It has got it's mojo back on..
Thursday, May 3, 2007 12:21:23 AM
Ég er nú ekki þekkt fyrir voðalega háfleyg blogg, viðfangsefni mín ná sjaldan hærra en nýja pilsið mitt eða eitthvað undarlegt sem að ég og Rebekka afrekuðum. En í dag er annað hljóð í mér.
Ég er orðin svo pirruð á því hvað maður nýtur lítillar persónuverndar hér á Íslandi. Síðustu daga hefur mjög indæl kona hringt í mig að meðaltali þrisvar á dag og alltaf hef ég komið mér undan því að tala við hana, þessi kona er starfsmaður Capacent Gallup.
Hún hefur byrjað á að kynna sig og svo tilkynnt mér að hún sé að vinna við það að hringja í viðskiptavini ákveðins banka og spurja þau hversu ánægð þau séu með þjónustuna og það hefur pirrað mig svo lítið að hún skuli vita að ég sé í viðskiptum við þennan tiltekna banka.
Svo áðan þegar að hún hringdi, rétt á meðan ég var að borða að sjálfsögðu þá ákvað ég bara að spurja hana hvernig í andsk. hún vissi að ég væri í viðskiptum við þennan tiltekna banka og þá kom það bara í ljós að hún hafði ekki græna glóru og sagði mér bara að hringja í bankann minn til þess að spurja hvernig hún og fyrirtækið sem hún vinnur við viti að ég sé í viðskiptum við þennan banka.
Ekki misskilja mig mér er svo sem alveg sama að fólk viti við hvaða banka ég skipti, en mér finnst bara frekar kjánalegt að fólk geti bara nálgast þessar upplýsingar eins og ekkert sé, ég hef ekki gefið Capacent Gallup leyfi til þess að vita persónulega hluti um mig og að mínu mati þá eru bankaviðskipti mín frekar persónuleg.
Finnst frekar kjánalegt að maður þurfi ekki að gefa leyfi fyrir því að svona upplýsingar berist á milli aðila
En að öðrum og meira gleðilegri efnum. Í dag lauk þrautagöngu minni, ég er búin að vera sveitt, reið, pirruð og með ljótuna í margar vikur af stressi yfir að redda öllu fyrir síðasta skóladaginn, það var ekki allt tip top hjá mér, en þetta reddaðist. Ég er reyndar ennþá reið, pirruð og með ljótuna en það skiptir engu máli, ég er komin í nokkura daga frí, sem ég gæti notað til þess að skrifa 12 heimspeki ritanir eða til þess að klára að mála herbergið mitt, hugsa þó að ég eyði því sofandi eða full ef að ég þekki mig rétt.
Kíkti í party hjá ungum jafnaðarmönnum á Laugardaginn, var ágætlega staðið að þessu þó svo þessar kommúnistadruslur séu bara ekkert sætar ;*
Alla vega, that should do for now
baráttukveðjur frá verkalýðsírisi sem fór ekki í kröfugöngu með þessum 7 sem fóru í gær, en notaði tímann í staðinn í að versla föt
allaballakratar
Sjáiði allaballakratana þarna, þeir eru allir frekar normalt (kemur mér á óvart?
) nema þessi í horninu vinstra megin, what is up with him?

Unregistered user # Thursday, May 3, 2007 12:09:59 PM