Skip navigation.

SíðUmyndblÖg Gests og Siggu

油煎的狗请 ATH AHT Höfundurinn Gestur er töluvert slæmur af lexdysiu :)

Nafnbirting Sverris Styrkárs

Smelli hér inn nokkrum myndum frá Ása frænda


Sverrir Styrkár svaf af sér næstum alla veisluna. Svo var eins og fólk hefði heyrt af honum sögur því flestir létu sig hverfa þegar hann rumskaði. Hann var samt sæll og glaður og rosa ánægður að fá að opna svona marga flotta pakka þegar hann vaknaði.


Feðgarnir flottir við sjálfa athöfina.


Ástu þótti við hæfi að gyrða sig og vera svolítið snyrtileg við athöfnina.


Svo fór Ásta Rós að dást að pökkunum hans Sverris Styrkárs.


Veit ekkert hvaða fólk þetta er. Hver bauð þeim???!!


amma og afi á Egilsstöðum, Þórný móðursystir og Anne-Claire kökuskreytingarmeistari sem við sérpöntuðum frá Hollandi til að skreyta kökuna (ég veit soldið 2007).


Ömmur og afi að dást að piltinum.

Allt of mikið að gera

á Laugarvatni og því lítill tími til að blöööggggaaaa.

Hér kemur því eitt ljóð frá sör Þorsteini G. úr bókinni Barkakýli úr tré.

Ari fróði skrifaði á kindur.
Á tölvunni minni er epli.
Svona endurtekur sagan sig.


Þetta er að sjálfsögðu alger skkinnldar knildar verk en næsta ljóð Þ.G. minnir mig mikið á ástina mína sönnu hana Siggu sætu og er á þessa leið.

Guð er frauð
og ef hann væri Sigga
þá væri hún með ofnæmi
fyrir brauð.


Djö væri flott að vera skipskötturinn




Fær sko hárin til þess að rísa.

Barkakýli úr tré

Í dag er sunnudagur og því tilvalið að smella inn þremur ljóðum Þorsteins Guðmundssonar úr ljóðabókinni Barkakýli úr tré

Ég skil ekki alveg hvernig honum dettur þetta í hug. Nema kannski að hann hafi lent í þessu ..?

Ég vaknaði illa í morgun:
Áóskiljanlegan hátt
hafði mér verði troðið
inn í gítar.



Kannski líklegra að hann hafi reynslu af þessu hér fyrir neðan heldur en því að vakna í gítar.

Dauðinn kom of fljótt:
eins og miðaldra maður
um miðja nótt.



Þriðja og síðasta ljóðið eftir Þorstein þennan sunnudag.

Í stigagangi
situr
einn og bitur



...þá er ekki fleira í þættinum í kvöld verið þið sæl.

Hef ekki tíma

til að sitja og SíðuMYndblÖgga þar sem ég er á fullu við uppeldisstörf. Mig langar samt til þess að smella inn smá menningarvitrun fyrir ykkur trúlausu. Ég hef ákveðið að dæla yfir ykkur ljóðum Þorsteins Guðmundssonar á hverjum þeim degi sem ég er ekki með fréttir af frelsaranum eða okkur lærissneiðunum.

2006 kom út ljóðabókin Barkakýli úr tré eftir Þorstein Guðmundsson grínista og rithöfund. Í henni er að finna yfir 100 einföld og stutt ljóð í anda þess fáránleika og þeirrar undirfurðulegu sýnar á hversdaginn sem hann er þekktur fyrir.


Fyrsta ljóð bókarinnar er einhverskonar intro og ákall til skáldagyðjunar um áframhald á endaleysulok tilhneigingarinnar til þess að stoppa með því að halda stöðugt áfram. Það er ekki víst að stöðug endalok séu endilega byrjun á einhverju þó svo að í daglegu tali sé huggun harmi gegn að geta beitt tungumálinu laukrétt og skynsamlega með því að ljúga. Ljóðið er hér fyrir neðan og ég held að það sé ekki hægt að orða það betur en Þorsteinn gerir. Golf klapp fyrir hann ! Njótið vel.






Bíllinn minn er hvítuð
Það er flottur lítuð.




Þorsteinn Guðmundsson


Enn einu verkefninu lokið!!! Barnaherbergi stráksins loksins tilbúið !!!!


