My Opera is closing 3rd of March

Like a drifter I was born to walk alone..

I'd rather be hated for who I am, than loved for who I am not

wiggy wiggy i'm getting jiggy

jæja.. þótt enginn lesi bloggið mitt lengur er ég að hugsa um að blogga smá smile

Ég og Rósa systir ákváðum að láta rokkstjörnudrauma okkar rætast og skráðum okkur í gítarnám og er fyrsti tíminn á mánudaginn bigsmile Get ekki beðið eftir að við systur verðum syngjandi og spilandi hér og þar um bæinn wink

Annars tókum við systurnar og Guðrún auka systir okkar þvílíkt Singstar djamm á föstudaginn, man því miður lítið eftir því því að ég var ógeðslega ofurölvi og fór m.a. heim í krummafót. Salvar og Doddi Gylfa kíktu svo á okkur og við kíktum á mörkina í stanslausa gleði..

Annars var dagurinn í dag wicked bigsmile Strax eftir skóla kíkti ég í bæinn að kaupa mér hlaupaskó á 17.000 sem var alveg morð, en pabbi borgaði svo það var ekki rosalegt morð smile Svo fór ég og náði í símann hans pabba í viðgerð og kíkti svo í Góða Hirðinn. Eins og alltaf þá missi ég mig þegar ég fer þangað og fór þar út með margar margar plötur og nokkrar bækur smile Einnig hafði ég keypt mér bækur á bókasafninu hérna fyrr um daginn o ég er gömlu plötu og bóka sjúk..

Kíkti svo í kringluna og keypti afmælisgjafir handa minni ástkæru systir og Sædísi minni, en Sædís mín á fyrsta stórafmælið sitt á sunnudaginn smile og svo keypti ég mér skó og kjól p og sæta espresso bolla, því að espresso bollarnir sem við eigum eru ekki kúl og ég er eina manneskjan á heimilinu sem drekkur espresso svo ég þarf að hugsa sjálf um að drekka úr sætum bollum p

Svo fór ég og hitti Regínu mína á hressó yfir kakóbolla og bjór, en reggý mín ætlar að yfirgefa landið í 2 mánuði í sumar og skella sér til Mexico, ekki amalegt, ég á eftir ða sakna hennar sjúklega.

Eftir það fór ég til Lilju minnar, við ákváðum að hittast stelpurnar úr Krogerup því að Lilja er að fara að flytja til Danmerkur á þriðjudaginn og er ég strax byrjuð að sakna hennar, höfðum það ógeðslega kósý með nachos krogerup style, gvacamole og alles, náðum að slúðra og spjalla þvílíkt. smile Yndislegt að hitta þær stöllur, get ekki beðið eftir að komast út til Danmerkur að hitta Lilju og djamma með henni og Hm-ast með henni smile



Sætust í 70's party í skólanum smile með sígó í annari og drykk í hinni wink

Annars er líka merkisdagur kominn núna, fyrst það er kominn 25.janúar, hún Svandís mín, Vinkona nr 1 er fimmtug í dag og óska ég henni innilega til hamingju með það smile Enda mæt kona hún Svanka beib bigsmile



Hér er Svankan með krípinu sem hún fæddi og svo undurfagra barnabarni sínu á spáni í góðu stuði

Annars er ég að hugsa um að kíkja til læknis því ég er búin að vera með killer hálsbólgu svo lengi og er að drepast í kjálkanum sad hugsa það sé útaf jaxlinum en efast um að hálsbólgan sé útaf því :/

þetta ætti að duga í svona 2 vikur =) Enda mjög upptekin á næstunni, vinna næstu 2 helgar, einkaþjálfun 3svar í viku, gítartímar og svo þorrablót, og auðvitað skólakvikindið þar inn á milli smile



Endurnýjaði kynni min við þennan fola þegar ég fann culture club plötu í góða hirðinum í dag wink

I gotta know right now.. before we go any further..bloooooooogg

Comments

Unregistered user Tuesday, March 6, 2007 4:48:37 PM

Heiðar Snyrtir... writes: nei, hæ elskan:** langt síðan ég heyrði síðast í þér, við verðum að endurtaka seinasta leik og gera hann enn meira spennandi=) get eiginlega ekki beðið því að ég er með margt í kollinum á mér akkúrat núna;) annars finnst mér glatað að það skuli engin lesa bloggið þitt lengur en ég skal reyna að vera virkari í því eftir að ég fékk netið aftur. en bið að heilsa í bili tjá bella:**

Write a comment

New comments have been disabled for this post.