Gróustaðir 2

Subscribe to RSS feed

nenni ekki að skrifa

kem ekki til með að nenna að skrifa nokkurn skapaðan hlut, skelli bara inn myndum öðru hvoru.

stigamenn

Jæja Beggi er byrjaður að smíða nýja stigann upp á kaffistofuna í fjárhúsunum, við vorum í gær að setja tröppurnar í fyrri hlutann þá er eftir stigapallur og seinni tröppurnar, við þykjumst auðvita vera rosalega flink að geta hannað svona flottan stiga.
Svo er árshátíð hjá Gullu í kvöld í skólanum, maður verður að mæta á svoleiðis menningarviðburð, hún fær að leika "uppáhalds"no persónuna sína úr Latabæ,(eða þannig) Íþróttaálfinn:yuck: ég er eiginlega sammála henni, mér finnst hann ekki sérlega skemtilegur né góður leikari, hann er alltaf með sama svipinn, Glanni Glæpur er sá sem heldur uppi fjörinu í Latabæ, án hans væri engin atburðarás.

síðan hefur ekki verið lögð niður

Fer ekki að koma tími á að ég nenni að skrifa hér...zzz ætli ég þykist bara ekki hafa haft svona mikið að gera, og svo þegar ég er búina að sitja 4-5 tíma við tölvu í vinnunni þá forðast ég svoleiðis fyribæri þegar ég er heima.
en hvað um það nú er ég næstum hætt að vera á skrifstofunni, hætti yfileitt um 1. apríl og sný mér að búskap þegar Beggi fer að huga að þangslætti.
Gulla fékk flensu og missti röddina í meira en viku, gat bara hvíslað.
Við ákváðum að bruðla og skipta út gamla sjónvarpinu sem er komið eitthvað yfir 20 árin, það var eitthvað svo gráleitt að horfa á það, liturinn ekki alveg góður, fengum okku bara venjulegt sjónvarp (ekki flatskjá né breiðtjald) svo sat maður og upplifði veröldina alveg í nýjum lit, eða þannig.

Við settum löglegu númerin í gemlingana á helginni, mér finnst voða sniðugt að það skuli standa IS (fyrir Ísland) á númerunum, þá fer ekkert á milli mála hvaðan kindin er ef hún villist yfir landamæri... veit ekki alveg hvert þær ættu að fara???rolleyes

fátt eitt.

fátt að frétta hér á bæ. flensur af ýmsum sortum að stinga sér niður hér allt í kring, höfum sloppið enn, nema Jón Ingiberg sem lagðist í gær á Skaganum.
Arnór Ragnars var í gær og dag að taka af rollunum hér.
Já og hún Lukka er orðin hress,

jú jú Birta og Halla segið eitthvað skemtilegt, og Halla mín til hamingju með prinsinn.

öskudagur

Ágætis öskudagur í dag, sá samt enga öskupoka, ég held að krakkar í dag viti hreinlega ekki hvað eru ökupokar, ég geri það hér með að tillögu minni að það verði skylduverkefni í handavinnu í skólanum að hvert barn saumi í það minnsta einn öskupoka.pirate

þeim sem þola ekki rollur geta hætt að lesa hér.

Fórum á kynningarfund fyrir nýja Fjárvís, þetta gæti orðið ágætt þegar það verður komið í gagnið.
Já Dúddi, við létum telja hjá okkur fósturvísa í fyrsta sinn í fyrra, það kom sér vel fyrir okkur þó svo að þrílembunum hefði fjölgað úr 8-10 í talningunni í eitthvað um 20 í sauðburði og ein geld varð tvílemd, þetta stóðst náttúrlega ekki 100% enda ekki við því að búast.
Við gátum haft einlemburnar sér og þrílemburnar og þá var hægt að venja undir um leið og þær báru og tvær var ég búin að venja undir áður en þær voru bornar, þetta sparaði okkur mikin tíma og það er ekki of mikið af honum á þeim árstíma.

erfið síða

Þessi heimasíða er víst eitthvað erfið í umgengni er mér sagt, það geta ekki allir skrifað inná.
Fyrir neðan dálkinn sem er skrifað í eru ýmsir stafir og tölustafir á flekkóttum bakgrunni, þar hjá stendur "please enter the characters shown in the image below" það þarf að skrifa þessa stafi í lítinn glugga sem er þar, þá á þetta að ganga. Ég er ekki alveg sátt við þessa síðu á stundum, er frekar snúin.
Sól og blíða í dag en frekar kalt.
Það var fósturvísa talning hjá okkur í gærkvöld, gekk bara vel, kláruðum 470 stk. á ca 3.og 1/2 til 4. tímum, með smá kaffihlé í kaffistofunni í fjárhúsunum,( ég held að svona kaffistofa sé með því gáfulegasta sem er hægt að hafa í fjárhúsum, það er afskaplega gott í sauðburði að geta lokað hurðinni þar og þurfa ekki að hlusta á rollurnar.)
Lukka er eitthvað slöpp, eftir að hún var tekin á hús, Beggi er að fara með AB-mjólk til hennar samkv.læknisráði. Mér er sagt að hestar eigi þetta til, að verða svona slappir, annars hef ég ekki nokkurt vit á hestum.

rjómablíða

það er búin að vera þvílík rjómablíða um helgina, grilluðum á laugardagskvöld.chef Beggi og Gulla fóru með hana Lukku í Reykhóla í dag, það á að fara að temja hana. Svo fórum við Beggi að sækja skádælu að Valþúfu, það á að athuga hvort hún passar í fjárhúsin hér, þá getur Beggi hætt að eyðileggja drulluskrúfuna fyrir Stefáni. Dísa mágkona kom að leita að skrýtnum fötum hjá mér fyrir Elísabetu á grímuball, (þetta er greinilega rétti staðurinn til þess)pirate

draumaveiðari

það er búið að spyrja mig nokkurm sinnum útí draumafangara ( veiðara, gildru)ýmsar útgáfur af þýðingunni, ég hef gert hann bara fyrir mig, setti inn mynd í handverkið (nr.11)
www.teachersfirst.com/summer/dreamcather.htm þarna er kennt að gera draumaveiðara.
og www.dreamcathers.org þarna er sagan af fyrsta draumaveiðaranum farið í "the legend" efst á síðunni.

bæjarferð og ungabörn

skruppum í bæinn í gærkvöld, Gulla í tannréttingum, komum svo heim í kvöld. (stutt og laggott)
Skrítið hvað þessi ungabörn breytast hratt, það er ekki komin vika síðan litli frændi kom heim og hann er strax orðinn miklu mannalegri á svipinn en þegar ég sá hann fyrst.
February 2012
S M T W T F S
January 2012March 2012
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29