Like a drifter I was born to walk alone..

I'd rather be hated for who I am, than loved for who I am not

Subscribe to RSS feed

Endurkoma!¨!!

Ákvað að koma með comeback í bloggheima \o/

Aðalástæðan fyrir því er til þess að monta mig yfir því að Ásdís er mætt í surprise heimsókn á klakann! hún mætti á föstudag og kom heilu bæjarfélagi á spítalann því að allir fengu hjartaáfall! smile

En við ákváðum að fagna heimkomu hennar með stæl á föstudaginn, svo miklum stæl að ég var rúmföst í allan gærdag smile

En mikið hefur verið að gerast hjá mér undanfarið og er ég komin í nýtt job smile sem að allir vita nú hvað er því að mér finnst það svo gaman að ég geri ekki annað að tala um það =)

En af því að líða fer að jólum þá ætla ég að setja inn lista um hvað mig langar í útskriftar, afmælis og jólagjafir bigsmile

- volcanodesign ermar, bæði svartar og rauðar jersey ermar og glamúr ermar í bláum lit smile
- innleggsnótu í cintamani búðinni
- miðbæjarkort
- innleggsnótu í kringlunni
- innleggsnótu hjá Saumagallery Chaemsri Design ehf Laugavegi 70
- nýja nál í plötuspilarann minn
- digital túner fyrir gítarinn minn, er ekki alveg að skilja túnerinn sem ég er með nuna
- nýja sæng
- fallegt málverk eða eitthvað þannig á veggina mína
- gjafabréf í leikhús (og leikhúsfélaga)
- CANON EOS40D myndavél


og örugglega eitthvað fleira eftir að tínast til
heh bigsmile
Ég bloggaði alla vega

Fyrir Þórhildi Nótt sætustu

Í júní síðastliðnum greindist Þórhildur Nótt Mýrdal, dóttir Steinunnar Bjargar Gunnarsdóttur og Jóns Gunnars Mýrdal með sjúkdóm er kallast Spinal Muscular Atrophy eða SMA (vista), til eru 4 flokkar af þessum sjúkdóm og er Þórhildur með flokk 1 sem er jafnframt sá hættulegasti.
Hún þarf á bæði lyfjagjöf og sérfræðiþjónustu að halda svo ekki sé minnst á tækjabúnað.
Þetta kostar allt peninga og mikla umönnun beggja foreldra sem munu væntanlega þurfa að vera töluvert frá vinnu.

Viljum við því biðja alla sem eru aflögufærir að styrkja hana og fjölskyldu hennar með frjálsum framlögum.

Söfnunarreikningur Þórhildar er:
1118-05-250052 og kt. 120856-7589

Munum svo að margt smátt gerir eitt stórt.

Viljiði vera svo væn að áframsenda.

kokteilapartý!

Jeij.. ákvað að taka mér smá tíma frá busy vinnunni minni og halda kokteilapartý í kvöld fyrir kokteilapæjurnar mínar smile er að pissa í mig hlakkar svo til! verður reyndar fámennt í kvöld, en það er ekkert verra smile

En.. aðalfréttin er sú að það eru 25 dagar í födselsdaginn minn! verð þá að hætta að segjast vera 20 sad er alveg að krebera yfir því að vera að verða svona gömul! það er bara minnst að gera sig wink vildi að ég væri ennþá 17 =)

Annars eru allar helgar búnar að vera uppteknar í sumar hjá mér.. er annað hvort upp í bústað eða eitthvers staðar blek!

næstu helgi er ég að fara upp í bústað, en systir min og shitloads af vinum hennar verða þar og er ætlunin að drekka frá sér allt vit og slóra svo þess á milli í heitapottinum..

svo helgina eftir það er versló! og er ég í fríi fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag smile en þar sem að stelpurnar eru að fara út eftir helgina hugsa ég að ég endi bara upp í bústað:) enda eru mamma og pabbi bestu djammfélagar mínir p

svo helgina eftir það er ekkert spennandi, ég að vinna og eitthvað.. en svo á miðvikudeginum eftir það badabúmm! íbbsen á ammli! svo helgina eftir það danskir dagar..!

er að pissa í mig því ég elska svo sumarið! bigsmile

enn.. ég ætla að halda áfram að eyða deginum í það að búa til jello skot og þrífa smile skella mér svo í vinnuna í 1,5 klst og fá svo bella í mat og hosta kokteilapartý smile

vil líka koma þ´vi á framfæri að ég sakna Ásdísar og finnst ömurlegt að hún sitji ekki heima á kvöldin að sakna íslands :/

blöggens!

