My Opera is closing 3rd of March

Like a drifter I was born to walk alone..

I'd rather be hated for who I am, than loved for who I am not

angie... aaaaaaaaaannnnngie... you can't say we never tried..


Jólaskapið gjörsamlega hellist yfir mann þótt að bórinn manns ætli að heiðra ungverjaland með nærveru sinni þessi jólin, en hún kemur heim eftir áramót og þá er hægt að knúsana wink

Búin að kaupa alla pakka nema pakkann handa téðum bóra.. keypti líka veglegar gjafir frá mér til mín wink

Fór í dag í jólaklippinguna og er eins og tyra banks myndi segja.. fearce!!!!

Tók einnig til í tölvuherberginu í dag og þurrkaði af öllu og var góð dóttir wink Enda er ég algjör subba og allt út í ösku hérna útaf þegar ég stelst til að reykja inni þá geri ég það hér smile

Annars er planið ljúft fram að jólum..

á morgun ætla ég að vakna kl 9 takk fyrir og skella mér upp í Grundaskóla sem boðflenna þar sem að yndisfríður frændi minn er að leika vitring í jólahelgileiknum og snoppufríð frænka mín leikur jólasvein í hinu sívinsæla jólasveina leikriti sem að 7.bekkur setur alltaf upp.. ég brilleraði nú sem Stekkjastaur hér um árið wink

Á föstudaginn er svo frekjudósin, þokkadísin og megakærastan Karítas Giss að fara að útskrifast og verður maður ekki að heiðra pæjuna með nærveru sinni þar sem að maður var að kaupa rándýra útskriftargjöf handa henni í gær wink Aldrei að vita nema að Sigga og Gissi bjóði upp á góðar veigar í tilefni því að örverpið þeirra er laust við framhaldsskólann p

Annars gekk mér ágætlega í prófunum.. 2x6 4x7 og 2x8.. sem gerir meðal einkunina 7 .. hefði samt alveg verið til í að fá hærri einkannir, en þegar maður er að jöggla 24 einingum þá er það oft erfitt.. og er stefnan sett á útskrift 24.maí 2008 wink þannig að endilega taka daginn frá því það verður kick ass partý p



Ég í kick-ass fíling á útskriftardaginn

Annars er ég svolítið sjeikí .. alltaf þegar að það líður nær og nær útskrift hellist þvílík tilvistarkreppa yfir mig.. Hvað á ég að gera næsta haust? Nú er einum frábærasta kafla í lífi mínu að fara að ljúka og ég þarf að fara að taka ákvarðanir eins og fullorðin manneskja.. á ég að vinna í ár, á ég að ferðast um heiminn? á ég að fara í HÍ í bókmenntafræði eða íslensku? Eða á ég að fara í Bifröst í HHS? eða er það HR og lögfræðin.. sussubía.. alltof erfitt.. langar samt soldið að taka það litla sem ég á eftir í ljósmyndarann áður en ég fer lengra smile alltof mikið að velja um..

Annars er ég að hlusta á Sailing með Rod Stewart sem er awesome lag en vekur upp minningar um skrítinn fýr er ég sá eitt sinn..
Við stelpurnar vorum í hægðum okkur að rölta á strikinu.. á horninu næst við stærstu Mekka búð striksins (mekka H&M að sjálfsögðu)..
En það er ekki í frásögur færandi nema fyrir það að á þessu horni stendur maður sem gengur greinilega ekki alveg heill til skógar.. að springa úr lífsgleði og syngja I am sailing aftur og aftur og aftur og aftur.. fær mig alltaf til að brosa þegar ég hlusta á þetta lag smile

Náði mér í awesome safndisk um daginn.. þar sem téð sailing lag og angie með rolling stones er... eins og flestir vita er lagið samið um kviðmágkonu mína (fyrrum konu bowie sæta) og á jaggerinn að hafa samið það fyrir hana þegar hún kom að honum og bowie saman í bólinu smile En alltaf fyrst þegar ég heyrði þetta lag þá var sölvið mitt að góla það.. og það gólaði alltaf "ANGEL... AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAANGEL... YOU CAN'T SAY WE NEVER TRIED" smile svolítill misskilningur í gangi..

En annars vil ég bara óska ykkur gleðilegra jóla og vonast eg til þess að þið gangið hægt um gleðinnar dyr um jólin!!! Svo sjáumst við öll eiturhress á breiðinni 2 í jólum smile



Ég í stuði á 2í jólum ballinu í fyrra wink

thinkaboutitJólakort

Comments

Unregistered user Thursday, December 20, 2007 7:31:24 PM

Anna Kvaran writes: já þú ert fyndin:D

Unregistered user Friday, December 21, 2007 4:09:29 PM

Karí STÚDENT ;D writes: áfengar veigar í boði Gissurs... bara til að hella þig fulla og snerta á dónalegum stöðum ;) grill... algjör óÞarfi að kaupa rándýra gjöf... NOT :D híhíhí Knúúús hlakka til að sjá þig í kvöld

Unregistered user Saturday, December 22, 2007 7:55:45 PM

bóri bjór writes: eg elska mekka.. ég vildi óska að ég gæti verið þar núna... eða að spúna þig.. so hard to choose.. hlakka óendanlega til eftir tólf langa daga að fá að koma og taka þig aftan frá.. klemzi ;* ps. óviðeigandi komment?

Write a comment

New comments have been disabled for this post.