My Opera is closing 3rd of March

Like a drifter I was born to walk alone..

I'd rather be hated for who I am, than loved for who I am not

I still got sand in my shoes...

Skólinn er kominn á fullt og er ég bara með ágætistöflu! Engar eyður og byrja alltaf kl hálf 9 nema á miðvikudögum þá byrja ég korter í 10! bigsmile
Nokkuð gott !
Annars er ég í fínum áföngum!

ENS703 sem er bækur og kvikmyndir
ÍSL683 sem er líka bækur og kvikmyndir
ÍSL403 sem er bókmenntasaga
NÁT113 sem er jarðfræði
ÞÝS203 .. sem er þýska =)
SAG203 sem er nútímasaga
FÉL353 sem er um fjölmenningarsamfélag
Og svo ætla ég að taka FÉL203 í fjarnámi =)

Svo er ég bara að vinna í Byko með skólanum, fer eftir skóla alltaf og er til sex og er svo annan hvern laugardag =) þannig að það er barasta fínt.

Annars þá er mikið um að vera núna, Busaball og busun á föstudaginn =) Ég, Vera og Fedda ætlum sko að vera fremstar í brotti fylkingar á ballinu, enda ekki annað hægt, orðnar eldgamlar og svoleiðis =) Jafnvel að maður verði bara böðull líka, aldrei prufað það =)

Svo er kokteilpartý/ammli hjá Beppesen á laugardaginn og það verður vonandi mega, enda kokteilpartýin okkar ekki þekkt fyrir annað en að vera dúndurpartý!!! =)

Svo á Sunnudaginn ætlar bórabjór að yfirgefa mig, hún þykist vera að fara að læra að vera læknir í ungverjalandi, en ég veit hvað hún er að pæla, hún er að fara í skiptinám, erótískir dansarar frá Austur-Evrópu koma hingað til lands að dansa en hún ætlar að fara að dansa í Austur-Evrópu til þess að mynda mótvægi gegn þessu.

Karí hélt awesome kveðjupartý fyrir prinsessuna á laugardaginn. En ég var bara stutt, var að fara að vinna á laugardaginn og var að klára pensilínkúr og svoleiðis.

Er samt ótrúlega vonsvikin, fólk commentar aldrei á bloggið mitt sad

Annars þá er Karí byrjuð í eitthverju BDSM dæmi.. náði mynd af henni í gær..



Sæt!

Föstudagur til fjár.. nýja tattooooið

Comments

Unregistered user Thursday, August 30, 2007 5:44:32 PM

Ólöf Lilja writes: Það verður aldrei hægt að toppa mitt kokteilapartí nema allar fari úr að neðan hjá Beppu!! :) Þá verður það kannski hægt. En ég ætla eflaust á ballið og á busunina, en ég ætla þó ekki að verða böðull þar sem mér var hent oní karið seinast þegar ég ákvað það :P Sjáumst á morgun...

Unregistered user Sunday, September 2, 2007 9:07:02 PM

Ása =] writes: ohh... var búnað skrifa mjög vandað og stílfært komment.. En ef security dæmið þarna vill ekki svona fagleg komment þá bara höfum við það þannig!! Ég var samt aðallega að efast um áreiðanleikann í leiðbeiningum þínum við að tala við svía! og velta mér uppúr minni sorg yfir að komast ekki í næstu kokteilapartí... =( Vi ses om tre månader! Hej då!

Write a comment

New comments have been disabled for this post.