kosningar og próf!
Wednesday, May 16, 2007 2:25:14 AM
Jæja, nú eru 6 og hálf klst í síðasta prófið mitt sem er í stærðfræði og sátum ég, Ragga og Fjölnir sveitt á mörkinni áðan að reyna að læra. Svo þegar prófið er búið er ég komin í sumarfrí! Alla vega í nokkra daga þangað til að ég byrja í fullri vinnu í Byko.
Kosningarnar um helgina fóru ágætlega fram, ríkisstjórnin hélt þó að það hafi verið tæpt á tímabili og kosningavakan hjá okkur fór mjög vel fram. Frambjóðandi nr 9 var komin vel í glas og skemmtum við okkur við það að ímynda okkur hvernig það yrði svo ef að við fengjum 100% atkvæða í NV kjördæmi og Þórdís kæmist á þing =) Yrði yndislegt að sjá hana svona drukkna í viðtali
En kosninganóttin virðist ekki hafa farið jafn vel fram því að morguninn eftir þegar að ég staulaðist skelþunn að kaupa mæðradagsgjöf handa sætustu mömmu í heimi sá ég að glugginn á herberginu sem að ég sef í núna hafði verið brotinn og bíllinn minn var allur úthræktur og fór ég þá alvarlega að velta því fyrir mér hvaða svakalegu óvini ég ætti =)
En annars þá lenti ég í frekar óskemmtilegri reynslu á sunnudaginn, var skelþunn í vinnunni að tala um hvenær næsta prófið mitt yrði, og hélt ég að það yrði á þriðjudaginn þegar að pæjurnar í vinnunni komu því á framfæri að það yrði á mánudagsmorguninn. Ég sem hafði ekkert lært fyrir prófið og ætlaði mér að nota allan mánudaginn í að læra panikkaði gjörsamlega og fékk því að hætta frekar snemma i vinnunni og lærði til 5 um nóttina og vaknaði svo snemma og hitti rebekku upp í skóla og við lærðum þar til prófið byrjaði. En auðvitað rústaði ég þessu prófi eins og mér einni er lagið svo að panikkið var nánast til einskis.
En annars þá s.s klára ég prófin á morgun, fer svo að vinna til 10, lúlla svo smá og skelli mér svo til .dk með leppnum =) Ætlum við að dunda okkur við það að heimsækja góð vini okkar HM, Lilju, Markus, Boten Önnu og fleiri. Jafnvel að við komumst aftur í samband við mótmælandann í okkur því að við vorum svo rosalega aktífar í mótmælunum við ungdomshuset og kannski skellum við okkur bara á vindlakassa mótmælin =)
Annars ætlum við að dvelja, djamma og versla í góðu yfirlæti í .dk frá 17-22 og svo þegar ég kem heim hendi ég mér á fullt í vinnuna, en ég mun aðeins eiga 3 fríhelgar í sumar =) Sem er svo sem í lagi mín vegna.
En núna er mál að fara í bælið, ætla mér að vakna kl 7 og éta restina af stærðfræðibókinni svo ég verði reddí í prófið =) stelpan náttúrulega með hæstu vetrareinkunina svo ég get ekki fallið á prófinu =) Verst að stærðfræði er ekki mín sterkasta hlið.
so true ->