My Opera is closing 3rd of March

Like a drifter I was born to walk alone..

I'd rather be hated for who I am, than loved for who I am not

Sjálfsefi..

Í dag og í gær hef ég verið veik heima, er með eitthverja flensudrullu. Ekki nóg með það að mér líði illa útaf veikindunum þá er ég að drepast úr samviskubiti, þoli ekki að vera veik ein heima, Bæði þá vantar mig í vinnuna, ekki það að ég sé að sega að ég sé ómissandi, svo er ég líka að missa af slatta af peningum fyrir þessa 2 daga. Sem ég þarf verulega á að halda.

En annars hef ég haft nægann tíma til að hugsa þessa síðustu 2 daga og hef komist að því að ég þjáist af verulegum sjálfsefa. Það er eiginlega sama á hvaða sviði það er, mér tekst alltaf að efast um sjálfa mig að eitthverju leiti.

Mér finnst ég aldrei standa mig nógu vel í neinu sem að ég tek mér fyrir hendur, þrátt fyrir að ég geri alltaf mitt besta. Mér finnst ég ekki standa mig nógu vel í skólanum, vinnunni, eða hugsa nógu vel um fjölskylduna mína og vini mína, samt geri ég alltaf mitt besta.

Og undanfarið hef ég farið að efast svolítið um framtíðarplön mín, þar sem að ég hef miðað allt nám mitt að framtíðarplönum mínum. Og sérstaklega hef ég farið að hugsa um það að ég hef haft það í planinu lengi að verða blaðamaður, en núna er ég farin að efast um það hvort að það henti mér, hvort að ég geti skrifað, hvort að það henti mér að skrifa for a living, og hvort að ég eigi eftir að höndla námið sem að ég ætla í. Það var alltaf planið hjá mér að fara í háskólann um leið og ég útskrifast úr borgó, en núna er eitthvern veginn komið í planið að reyna að vinna aðeins áður, þroskast etc. En núna er ég auðvitað farin að efast um það hvort að það sé rétt ákvörðun.

Ætti að banna mér að vera veik og hafa nægann tíma til að hugsa, vildi að maður gæti sett filter á hugsanir, "bannað að hugsa um hluti sem að fá þig til að efast um sjálfa þig og hugsa meira"
Væri ósköp sweet..

annars eru það bara kvef og hósta kveðjur frá aumingjanu á skólabrautinni :*

Ætla btw ekki á jólaball sökum veikinda minna, ætla frekar að vinna, má ekkert við því að tapa meiri penge o

Svefninn laðar..líður hjá mér..doit...

Comments

Unregistered user Wednesday, November 29, 2006 11:58:19 PM

linda sif writes: íris íris íris.. enn og aftur ertu að valda mér þvílíkum vonbrigðum!! engin útskriftarferð, og nuna.. ekkert ball! hlusta ekki á svona kjaftæði, við ætluðum að hafa svo gaman:D hehe! jæja.. sjáumst .vonandi. í vinnunni í fyrramálið tjátjá

Unregistered user Wednesday, November 29, 2006 11:58:26 PM

linda sif writes: íris íris íris.. enn og aftur ertu að valda mér þvílíkum vonbrigðum!! engin útskriftarferð, og nuna.. ekkert ball! hlusta ekki á svona kjaftæði, við ætluðum að hafa svo gaman:D hehe! jæja.. sjáumst .vonandi. í vinnunni í fyrramálið tjátjá

Unregistered user Thursday, November 30, 2006 12:05:23 PM

Oddný writes: ég er í fýlu. ekkert ball? gvuð.

Unregistered user Thursday, November 30, 2006 3:17:24 PM

Dagný writes: ekki vera að efast um sjálfa þig =) ég hef trú á að þú getir gert það sem þú vilt =) hörku dugleg alltaf ;) ;* en jéss, ég er að vinna næstu 2 helgar og síðan fáum við okkur öl ;D

Write a comment

New comments have been disabled for this post.