Friday, 20. November 2009, 20:42:39
Dagur íslenskrar tungu var á mánudegi í þessari viku og á föstudegi í sömu viku láta stjórnendur Ríkisbankans Kaupþings líkt og þeir viti ekki af því að í landinu er töluð og skrifuð íslenska fyrir íslenskt fólk er ber íslensk nöfn. Og hefur maður endanlega misst allt það litla álit er maður hafði á bankastjóra og stjórn þessa ríkisbanka.
Að efna til samkepni um nýtt nafn á banka einungis meðal starfsmanna lýsir svo mikili foráttu heimsku að engu lagi er líkt. Afhverju var ekki óskað eftir tillögum frá tugþúsunda viðskipta bankans ? því þeir sem hluti af þjóðinni eiga jú bankann , og hafa hingað til ekki verið spurðir um eitt né neitt.
Og nafna skrípið er valið var á bankann er ,, Arion Banki,, er alveg út í hött og ekki á íslensku og óþjált og segir viðskiptavinum ekki neitt .. því þetta er grískt nafn sem á ekkert erindi sem nafn á íslenskan banka. Eða líkt og segir í tilkynningu frá bankanum að þá er nafnið Arion sótt í grískar fornsögur og er merkings þess : þrautsegja , samvinna og endurkoma.
Enn það vill gleymast að við eigum ríkulegan fjásjóð sem eru íslenskar fornsögur þar sem gnægð er til af nöfnum er við skiljum og sem við vitum strax hvað þýða .. og hefði verið auðvelt að ganga í þann íslenska fjársjóð og finna þar nafn á bankann .. líkt og ef bankinn hefði fengið nafnið Grettir Banki .. og merking orðsins Grettir þýðir þá : þrautsegja , styrkur og heiðarleiki.
Já það þarf ekki að sækja vatnið yfir lækinn til að ná í eitthvað skrípa nafn sem ekkert erindi á við viðskiptavini uppi á íslandi .. auk þess munu erlend viðskipti hins nýja banka verða mjög takmörkuð. Og þeimur meiri ástæða fyrir að bankinn heiti góðu og gildu íslensku nafni er við þekkjum og skiljum.
Og nú á eftir að skipta um nafn á öðrum ríkisbanka er heitir í dag Landsbankinn .. og mætti í stíl við nafngjöf Kaupþings ímynda sér að hann fengi nafnið ,,David Bank,, og yrði þá gefin sú skýring á nafni að það væri sótt í Biblíusögur þar sem hinn lávaxni ungi drengur Davið sigraði hinn stóra grimma risa Golíat .. og útleggst nafnið David þar svo : þrautsegja , drenglyndi og hetjulund.
Það yrði bankanum til sóma ef hætt yrði við að nefna bankann þessu orðskrípi sem Arion er.
Valur
Týnd.
Heilbrigð skynsemi hefur
fundist á vergangi lífsins
íklædd engu nema tötrum
góðvildar og gleði er af ást hlýst.
Það voru teyming heimsku
og hugsunarleysi almennt
er hana fundu ... rétt
hjá völundarhúsi gleymsku.
Getur maður saknað upphátt
hugsunar er aldrei hefur átt ?
Valur Geislaskáld.
Úr ljóðabókinni.
Ár hinnar kyrru sólar. 2008
Monday, 16. November 2009, 13:59:23
Er nýr dagur reis í morgun og kom gangandi í hægðum sínum úr austri yfir Reynisvatnsheiði alla leið að vatninu góða sem er frosið nú fyrsta sinn í vetur .. já það andaði köldu af þessum nýja degi sem samt er svo góður og merkilegur fyrir litla þjóð. Þessi dagur er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og er nú í 14 sinn haldinn sem Dagur Íslenskrar tungu og ýmislegt gert í tilefni dagsins og málinu okkar gert hátt undir höfði í dag.
Renndi því yfir þó nokkuð mörg ný blogg í morgunsárið til að vita hvað þar væri skrifað um þennan merka dag .. enn því miður fann ég ekki einn pistill er fjallaði um málið okkar góða á þessum degi. Og virðist vera orðið þar erfitt að fjalla um nokkuð annað en hrunastjórnmál. Þannig að ég rýf hér með mína sjálfskipuðu 10 mánaða þögn í pistlaskrifum á netinu og bið ykkur lesendur að staldra örlítið við og gefa gaum að því á hvaða leið okkar mál sé.