Jæja, loksins hendi ég inn eins og 1 stk bloggi smile er bara búin að vera hörmulega upptekin undanfarið!

Var beðin um að taka við dominos búð í RVK á meðan að verslunarstjórinn þar fór í sumarfrí og hefur bara gengið mjög vel smile en ég á bara morgundaginn eftir og þá er ég komin aftur á Akranesið mitt góða og fæ þar af leiðandi aðeins meira frí en þó ekki mikið smile

Svo eru breytingar í farvatninu í vinnumálunum í október en það kemur bara í ljós þegar að líður að þvi smile

Annars er minn unaðslegi bústaður kominn á sinn stað í Húsafelli og kominn pallur og heitur pottur og alles =) við skelltum okkur í útilegu í Húsafell í ágúst krakkarnir og ég og Hjalti nutum góðs af þessum 2 bústöðum sem ma og pa eiga þar =) kíkti svo 1 nótt helgina eftir það líka og ætla mér að fara aftur næstu helgi wink

alltaf sól í húsafelli!!!bigsmile

En írskir dagar voru þessa helgi og fóru bara að mestu leyti vel fram smile ég og Silla höfðum þann vafasama heiður að vera með þeim síðustu sem að fóru heim af ballinu og vaknaði svo gífurlega hress seint og síðarmeir á sunnudag

annars er ég búin að vera veik í dag sem að er meiri horror en vanalega því að foreldrar mínir létu flytja stöð 2 og tilheyrandi uppp í bústað og hef ég því ekkert til að gleðja mig við. Í gær horfði ég á sportið á stöð 1 heillengi áður en ég fattaði hvað það væri leiðinlegt, í dag er ég að horfa á real housewives of orange county og var að enda við að horfa á age of love! er alveg með hroll dauðans!

En þetta ætti að duga í bili .. styttist í afmælið mitt rétt rúmlega mánuður og mæli ég með því að allir fari að safna bigsmile

og ásdís! það er ósanngjarnt að skamma mig ef að þú stendur þig ekki sjálf wink (sakna btw búsa sad)

Þór og UJ taka höndum saman

Ungir jafnaðarmenn og Þór, Félag ungra sjálfstæðismanna á Akranes lýsa yfir stuðningi við ákvörðun bæjarstjórnar á Akranesi um móttöku flóttafólks sem búið hafa við ómannúðlegar aðstæður í Al-Waleed flóttamannabúðunum.

Félögin munu standa fyrir hitting í Hvíta húsinu (Þorpinu) fimmtudaginn 5. júní kl. 20:00 fyrir unga fólkið, þar sem hægt verður að ræða málin og spyrja spurninga.

Umræður og léttar veitingar í boði fyrir þá sem vilja.

Sjáumst þar! smile

UJ og Þór



Ég mæti að sjálfsögðu... en mætir ÞÚ!?

í fréttum er þetta helst....

Ekki mikið bloggnæmt í fréttum..

Síðasta laugardag afrekaði ég það að útskrifast og var mikið stress í gang, redda fleiri stólum og borðum fyrir veisluna, mætti ógreidd og hálfmáluð í myndatöku o.s.frv.

En mikið gladdist ég þegar ég sá að ég hafði verið hækkuð upp í 10 í sálfræði og náði því 3x10 á þessari önn smile

Útskriftin sjálf var helst til of löng en samt alveg þess virði, enda er þetta eitthvað sem að ég ætla mér bara að gera einu sinni.

Strax eftir útskrift var síðan haldið smá kaffisamsæti hérna á skólabrautinni þar sem að systkini foreldra minna, systkini mín og mínir vinir kíktu og fékk ég margar flottar gjafir.

Svo var tekið til og hjálpað mömmu að þrífa, horft á eurovision með öðru auganu áður en brunað var upp í Æðarodda þar sem að ég, Fedda, Vera, Emmý og Bjens héldum 200 manna útskriftarteiti smile
kvöldið gekk að mestu leyti vel fyrir sig og vorum ég og Fedda síðastar heim um 5 leytið smile

vikan hefur svo liðið í hálfgerðu vinnu og reykjavíkurferða móki, ég og Rebekka skunduðumst til RVK á mánudag að skila nokkrum gjöfum og kaupa bækur fyrir sumarskólann, en þótt að ég sé útskrifuð er ég ekkert hætt að læra, ætla að skella mér í lögfræði 103 og spænsku 102 í sumar og fara svo í fatasaum, skapandi skrif og stærðfræði í haust í FVA smile síðan var bara vinna um kvöldið og vinna á þriðjudag.

