datt í hug að gera var að fara í leikinn "kóngurinn á hæðinni". Einn stóð í miðjunni á meðan hinn læddistí kringum og reyndi að stökkva á "kónginn", síðan var slegist smá og þeir skiptu um hlutverk. Svoleiðis gekk það langt frameftir deginum.
En þetta er ekki eini staðurinn þar sem þetta er gert. Bókaskápurinn okkar er notaður í samskonar leik. Reyndar er málið þar um að hvort þeirra fær að leggja sig þar.

Rory tók kettlingana svo til fljótlega í sátt. Það leið ekki á löngu þar til að hún var byrjuð að leika sér við Bandit. Hún reyndi svo sem að leika sér við Ósk líka, en hún var ekkert á því í fyrstu að láta hund koma nálægt sér. En það er allt orðið betra núna og á Ósk stundum frumkvæðið að leikjum.
Móðurhlið hennar Roryar hefur líka komið upp. Eitt kvöld fylltum við á matardallinn hennar og eins og kölluð þá kom hún til að gæða sér á, en einnig Bandit. Í fyrstu þá var sem að kærði sig kollótta um það. Svo byrjaði hún að taka nokkra matarbita, það skal tekið fram að hér er um þurrmat að ræða, og færa sig frá dallinum svo hún gæti étið í friði og bandit fengið betri aðgang að dallinum hennar. Það gekk hreinlega ekki upp svo að Jessica byrjaði að reyna færa Bandit í burtu. Hann nánast hljóp til baka. Þegar Hún færði köttinn í þriðja sinn þá tók Rory sig til og tók væna munnfylli og labbaði til Bandits og sleppti matnum fyrir framan hann.
En það er ekki þar með sagt að Rory gefur alltaf með sér. Stuttu eftir fyrrnefndan atburð þá höfðum við steik í matinn. Og eins og vaninn er þá fékk Rory alla seigu bitana. Hún kom og greip einn bitann og fór undir borðið. Stuttu seinna heyrðum við hana urra allhressilega. Þegar við gáðum undir borðið þá voru kettirnir, og þá aðalega Bandit, að reyna að stela frá Rory. Við brugðum þá á það ráð að gefa þeim nokkra littla bita svo að hún gæti nú gætt sér á bitanum sjálf.

Reyndar er Bandit mjög slæmur að þessu leiti. Hann reynir allt sem hann getur til þess að stela frá okkur hinum.
  • Við höfum þann vana á að gefa Rory hundanammi eftir að hún hefur farið út í göngutúr, sérstaklega ef hún fór á klóið. Rory hafði þann vana á að éta nammið á staðnum. En einn daginn á meðan hún átt kexkökuna þá kom Bandit aðvífandi og stal nokkrum bitum. Næst þá fór nokkuð í burtu þegar hún sá Bandit. Og við reyndum að halda aftur af honum. Nú er svo komið að hún grípur nammið og hleypur í felur og kemur svo til baka þegar hún er búin að gæða sér á.

  • Þetta varð til þess að við keyptum kattanammi. Og ég get svo svarið það, hann gleypir það svo hratt að ég efast um að hjarta hans ná einu slagi. Þetta hefur líka orðið til þess að hann reynir að stela frá Ósk um leið og hann er búinn að anda að sér sínum bita.

  • Hann hefur reynt að stela frá okkur þegar við erum að borða. Yfirleitt þá sitjum við í sófanum og horfum á sjónvarpið þegar við borðum. DAg einn þá labbaði hann upp að sófanum, reisti sig á afturlappirnar og teygði framloppurnar í diskinn hennar Jessicu. Ef ég hefði ekki verið á leið í sófan með minn disk þá hefði hann náð að hvolfa disknum yfir sig.

  • Þau bæði hafa stokkið uppá sófan og labbað að disknum og reynt að grípa matarbita

  • Þau öll hafa reynt að stela sopa úr drykkjarglösum okkar. Rory og Ósk hefur tekist að fá sér gos, vatn og mjólk... Bandit náði að velta mjólkurglassinu.

Um daginn höfðum við boðið vinum til okkar í mat. Af ýmsum ástæðum þá gafst ekki tími til að brjóta saman þvottin [og ganga frá balanum. Svo að balinn fékk að sitja í skjaldbökustólnum. Í miðjum matnum heyrðum við þessi svakalegu læti koma úr balanum. Þegar við gáðum þá var Bandit kominn í hann og var að reyna að veiða skottið sitt. Lætin urðu sem sagt þegar kisi hlóp í hringi og veltist um.

Rory hefur vanalega látið mig vita ef einhver bankar á dyrnar. Yfirleitt heyrist það afar illa inn í herbergi, sérstaklega í tölvukrókinn. Um daginn þá byrjaði Rory að gelta og kom til mín eins og aðð hún væri að fá mig tila ð elta sig. Ég fór fram og og gáði. Enginn þar. Eftir stóð Rory vaggandi skottinu sínu og beið eftir hnakkaklórinu sem hún fær alltaf þegar hún lætur okkur vita ef einhver bankar. Hún fékk það í þetta skipti. Stuttu eftir að ég settist niður þá byrjaði hún aftur að gelta og kom og "sótti" mig. Enginn Þar og ekkert klór. Svo þegar hún gerði þetta í þriðja skiptið þá fékk ég nóg og sendi hana í rúmið(/skammarkrókinn)

Frá upphafi leyfðum við köttunum að sofa í herberginu. Til að byrja meðvar allt í lagi með það og engin vandkvæði. Síðan byrjaði Bandit á því að vekja mig um 5-6 á morgnanna. Mjálmandi, malandi, nuddandi höfði sínu við hökuna mína og sleikja á mér andlitið. Yfirleitt endaði það með því að ég stjakaði honum úr rúminu eða bara frá mér. Það tók okkur nokkra daga þar til við áttuðum okkur á því að helsta ásæða þess að þeir létu svona var til þess að við færum á fætur og hleyptum þeim úr herberginu svo að þeir gætu fengið sér morgunmat. Þannig að nú sofum við með svolitla rifu á herbergishurðinni. Frá þeim degi fáum við mest megnis að sofa út. En í gær þá ákváðum við að kaupa auka leikól handa köttunum. Aðalega vegna þess að kettirnir slógust um hvort þeirra fengi að leika sér að þeirri eldri. Nýja leikólin var sett á herbergishurðarhúninn. Svo þegar ég var við það að sofna og Jessica nýsofnuð heyrðum við þetta líka angurværa mjálm. Það tók mig svo litla stund að átta mig á því að hurðin væri lokuð og að það vantaði einn kött í herbergið. Bandit hafði sem sagt verið að leika sér að nýju ólinni og togað í hana með þeim afleiðingum að hurðin lokaðist. Þannig að ég opnaði hurðina aftur og tók leikólina af hurðinni og fór aftur að sofa. ÞEgar ég var við það að sofna heyrði ég aftur þetta angurværa mjálm. Bandit hafði sem sagt tekið ólina og verið að leika sér með hana. ólin hafði dregist hálf undir hurðina og þegar hann fór fram á gang lokaðist hurðin. Í þetta skipti tók ég mig til og setti klórustöngina þannig að hurðin gæti ekki lokast. Eftir það fengum við að sofa út.

Verð að muna að velja "vista texta"Halló þið

How to use Quote function:

  1. Select some text
  2. Click on the Quote link

Write a comment

Comment
(BBcode and HTML is turned off for anonymous user comments.)

If you can't read the words, press the small reload icon.


Smilies

January 2010
S M T W T F S
December 2009February 2010
1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30