Foucault
Thursday, October 5, 2006 12:43:06 PM
Hahh. Það kom kona í Orkuveituna í hádegishléinu í dag sem var að selja alls kyns ullarklæði (sjöl, peysur, vettlinga, húfur o.fl.) frá M-design, mjög flott. Allavega. Við Arna fórum að skoða hjá henni og svona eitthvað að chatta og þá segir konan sísvona: “Rosalega er þetta flottur pendúll .. snýst hann í hring ... ?” Ég svara um hæl að pendúllinn sýni fram á að jörðin snúist .. hann sveiflist alltaf í sama planinu en afþví jörðin snýst ..... svo leit ég á konuna og ákvað að hætta bara í miðri setningu þegar ég sá svipinn á henni. Lúði.is!! Af svipnum að dæma fannst henni ég allavega eitthvað svolítið skrýtin og umræðan um pendúlinn varð ekki lengri.