Fyrir nokkrum árum kom út mikil og stór íslensk orðabók og mátti finna þar ýmsa gersemi málsins, samt var þar bryddað uppá þeirri nýung að leyfa enska orðinu ,,shit,, að teljast íslenskt vegna þess að það var stafsett upp á íslensku. Auðvitað var þetta miður og er þetta orðið ein aðalhættan er steðjar að okkar gamla fagra máli að geta sagt ,, sorrí æ vos leit onn áur deit mæ lof, æ var lúking for té ræt átfitt tú ver,, og að þetta getið verið góð og gjaldgeng íslenska (í framtíð ?) eingöngu vegna þess að þessi orð er stafsett á íslensku. Skrítið ekki satt?
Ef svo er..er þetta þá ekki bara vonlaust mál? og málið bara dautt?
Sjálfur þáði ég gott boð um að koma og lesa ljóð úr mínum þrem ljóðabókum í svokölluðu maraþonlestri sem er i allan dag í Borgarbókasafninu í Árbæ .. Ársafni , og mun ég lesa þar í 30 mínútur frá kl 16:00.
Hér að neðan er eitt af mínum ljóðum birt í tilefni dagsinns.
Valur
Allt
Skelfilegur hvítur sannleikur
í djúpum skógi sér.
Jörð himinn stjörnur
allt á hvolfi er.
Angist mín svo mikil
að það er nóvember
Flaksandi ljóst hár stúlku
á stígnum er.
Gleði björg og hlátur
við vatnið finnast ber.
Háska logi kaldur hleypur
kemur og fer.
Líf gleði samviska dauði
bíða eftir mér.
Valur Geislaskáld.
Úr bókinni. Þegar ég vakna. 2007
Thursday, 13. August 2009, 12:46:55
Víðáttumikið tóm
teygir sig lengra og lengra
liggur yfir land og þjóð
detta
detta á til og frá
hyldýpi í
gildishlaðnar siðferðis ákvarðanir
.. óhreinar hendur ..
tóm
víðáttumikið tóm
liggur yfir land og þjóð.
Valur Geislaskáld
Wednesday, 6. August 2008, 16:59:52
Sjúkdómur er kallast Hreyfitaugahrörnun MND /ALS og þekktur sem Lou Gehrig sjúkdómur í Ameríku er mjög alvarlegur taugasjúkdómur sem er ólæknandi í dag. Þegar fólk er greint með MND þá er fyrst leitað að öllum öðrum þekktum taugasjúkdómum og þegar það er enginn þeirra þá er greining komin og fólk er með MND sem er stundum kallaður útilokunar-sjúkdómurinn og er oft sá sjúkdómur er flestir læknar vildu síst greinast með. Lífslíkur þeirra er greinast með MND eru ekki miklar eða 2 til 3 ár. MND er sjaldgæfur sjúkdómur og eru það ávallt um 5 manns af 100.000 íbúum ( sama hlutfall um allan heim ) er með sjúkdóminn greinast á hverju ári og alltaf 4 til 5 sem deyja líka á hverju ári og erum við því svona 15 til 18 á lífi hverju sinni með MND hér á Íslandi , þess má geta að á næsta bæ í taugasjúkdómi þ.e hjá MS eru 100 sjúklingar á hverja 100.000 íbúa og eitt það fyrsta er stendur í bæklingi um MS sjúkdóm er að lífslíkur MS sjúklinga séu mjög góðar þrátt fyrir allt .
