My Opera is closing 3rd of March

Like a drifter I was born to walk alone..

I'd rather be hated for who I am, than loved for who I am not

Föstudagur til fjár..

Það var föstudagur í mér þegar að ég rölti útúr byko, þreytt eftir liðna viku á leið út í helgina sem að var uppfull af möguleikum.

Ég steig upp í pussujóa og kveikti á viðtækinu, á fóninum var hið víðfræga klassíska lag Smack Dat með Akon og Eminem og túnaði ég það upp er ég hélt mína leið.

Leið mín lá í áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins en þangað hafði ég aldrei stigið inn sem lögleg manneskja.

Ég gekk að spírarekkanum, greip með mér eina bokku og kom mér vel fyrir í föstudagsröðinni.

Slengdi svo bokkunni á borðið ásamt VISA kortinu og glotti við tönn, afgreiðsludaman rannsakaði kortið grunsamlega áður en hún óskaði mér til hamingju með afmælið á mánudaginn.

Með bros á vör og bokku fulla af gleði hélt ég mína leið..

æææðiI still got sand in my shoes...

Write a comment

New comments have been disabled for this post.