Sunday, 6. August 2006, 19:35:41
Wednesday, 2. August 2006, 23:08:55
Það er orðið ansi langt síðan síðast var fært inn á alnetið eitthvað af viti. Föstudaginn 5. maí var síðasta færsla og þá snérist allt um lestur fyrir þroska sálfræði próf. Prófið gekk vel og er það vel. Ástæða þess að ekki hefur verið nein færsla inn á síðuna síðan er ekki að ekkert hafi verið í gangi t. d. erum við Sigga orðin sjóhundur og sjótík en það verður útskýrt nánar síðar.
Sumarið mitt hefur að mestu farið í vinnu við flottustu blokkina á Laugarvatni sem gömlu hjónin voru að byggja. Á meðan var Sigga önnum kafin frá morgni (sem byrjaði mis snemma hjá henni) til kvölds að eyða þessum fáu krónum sem ég vann mér inn. Eins gott að hún græði hjá Gallup í vetur svo ég fái bjórinn minn á borðið!! Þrátt fyrir þrotlausa vinnu Siggu við að eyða peningunum mínum þá náði ég að skrapa saman nokkrum krónum og fórum við fyrir þær í tíu daga ómenningar reisu til Amsterdam. Eftir þriggja daga svínarí í Amster var ákveðið að fara í tveggja daga afvötnun til Brussel. Komumst við að því að bjórinn þar er góður, súkkulaðið sjúkt og belgískir lestar þjófar þeir bestu í heimi þar sem þeir af mikilli snilld náðu af okkur bæði bjórnum og súkkulaðinu.
Eftir lestarránið mikla þá snérum við aftur til Hollands og á þjóðhátíðardag siglingarþjóðarinnar Íslands þá sigldum við seglbát í fyrsta skipti. Það var aðeins tveimur og hálfum mánuði eftir að við ákváðum að fara í eins árs skútuferð til framandi landa og stranda ?
Til þess að vera öruggur um að geta fært björg í káetu á framandi slóðum fór ég í 5 daga æfingabúðir í Drangey með Kristjáni og Eiríki. Þar lærði ég að veiða grimmustu og hættulegustu rándýr íslands, Lundann. Það var satt best að segja ótrúleg upplifun vera í Drangey þessa daga þar sem ekkert er rafmagnið, ekkert rennandi vatn og kamarinn stærsta waterloo í heimi. Myndir úr drangeyjarferðinni eru það eina sem ég hef sett á síðuna í allt sumar en ég kem til með að bæta úr því og smella inn þeim myndum frá Hollandi sem eru birtingahæfar núna næstu daga.


Í tilefni verslunarmannahelgarinnar höfum við Sigga ákveðið að bjóða Freyju í annað verslunarmannahelgarpartí þar sem greinilegt er að hún skemmti sér vel á Grettunni í fyrra. Einnig er öllum sem telja sig geta spilað krikket með bjór í annari og grillkjöt í hinni boðið.
Friday, 5. May 2006, 08:25:36
Ég held að innst inní sér (tæknilegt sálfræði mál) vilji allir vera Össur ofurbloggari! Hvað annað getur verið ástæðan fyrir því að allir eru að reyna að BlÖga ? Kannski er þetta spurningin um þessar 15 mínútur af frægð eða eitthvað allt annað ég bara veit það ekki og það skiptir ekki máli. Ég er allavega engin Össur og ætla ekki að skrifa um það hvað ég er ömurlegur við þá sem reglulega kíkti á gesturg myndasíðu bLÖg. Ástæðan fyrir því að ég ætla ekki að skrifa um það er að nú er engin til þess að lesa það. Þeir eru örugglega báðir búnir að gefast upp og hættir að “kíkja inn”. Listræni óskapnaðurinn myndablÖgið mynd dagsins á því enga áhangendur lengur og er það vel.
EN núna er kominn tíminn til þess að skrifa skrifa skrifa og skrifa bull einfaldlega vegna þess að ég á að vera að lesa, lesa og lesa. Það bíða nefnilega u.þ.b. 900 þroska sálfræði blaðsíður eftir mér. Prófið er næsta fimmtudag svo ég ætti að vera að lesa en ekki skrifa en, eins og fyrr segir, allir vilja vera Össur...Annars er ég þokkalega undirbúinn undir prófið því ég las reglulega eina blaðsíðu í vetur svo nú er bara eftir að frum lessa (Freudian slipp) u.þ.b 899 blaðsíður. Vonandi verður “þroskinn” mér ekki að fyrsta falli en þetta er bara svo hræðilega vitlaust að ég gat hvorki setið fyrirlestra né lesið bókina. Eftirfarandi eru gullmolar undrabarnsins sem kennir þroskan “Barnið er virkur þátttakandi í þroska sínum” Jubbí!! “Kenningar eru allar frábærar og ef þær stangast illa á hver við aðra þá veljið þið bara þá sem ykkur líst best á”!!!!!! Þetta er auðvitað kennsla á heimsmælikvarða og sýnir mikilvægi gagnrýnnar hugsunar sem manni er kennt í öðru hverju námskeiði í sálfræðinni. “Þið eigið ekkert að vera að hugsa um það þó að kenningar stangist á því það er bara einhver vísinda öfund, ég er löngu hætt að láta það trufla mig”. Þökkum Guði og fél fyrir að hún er bara einnota kennari því á næsta ári kemur Sigurður aftur og þá verður allt gott : ) En núna ætla ég að byrja á því að opna bókina og byrja efst á blaðsíðu 1 og lesa hana niður og færa augun svo efst á blaðsíðu 2 og ......