Ég rosalega ánægður eftur erfit verk. Það reyndist þrautin þyngri að velja allt inní herbergi litla guttans sjálfur. Sigga var mér ekki til fulltingis og ég þurfti þvi að velja allt sjálfur inn í herbergið.Hún verður hissa og vonandi glöð þegar hún kemur heim núna á eftir og sér að allt er tilbúið fyrir litla strákinn okkar



Ég ekki alveg viss um hvort mottan falli inn í vel stíliserað herbergið. Mottan er nefnileg hvít og flöffí og mér finnst það eitthvað svolítið væmið




Lokaverkið að smella litlu fallegu bleiku blómi í hornið og þá er allt tilbúið fyrir strákinn okkar. Það verður nú aldeilis gaman þegar hann fer að leika með litlu stráka vinum sínum.

18 daga gamall og ekki enn farinn að lesa


!


Staðan
Já nú er staðan sú að kallinn er orðin 18 daga gamall og ekki enn farinn að lesa. Þetta kemur okkur siggu töluvert á óvart því að sé tekið mið af greind foreldrana, það er mín og Siggu, þá ætti hann að vera orðin fluglæs og jafnvel farin að hripa orð á blað. Svo er þó ekki reyndin og ef hann tekur ekki stórt stökk fram á við þá neyðumst við til þess að draga til baka umsókn um grunnskólavist í vetur. Þá hljótum við líka að spurja okkur hvort geti verið að mistök hafi verið gerð á spítalanum og að hann sé ekki sonur okkar ?

Saga af útferð
Einhverjir bentu okkur á að í síðustu færslu hér á myndablögginu hafi engum orðum verið eytt í að segja hvernig ,,útferð" frelsarans hafi gengið fyrir sig og ætlum við nú að bæta úr því.

Koma frelsarans eftir tíma samdráttar
Samdráttur hófst á heimili okkar á Grettisgötu um miðnætti en við héldum okkur rólegum heimavið þangað til á hádegi daginn eftir. Þangað til vorum við að dytta að húsinu, rífa niður strompinn og festa þakplöturnar fyrir haustveðrin sem koma yfirleitt á haustinn. Þegar við komum á sjúkrahúsið um hádegisleitið var Sigga, ástarhýsillinn minn, komin með 4 í útvíkkun. Allt gekk svo sinn eðlilega gang þangað til átta í útvíkkun var náð. Engra lyfja hafði verið neitt fyrr en þá og þótti tilvalið að spæsa teitið aðeins upp og vildi ég ólmur kveikja upp í hláturgasinu. Ég var sem betur fer stöðvaður áður en ég náði að bera brennandi eldspýtuna að gleðigasgrímunni. Það er víst eldfimt sem mér finnst fáranlegt og stórhættulegt að vera með sprengihættulegt efni á fæðingarldeild. Kjánar. Hvað sem því líður þá hitnaði heldur í kolunum þegar gleðigasið var tekið til brúks og sumir , nefni engin nöfn hentu sér í pottin í góðum fíling. Klukkan 16:23 ætlaði allt vitlaust að verða í veislunni þegar sjálfur frelsarinn mætti á svæðið með innkomu, eða kannski frekar útkomu sem vakti gríðarlega eftirtekt. Hann var svo svalur þegar hann mætti á svæðið að hann var blár og hreinlega skipti um lit !!!! Hann fór beint í pottinn til mömmu sinnar og allir trylltust af gleði. Stuttu seinna var ákveðið að róa teitið niður og skriðum við feðgarnir í rólegheitum í rúmið og spjölluðum saman um heima og geima, hvernig væri heima og hvað mætti þar geima. Aðrir róuðu sig niður með kaffibolla og enn aðrir við saumaskap.

og hvernig lúkkaði svo barnið við mætingu
Pabbi, afi Gunnar, var spurður þessarar spurningar og var svarið frá honum á þá leið að barnið hefði erft vaxtarlagið hans pabbi síns. Barnið hafi verið 14 sentimetra á hæð og 52 merkur... :frown: EKKI FYNDIÐ pabbi og þú mátt vita að ég set þig ekki á gott elliheimili þegar kemur að því og þú skalt líka vita að það stytist í það gamli maður!!!

