Kristianus Journalus

framhald

Ég missti reyndar af farinu í vinnuna í dag. Það tók mig um 15 mínútur að finna einhvern til að keyra mig í vinnuna. Þökk sé glæfraakstri hennar Brynn, systur Jessicu, þá var ég mættur á undan nágrana mínum.

En allavegana, þá fórum við í brúðkap á sunnudag. Fyrr um daginn hringdu þau í okkur og létu okkur vita að ég ætti að vera svaramaðurinn. Ég þakkaði fyrirvaran, lagði á og sneri mér aftur að eldamenskunni. Jessica hafði lofað að koma með einn af hennar sérréttum og hún þurfti víst einhverja hjálp svo við gætum klárað að elda, farið í sturtu og strílað okkur up án þess að vera sein. Við sváfum helst til mikið þann morguninn. En við mættum með tvö föt af pottrétti á réttum tíma, eitthvað sem hvorki verður sagt um prestinn eða brúðarhjónin. Þegar þau öll mættu varð að klára að skreyta kapelluna, koma kjólnum á brúðina og passa að börnin væru ekki að taka sparifötin af sér. Giftingin sjálf gekk hnökralaust fyrir sig, fyrir utan það að einungis 15 af þeim 60 sem sögðust ætla mæta fundu kirkjuna. Þeim til varnar er kirkjan afskaplega afskekkt og ber lítið fyrir sér. Síðan var farið inn í safnaðarheimilið og etið þar til að buxurnar mínar voru við það að passa á mig.

Þeir sem yngri eru, lesist flestir fyrir utan mömmu p whistle , muna að í seinast pósti ýjaði ég að því að við værum við það að flytja. Við höfðum sett okkur á lista hjá einum leigusala sem er mjög vinsæll. Er það helst vegna þess að allar íbúðirnar eru í mjög góðum hverfum, það er auðvelt að skipta yfir í stærri íbúð ef að losnar, svo eiga sömu aðilar fullt af einbýlum og tvíbýlum sem maður getur, seinna meir, leigt eða keypt. En sem sagt, við fengum símtal frá þeim og okkur sagt að það hafði losnað hjá þeim 3. herbergja íbúð á tveimur hæðum. Efri hæðin er með baðherbergi, og svefnherbergin (svalir og skápar sem hægt er að ganga inn í út frá báðum). Á neðri hæðinni er salerni, arinn, stór stofa, borðstofa, búr, Eldhús á stærð við það sem var í Fannafoldinni og inn af því þvottahús. Það fylgir víst þvottavél og þurkari með íbúðinni. Við höfum síðan verönd út af stofunni svo og borðstofunni. Næg bílastæði og 25 metra sundlaug fyrir alla íbúa. Við förum og skrifum undir á fimmtudag og ætlum að klára flutninginn um helgina. Þeir sem vilja fá nýtt póstfang hjá mér get sent mér fyrispurn í emeili eða með því að tala við mömmu eftir ca 2 daga (get ekki ímyndað mér að hún bíði mikið lengur með að senda emeilið)

Tvö brúðkaup og flutningurSængin mín er dáin

Comments

Anonymous Wednesday, October 4, 2006 7:16:08 PM

Anonymous writes: YNGRI HVAÐ!!! :furious: Ef þú vilt fá jólapakka þá .......

Anonymous Friday, October 6, 2006 4:08:01 PM

Raggi writes: Til hamingju með nýju íbúðina :)

Anonymous Monday, October 16, 2006 5:34:08 PM

Unnar writes: Getur verið að þetta sé rétti staðurinn? google earth hnit: lat=37.9908553357, lon=-84.4600666909 (einn sem hafði ekkert að gera í vinnunni í dag)

How to use Quote function:

  1. Select some text
  2. Click on the Quote link

Write a comment

Comment
(BBcode and HTML is turned off for anonymous user comments.)

If you can't read the words, press the small reload icon.


Smilies

February 2012
S M T W T F S
January 2012March 2012
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29