
Er á gömlu tölvunni minni, lyklaborðið er bilað svo ég geti ekki gert ae...eða stóra stafi nema ég noti caps-lock. Það er svona að eiga barn sem virðist hafa einsett sér það frá upphafi að taeta hlutina mína og drasla til. Henda sjónvarpinu í gólfið og svoleiðis...en maður kemst ekki hjá því að kikna í hnjánum þegar réttu töktunum er beitt og fyrirgefa allt....Hann er nú svo yndislegur þessi elska.
En ég var að fatta það að í dag var Valentínusardagur...hvernig gat það farið framhjá mér. Ekki það að ég muni eftir bónda-maeðra-konu degi yfir höfuð en ég verð alltaf vör við það....og ákveð svo hvort ég hafi tíma til að sinna þeim...sem ég hef yfirleitt ekki. Er td. mjög léleg á bóndadegi og sem betur fer er bóndanum alveg sama. En afhverju á maður ekki að einbeita sér að sínum nánustu á þessum fáu dögum ársins. Nú er valentínusardagur búinn en ég verð að segja að ég átti mjög rómantískan dag...að vísu er Hjörtur löngu sofnaður og ég ein að blogga í einhverri taugaveiklun...eða kannski er það risastóri kaffibollinn sem ég drakk áðan ...
Verð að setja inn mynd af henni Betu sem er svo ótrúlega saet ólétt. Það var reyndar mjög fyndið í morgun þegar ég var að fara að halda fyrirlestur og tölvudruslan slökkti á sér, svo þegar ég opnaði myndaforritið birtist Beta með bumbuna sína á skjánum öllum til mikillar ánaegju. Svona er hún Beta, kemur stöðugt á óvart hehe.
Við Beta fórum reyndar saman í óperu um daginn BRÚÐKAUP FIGARÓS ...ekki vegna einskaers áhuga okkar á raddtaekni heldur vegna þess að Lilja Dögg var að frumreyna sig á sviðí í óperusöng. Hreiðar var einnig í stóru hlutverki. Þetta var ótrúlega flott hjá þeim og fannst okkur mjög gaman ...nema að það tók 3 OG HÁLFAN TÍMA EKKI 2 TÍMA EINS OG VIÐ BJUGGUMST VIÐ. Ég og Beta höfum hvorki andlegan þroska né úthald í svona aríur. Við vorum farnar að tala um háraliti söngvaranna og fá hláturskrampa bakvið leikskrárnar.
En nóg í bili, munið bara að raekta ástina, hún er það sem Valentínus var alltaf að tala um....