í gær var ég í fríi og tók mér smá hjólatúr, kíkti á Rebekku í vinnuna og aðeins upp á dómó að læra að elda nýjan rétt sem að við ætlum að bjóða á, svo hjólaði ég heim og eldaði pasta fyrir faðernið og skemmti mér svo i langan göngutúr með karíinu smile

í dag fór ég svo til RVK með Karítas og Lindu að versla föt fyrir árgangsmót og náði ég að versla með 2 kjóla og buxur fyrir gjafabréfið sem ég fékk frá mínum yndislegu dómó starfsmönnum :* takk elskurnar..

á morgun er svo það sem maður hefur beðið eftir i 5 ár..

fyrsta árgangsmót '87 árgangsins á Akranesi.. þar sem að við erum þekkt fyrir að vera frekar awesome árgangur verður vonandi ógeðslega gaman bigsmile en fjerið byrjar um 4 leytið þegar að við hittumst upp í skóla smile ætla að vígja pelann sem að ég fékk í útskriftargjöf en magga og ragga gáfu mér m.a. ígrafinn pela smile sem mun innihalda eitthvern unaðslegann snafs á reunioninu..

svo er bara vinna framundan í næstu viku og svo erum við í ungum sjálfstæðismönnum að fara að brasa svolítið smile

en sökum reunions missi ég af ættarmóti um helgina og vona ég bara að foreldrar mínir og fleiri skemmti sér vel smile

svo er bara að bíða eftir að bústaðurinn verði kominn upp, en verið er að mála að innan og ekki langt í að hann verði kominn á sinn stað, búið að panta öll húsgögn og svoleiðis =)
verður sko ekki amalegt að geta skotist í smá bústaðarteiti eða smá bústaðar relaxation! gaf mömmu og pabba einmitt nýja party og co í silfurbrúðkaupsafmælisgjöf wink svo það verður hægt að hafa stuð á minni-minni borg wink

en ég bið ykkur bara vel að lifa og jafnvel að kommenta til að gleðja mitt litla hjarta.

no one wants to be defeated...

Manchester United unnu meistaradeildina áðan og aðra eins geðshræringu hef ég ekki upplifað!!!!!
Ég horfði á leikinn hér í góðu yfirlæti með foreldrum mínum sem eiga btw silfurbrúðkaupsafmæli í dag.

Strax þegar Ronaldo skoraði þá byrjaði ég að grenja! ég höndla ekki svona pressu! =) pabbi sagði að ég myndi aldrei höndla að fara á Old Trafford því að ég myndi grenja svo mikið =)

En þegar að Lampard jafnaði þá grenjaði ég ekki! ég varð reið!

í hálfleik var svo borðuð dýrindis nautasteik með bakaðri karböku og salati, mjög svo ljúft!

og það sem eftir var leiksins og framlengingarinnar varð ég áfram reið!!!!

var alls ekki sátt með mína menn, voru alveg sofandi!

Svo þegar að komið var í vítaspyrnukeppnina var ég að fara yfir um, og þegar að Ronaldo brenndi af komu aftur tár.. en í 5tu vítaspyrnu Chelsea ákvað handsome maðurinn hann John Terry að brenna af.. alveg bara fyrir mig og þá kom geðshræringin aftur, ég hoppaði og skoppaði um, gargaði, tárin léku og ég veit ekki hvað og hvað..

og það magngerðist bara þangað til að Anelka brenndi af, ég var alveg handviss uma ð gamla brýnið myndi setja boltann inn og það væri ekkert sem að van der saar gæti gert.. en sú varð ekki raunin og unnum við meistaradeildina áðan!!!!!

Hversu fallegt moment, sá Ronaldo gráta og hlæja til skitpist í geðshræringu á meðan John Terry labbaði á milli og fann sér öxl til að grenja á, vorkenndi honum samt rosalega!!!

Sá uppáhalds krúttíbolluna mína hann Anderson hoppa og skoppa um eins og hann gerði þegar að við unnum deildina bigsmile sá nani og wes brown getting it on eins og þeir væru á heitum klúbbi á ibiza!



Sjá krútta..


magnþrungið moment og besta brúðkaupsgjöf sem að foreldrar mínir gætu óskað sér held ég smile


En að öðru!!!
ég er lúði eins og kom fram í kommenti við síðustu færslu!!!