Enn svo er ekki með MND og er sjúklingum sagt það strax í upphafi að það sé með ólæknandi sjúkdóm er það muni deyja úr .. og gengur það eftir og fær fólk mjög góða hjálp og stuðning frá MND teymi til að velja hjálpartæki við hæfi allt til enda. En MND teymi ( lækna, sjúkraþjálfa,næringafræðinga o.f.l sérfræðinga ) var stofnað fyrir 10 árum í ljósi þess hversu alvarlegur sjúkdómur er .. og gætu þá sjúklingar og aðstandendur ávallt leitað þangað með nánast engum fyrirvara. Hvernig best sé að lýsa MND er líklega að segja frá því sem hendir okkur þ.e að þegar heilbrigðar hreyfitaugar er stjórna hreyfingum okkar vöðva taka upp á því einn daginn að deyja , fyrst fáar og svo fleiri og fleiri og verður því sífellt erfiðara að nota líkamann og framkvæma hreyfingar og getur þetta leitt til algjörar lömunar , og er sjúklingur jafnvel þreyttur eftir smá einfalda hreyfingu. Og er best að nota eitt af klassískum dæmum og segja sem svo í líkingu við hreyfitaugar er deyja , að 10 menn séu að vinna verk og svo hætti einn og svo annar og svo koll af kolli þar til 1 er eftir og getur hann þá ekki unnið 10 manna starf þá leggst sú starfsemi hreinlega af. Nýjar hreyfitaugar myndast ekki aftur í stað þeirra er deyja og það er ekki hægt að æfa ná þjálfa neitt upp ( hvorki vöðva né taugar ) eða skipta um mataræði eða stunda jóga til að hægja á MND eða læknast , líkt og oft heyrist að fólk geri í ýmsum öðrum alvarlegum sjúkdómum og hafi jafnvel bata af .... því MND er ólæknanlegur sjúkdómur .. því miður ! því miður.
Því ekki er enn vitað í dag hvað valdi MND þrátt fyrir að sjúkdómurinn hafi fyrst verið greindur fyrir 120 árum , því vegna þess hversu fáir greinist árlega þá hafa lyfjafyrirtæki og rannsóknarstofur haldið að sér höndum því ekki hefur fengist nóg fjármagn til rannsókna og því höldum við þessi ,, litli ,, hópur áfram að deyja líkt og um lögmál væri að ræða . Og hafa á þessum 5 árum frá því að ég greindist um 500.000 dáið í heiminum öllum eða um 100.000 á ári hverju úr MND. Þessu þarf að breyta með auknum rannsóknum á MND Þess má geta að MND skerðir ekki greind og geta sjúklinga verið með fullu viti og greind þar til yfir líkur. Og er það eitt af því sorglega þar að ef sjúklingur lamast alveg þá verður sjúklingur það sem kallað er ,,fangi í eigin líkama,, og skynjar allt sitt umhverfi en getur sig ekki hreyft né tjáð nema bara með augum sem er einn örfárra vöðva er MND ræðst ekki á. Og er þetta það sem ég vill kalla það ,, skelfilega ,, við MND og jafnframt það fáránlega , og er það lífsreynsla sem enginn getur gleymt er séð hefur þá skelfilegu hlið MND .
Mitt lán í mínu óláni að greinast með MND er hversu hægt það þróast hjá mér ( er samt lýst sem ágengu ) sagt er að 10 árum eftir greiningu séu einungis 10% MND sjúklinga en á lífi. Því heldur maður í það vonar hálmstrá að bráðum finnist lækning , því það er ekkert gaman að vera veikur og að þurfa að sjá á eftir góðum félögum sem hafa dáið á þessum 5 árum , og hef ég haft kynni af mörgum MND sjúklingum á þessum tíma. MND er ekki eitthvað sem fólk nær sér í og líkt og áður sagði er ekki vitað hvað valdi þó einhverjir vilji giska á umhverfisþætti og ýmislegt annað , þá veit það engin fyrir víst og alltaf ráðgáta þar um ... því þegar það verður vitað hvað valdi .. þá er hægt að leggja drög að lækningu. Þess má geta að ættgengt MND er bara um 5% af þeim er veikjast , og hin 95% því tilfallandi. Og að lokum þetta , allir MND sjúklingar deyja á sama hátt þ.e að þegar svo margar hreyfitaugar í vöðvum í brjóstkassa er stjórna öndun hafa dáið og vöðvinn getur ekki starfað lengur þá falla lungun saman og sjúklingur deyr , nema sjúklingur fari í öndunarvél. Og þegar svo er komið að öndunarvél er fengin þá er sjúklingur oftast lamaður og getur hvorki talað né borðað og fær alla næringu beint í slöngu í maga , og getur bara tjáð sig með augum á sérhönnuðum tölvum og átt þannig samskipti við annað fólk.
Valur