Rétt
Rétt skal vera rétt og hún notuð við að draga fé í dilka sem eru í réttum réttum.
Snillingurinn og undrabarnið okkar var sem sagt 14 merkur (3525 gr) og 52 sentimetra (0.52 metrar). Hann er því ekki eins og ég í vextinum því ég er akkúrat meter hærri en hann og smá þyngri.


Hvað hefur á daga hans drifið.

Myndirnar hér fyrir neðan sýna það helsta sem á daga hans hefur drifið en því miður þá kláraðist filman í myndavélinni akkúrat þegar hann var úti að hjóla í fyrsta sinn. Svo eru líka hér fyrir neðan myndir af honum í fyrsta fimleikatímanum nema að það hafi eitthvað klikkað þegar ég var að uplóda þær hér á síðuna.



Kallin smellti sér í Júróvisíjon partí og klikkaði ekki á dressinu. Við vitum ekki hvað gerðist en allt í einu sáum við hverjum hann líkist. Hann er nákvæmlega eins og Sigga.



Langamma kom í heimsókn og strákurinn lagði henni lífsreglurnar og sú gamla fór heim með ný lífsviðhorf og er núna á línuskautanámskeiði í Færeyjum.



Einn góðan veðurdag fengum við starfsmann frá Fálkanum til þess að mæla út höfuðstærðina á honum því við viljum að hann hafi rétta stærð af hjólahjálm þegar hann fer út að hjóla á eftir.



Sleeping bjútí! er hann kannski að dreyma draumaprinsessuna ? Ég elska þig viltu kyssa mig (vá hvað maður verður væmin þegar maður er orðin Faðir Gestur))



Maður verður hreinlega syfjaður á því að sjá hann sofa, kannski er ég bara syfjaður ?ja held ég leggi mig bara






Jubbí jei !!!! gaurinn er mættur á svæðið svo haldið ykkur. Það getur engin kúkað upp á bak jafn flott og hann!!!


Þremur dögum fyrir áætlaðan komutíma frelsarans var þessi mynd tekin heima í litla eldhúsinu okkar á grettunni.




Rétt eftir miðnætti aðfaranótt 7.maí byrjuðu samdrættir af einhverju ráði. Við lögðum þó ekki af stað á sjúkrahúsið fyrr en um hádegisleitið daginn eftir því við kusum að slappa af heima í rólegheitum og tókum þá þessa mynd rétt aður en við fórum af stað.




Steinunn, mamma Siggu, var með okkur við þennan merkis atburð og hér bíða þær mæðgur eftir því sem koma skal.



Hríðir, kútur og góður kaffibolli :smile:




Móðir í eina mínútu og virðist líka það vel. Þetta var mögnuð stund sem seint gleymist


Gríðarlega sætt krútt hann þessi. Svo er barnið sem hann heldur á líka einstaklega fallegt. Þarna held ég á honum í fyrsta skipti og hann aðeins fimm mínútna gamall. Það sést kannski á svipnum á mér að ég er frekar áttavilltur með þetta allt saman.


Við fengum engan svefnfrið fyrstu nóttina því guttinn vildi ekki lækka tónlistina. Eftir töluverðar samningaviðræður þá samþykkti hann að nota headphones og ipod ef við mundum hækka vasapeningana hans upp í 30 evrur.
Gaurinn á leið heim í örlítið alltof stórum galla.

Nýkomnir heim af spítalanum og báðir frekar þreyttir. Aftur á móti var Sigga úti í garði með skóflu að grafa fyrir fjárhúsi sem við ætlum að setja upp hér á grettunni.



Steina amma og guttinn í kósí fíling


Sofa manna börn í mjúkum rúmum ...

Svo er að finna út úr því hverjum hann líkist!! Okkur finnst hann líkur sjálfum sér og hvorugu okkar

Okkar dýrmætasta eign.

Þetta er sniðugt!

Fann þetta á barnaland:

Langar þig að léttast um 5-10 kg?
Eru þreytt á sleni og síþreytu? Er líkaminn löngu búin að segja stopp?

Crash Diet er nýung á markaðinum. Um er að ræða 10 daga detox meðferð þar sem þú losnar við eiturefni úr líkamanum og líkaminn fer að brenna fitubirgðum okkar. Algengt er að missa 5-10 kg á þessum 10 dögum og jafnvel meira.

Um er að ræða töflur sem þú lifir á í 10 daga og þú færð öll þau næringarefni sem líkaminn þarfnast. Ótrúlegt en satt... þú finnur ekki fyrir hungri.