í gær átti ég s.s. að mæta á fund með skólameistara þar sem að ég er að fara að útskrifast, en ég var búin að bíta það í mig að hann væri í dag og svaf því bara út með símann á silent.. vaknaði svo um hádegið og hringdi upp í skóla til að tjekka afhverju þau væru að hringja og skildi eftir skilaboð til harðar sem hringir svo og spyr mig hvort ég ætli ekkert að útskrifast og svoleiðis! og druslaðist ég á þennan fund um 4 leytið!

eeeennn...
einkunnirnar eru komnar í hús!
ÍSL503 - 8
LAN103 - 10
SÁL103 - 9
ÞÝS303 - 7
ÞÝS403 - 7
ÍSL783 - 10

nokkuð sátt fyrir utan þýskuna, en ég er svo sem enginn þýsku snillbert svo að ég verð að láta þetta duga smile

annars er það bara alls herjar pæjuskapur á morgun, neglur, litun, vax, klipping, litun smile verð ossa pæja á lördag!

Er samt búin að vera mökk dugleg eftir leikinn, fór upp á dómó og náði í símann, því að petra er í uglöndum svo að ég hef vinnusíma í 2 vikur nuna og 2 vikur aftur í júlí..

tók svo allt til inni hjá mér, viðraði sængurnar og yfirdýnuna, fór svo í bað og er núna að fara ða setja hreint á rúmið, verður óttalega ljúft að sofa =)

annars bið ég ykkur heil að lifa ! og ég fæ bellann minn heim á föstudaginn bigsmile

og ég blogga ekki aftur fyrr en fólk fer að kommenta af viti! er alveg brjál!!!

kveðja E r i k B o e l!!!!!!

P.S. vonast til að sjá þá sem fengu boðskort uppá æðarodda á laugardaginn wink
og ef að við erum að gleyma eitthverjum endilega láta mig vita =)

sad

nenniggi að blogga ef enginn kommentar sad

common people..

Úff.. þurfti að skjótast út í pussa áðan og það var svona hryllingsmyndaþoka!

beið bara eftir að freddie kruger eða leatherface eða eitthver random flesh eating morðingji kæmi og skæri mig í sundur með önglinum sínum!!!


en annars þá eru foreldrar mínir komnir í ferðahug og fóru þau upp í bústað um síðustu helgi... smile
nú eru ekki nema nokkrar vikur í að risa flotti bústaðurinn verði settur á sinn stað og þá mun ég sko njóta þess að flatmaga þar á pallinum með eins og 1 stk öl að ná mér í tan wink

við tókum okkur til og hittumst hérna nokkur vel valin ungmenni og sulluðum í bjór wink sumir urðu blekaðari en aðrir en ég var bara stillt p kíkti á mörkina smá og svo aðeins á rúntinn áður en ég kúrði mig wink

vaknaði svo eldsnemma til að skúra og ætlaði mér sko að horfa á kærastana mína verða meistara..

en nei.. þynnkan tók völdin og ég rétt náði síðasta korterinu..

en sigurinn var ljúfur!!!! sérstaklega þar sem að við unnum á stigum, ekki markatölu smile

fékk bæði tár í augun og mega hroll þegar að fergie (í black eyed peas) tók við bikarnum fyrir hönd hinna flottu gauranna wink

eeeeeennn.. ég var með bólu, er núna með sár.. og byrja í prófum á fimmtudaginn!!!

útskriftardressið er komið á hreint, útskriftardeitið líka og nú er bara verið að redda matching outfitti fyrir hann wink svo verður tekið illa á því!!!

annars er alltaf að bætast í djammplanið.. verður líklegast staffapartý um helgina =)


eigum við samt að ræða markið hjá Giggs?
hann var flottastur þegar að ég var 9 ára og er ennþá flottastur!
hefur meira að segja fríkkað slatta smile var eitt sinn svo helvíti ófríður




Enda þetta með ljúfri mynd af elskhugum mínum að hampa bikarnum !

verst samt að ég er að vinna 21 maí =( en þá eiga foreldrar mínir silfurbrúðkaupsafmæli, hefði verið gott að fagna meistaradeildartitlinum með þeim á brúðkaupsdaginn! en ég kem ekki heim fyrr en eftir miðnætti !!!

það var btw tekið illa í þá hugmynd mína að fá tímabundið sjónvarp og sýn á dómó! sad

Sætar






Erum við að tala um að þessar tvær voru blekaðar á dimmisjón daginn?!?!?!? en samt drullu myndarlegar wink