Síðasta mynd sem ég setti í blÖgg var þegar við brósi vorum í Austuríki og því tilvalið að halda áfram með einni af honum í hálf-pípu ríðandi öldunni... og þá aftur að lestrinum, börn eru virkir þátttakendur í þroska sín.... ...
Tuesday, 31. January 2006, 19:25:19

Í dag er dagur þrjú í krossferð okkar gegn Gommaknotum ríkis þess er við austur er kennt. Austuríkisverjar virðast í fyrstu ágætis verjar þeir brosa stundum og stundum ekki og er það vel. Ætlum sem sannir víkingar í vígaför að fá okkur meiri mjöð ritum þar af leiðandi ekki meira í bili enda löngu orðið ágætt
Monday, 30. January 2006, 20:05:23

Þar sem ekkert net er á hótelinu brugðum við á það ráð að troða okkur á netkaffihús til að sinna þeirri borgaralegu skyldu okkar, sem íslenskir ríkisborgarar, að leyfa löndum okkar að fylgjast með ferðum okkar þegar við sigrum heiminn. Þar sem tími okkar á þessu kaffihúsi er senn á þrotum, þá þurfa nánari útlistanir á hertækni okkar að bíða betri tíma. Að öllum líkinum koma fleiri og betri myndir á morgun ásamt dramatískum sögum af sigrum og ósigrum í landi langt, langt, langt, langt í burtu frá því skítaskeri sem skrattinn dró upp úr ballarhafi með rassgatinu bara til að pirra einhvern... ég veit bara ekki hvern!
Wednesday, 14. December 2005, 21:34:54
Láttu mig vita ef þú kemst ekki inn á þessa síðu og sérð þetta ekki!!!!!!
Tuesday, 13. December 2005, 22:08:43

Ég ætlaði að vera duglegur og skúra íbúðina. Henti því stólunum í sófann og... ? ...þetta er kannski bara ég en...mér finnst sko eins og...
Skiptir ekki máli en ég held að ég fái mér kött.
Thursday, 8. December 2005, 20:07:23
PróflesturpróflesturpróflesturpróflesturPróflesturpróflesturpróflesturpróflesturPróflesturpróflesturpróflesturpróflesturPróflesturpróflesturpróflesturpróflesturPróflesturpróflesturpróflesturpr

PróflesturpróflesturpróflesturpróflesturPróflesturpróflesturpróflesturpróflesturPróflesturpróflesturpróflesturpróflesturPróflesturpróflesturpróflesturpróflesturPróflesturpróflesturpróflesturprPróflesturpróflesturpróflesturpróflesturPróflesturpróflesturpróflesturpróflesturPróflesturpróflesturpróflesturpróflesturPróflesturpróflesturpróflesturpróflesturPróflesturpróflesturpróflesturpr
Monday, 5. December 2005, 23:15:05

Þetta er mynd af Einari Rúnari frænda! En hann er í Kína.
Monday, 5. December 2005, 23:13:56
Sunday, 4. December 2005, 15:08:59

Þetta dýr hélt upp á þrítugsafmælið sitt í gær með stóri veislu hér á Grettisgötunni. Við óskum honum til hamingju með þann ótrúlega árangur og vonum að hann nái jólatrénu aftur úr rassgatinu á sér.

Rúnar bróðir sendi mér í dag þessa mynd af mér og Ástu Rós. Það er eins og ég hafi ekki gert annað um æfina en að hugsa um börn!!!
Friday, 2. December 2005, 13:22:09

Þegar maður fer að læra fyrir próf þá verður maður svona...háskóla!
Tuesday, 29. November 2005, 23:32:44

Hápunktur dagsins var þegar ég var gripinn fyrir alltalltalltofhraðan akstur á leiðinni í fimleika. Það góða er hinsvegar að nú er ég góðkunningi lögreglunnar eins og Árni!!!!
Tuesday, 29. November 2005, 23:32:34
Sunday, 27. November 2005, 18:59:02

Sérstakt að fá Arnar bró í heimsókn.
« Prev 1 ... 8 9 10 11 12 13 14 Next »
Showing posts 181 -
195 of 201.