Hver pakki inniheldur 30 skammta af vítamínhylkjum, vatnsflösku, leiðbeiningar, málband og eyðublað til að skrá niður árangur.

Verð á 19.900

Greining:
Fjölvítamín 30 töflur verð í Bónus 2-4000 krónur
Vatnsflaska (með vatni) 200 krónur
Leiðbeiningar, vinna, pappír og blek 100 krónur (hversu flóknar eru þessar leiðbeiningar? skrúið frá krananum, setjið vatn í flöskuna, pillu í munninn og drekkið vatnið)
Málband, hægt að stela í IKEA fínum pappírsmálböndum.
Eyðublað, vinna, pappír og blek 200 krónur
Þetta kostar því um 4.500 krónur, snillingur sem að datt í hug að selja þessa pakka.

Ég er komin með hugmynd, sendið mér 5000 kall í pósti og ekki borða neitt í viku, þá missið þið örugglega fullt af kílóum :smile:

Ætla sko að gera þetta til að losna við óléttukílóin, hver vill fá 5000 kallinn?
Kv.
Sigga




Pungur með hreðjar

í hreiðurgerð meðan unginn ungast í yngismey.


Ég pungsveittur að einangra svefnherbergið
Ég smellti mér úr vinnugallanum og tók stúdíóið hans Birkis og hann sjálfan traustu taki og þetta er útkoman. Við höfðum ,,shjit'' gaman af þessu og stefnum á að fá stúdíóið (og Birkir)lánað aftur fyrir áætlaðan komutíma mesta snillings ,,ever''. Sá kemur úr þessari fallegu kúlu sem sést á myndunum og lendir á þessari kjánalegu bláu kúlu sem er stjórnað af fávitum!!!!


Okkur skilst að undrabarnið sé byrjað að skorða sig og þess vegna kitlar Sigga þarna iljarnar


Tvíburar ?


Ekki laust við að eftirvæntingin sé mikil

Hlandsfundur sjálfstæðismanna



Ólétta Sigríðar

Heilsan
...er góð þrátt fyrir slen síþreytu og greinilega rýrnun heilans um 30% en það gerist víst á meðgöngunni.



Bumban á Siggu
...er mjög svo falleg. Mér finnst þetta samt vera svolítið spúkí hvað hún getur stækkað, það er að segja bumban. Ég veit ekki hvar þetta endar en með þessu áframhaldi þá verður hún komin með stærri bumbu en ég. Það finnst mér frekar óeðlilegt ástand þar sem aðeins einn húsbóndi á að vera á hverju heimili. Bumbuferillinn var svolítið skrítin því það sást sama og ekki neitt fyrr en allt í einu á 22. viku þá bara búm bara bím bara búm og eftir það þurfti ég að gera allt á heimilinu nema skipa fyrir. Humm það sem sagt breyttist ekki neitt.




Svo langar mig til þess að sýna þennan snilling dagsins en hann Hannes hélt erindi í Háskóla Íslands þann 14. september 2007 undir nafninu Íslenska efnahagsundrið eða The Icelandic Economic Miracle. Það er frábært að hlusta á þessa mannvitsholu sem bæ þe vei situr í bankaráði seðlabankans lofsyngja og útskýra fyrir okkur ómenntuðum hálvitunum hvernig íslenska efnahagsundrið virkar. Þetta er möst sí myndband.



Já auðvitað...

...var eitrað fyrir honum.
„Það var eitrað fyrir mér“
Er hann ekki að taka sig full alvarlega greyið kjáninn hann Árni. Það er alveg á tæru að ef það var eitrað fyrir honum þá var það hvorki sannleiks né samviskueitur eins og notuð eru í bíómyndunum. Fyrst stal hann og þáði mútur left, und right og laug sig svo ofan í djúpa holu sem engin kemst upp úr nema spiltir siðferðisbrenglaðir menn sem eiga spilta menn að vinum. Að sjálfsögðu fékk hann sér bara eitt stk uppreisn æru með plati og plotti og situr nú á þingi aftur fyrir sjálfstæðismenn!!!!!!

Dómsmálaráðherra ákvað að verða við beiðni Árna Johnsen um að honum yrði veitt uppreisn æru. Handhafar forsetavalds, Geir H. Haarde forsætisráðherra og Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, undirrituðu tillögu Björns Bjarnasonar félaga þeirra um þetta því Ólafur Grís Grímsson, forseti Íslands, var erlendis. Ha ha ha jubbí!!
Uppreisn æru með forsetabréfi þegar forsetin var erlendis er bara snilld og greinilegt að hann iðrast gjörða sinna. Hann hefur því óflekkað mannorð og er kjörgengur til alþingiskosninga.

Auðvitað var eitrað fyrir honum !!!! Hvað gæti það hugsanlega verið annað ??







.................................................................................samviskulaus hálviti.

Ha ha ég

er byrjaður aftur í bullinu. Síðasta færsla var 8. des og er það lengsta PRP (Post Reinforcement Pause)sem átt hefur sér stað hér á SíðUmyndblÖgi Gests og Siggu. Það er sem sagt komið nýtt og verra ár og því ærið tilefni til þess að óska landsmönnum gleðilegs nýs árs og þess að vera svolítið mikið meira gagnrýnir í huxxun á nýju ári. Það er nefnilega kominn tími til þess. Mér misbýður gjörsamlega þetta helvítis rugl í Íslendingum að trúa gagnrýnislaust öllu sem þeim er sagt. Ásamt draugum, álfum, árum,orkusteinum, heilunum og hindurvitnum ætla ég að skjóta á trúarbrögð og tónlistargagnrýnendur 18. aldar.



Gunnar að kristna lýðinn alveg Ga Ga



Skera hana úr heilbrigðiskerfinu. Þetta er sýnt í Kastljósi alveg gagnrýnislaust eins og þetta sé ekki 100% kjaftæði heldur eitthvað rétt svona örlítið aðeins óhefðbundið. Þetta er möst að horfa á og tekur aðeins 2 mín.

Annars er það af okkur Siggu sætu að frétta að við erum hamingjusamlega happí á Grettisgötunni. Sigga er verkefnastjóri í Opna háskólanum í Háskóla Reykjavíkur og ég er þessa stundina að gera upp Grettuna. Ég var kominn með helminginn af annari löppinni í vinnu þegar ég uppgötvaði að miklar skemmdir væru á okkar ástsælu Grettu. Meðan við vorum á skútuferðalaginnu hafði, sennilega vegna jarðskjálftans um vorið, komið sprunga á útvegg og inn flætt vatn í töluverðu magni síðan. Vegna þess að veggurinn er klæddur af og engin var lyktin þá sást þetta ekki fyrr en ég garfaði fyrir slysni í veggfóðrið í svefnherberginu. Þegar ég gerði mér grein fyrir þvílíku helvítis veseni þetta olli dró ég löppina úr hugsanlegri vinnu og einbeitti mér að íbúðinni sem verður að vera tilbúin fyrir apríl þegar ég helli mér í 150% vinnu á Laugarvatni. Síðan þá er ég búinn að umturna öllu hér bæði inni og úti.

Búinn að gera
-Gerði upp alla neðri íbúðinna frá A til Ö
-Vegna raka og leka reif ég gólf, loft, veggi , rafleiðslur og bara allt sem ég gat rifið út úr svefnherberginu í efri íbúðinni.
-Málaði allt baðið
-Skipti út öllum vatnskrönunum alveg inn í vegg.
-Setti upp þrjá skápa.

Eftir að gera
-Á eftir að múra, einangra og mála austurveginn með sprungunni.
-Grafa upp allt dren í kringum húsið og setja nýtt.
-Lakka alla gluggana og setja þá í.
-Setja alla gluggana í Grettuna mína svo hún verði sæt og fín fyrir hundrað ára afmælið sem er eftir tvö ár eða 2011
-Mála stóra herbergið, mála og veggfóðra eldhúsið.
-saga gólfið fyrir heimabíóleiðslurnar og hööööggggva veggin fyrir sjónvarpið.
-Rífa upp gólfið í eldhúsinu og flota aftur.
-Flísa milli innréttinga í eldhúsi.
-Breita gang-geymslunni í skáp.
-OG fuuullltt meira spennó.


Nenni þessu fokki ekki og þið þrír sem enn kíkið við á síðaumyndabloggið ekki heldur, verið þið því sæl ir.




Hin mörgu andlit lýðræðis á Íslandi...

...jubbí jei