My Opera is closing 3rd of March

Like a drifter I was born to walk alone..

I'd rather be hated for who I am, than loved for who I am not

í fréttum er þetta helst....

Ekki mikið bloggnæmt í fréttum..

Síðasta laugardag afrekaði ég það að útskrifast og var mikið stress í gang, redda fleiri stólum og borðum fyrir veisluna, mætti ógreidd og hálfmáluð í myndatöku o.s.frv.

En mikið gladdist ég þegar ég sá að ég hafði verið hækkuð upp í 10 í sálfræði og náði því 3x10 á þessari önn smile

Útskriftin sjálf var helst til of löng en samt alveg þess virði, enda er þetta eitthvað sem að ég ætla mér bara að gera einu sinni.

Strax eftir útskrift var síðan haldið smá kaffisamsæti hérna á skólabrautinni þar sem að systkini foreldra minna, systkini mín og mínir vinir kíktu og fékk ég margar flottar gjafir.

Svo var tekið til og hjálpað mömmu að þrífa, horft á eurovision með öðru auganu áður en brunað var upp í Æðarodda þar sem að ég, Fedda, Vera, Emmý og Bjens héldum 200 manna útskriftarteiti smile
kvöldið gekk að mestu leyti vel fyrir sig og vorum ég og Fedda síðastar heim um 5 leytið smile

vikan hefur svo liðið í hálfgerðu vinnu og reykjavíkurferða móki, ég og Rebekka skunduðumst til RVK á mánudag að skila nokkrum gjöfum og kaupa bækur fyrir sumarskólann, en þótt að ég sé útskrifuð er ég ekkert hætt að læra, ætla að skella mér í lögfræði 103 og spænsku 102 í sumar og fara svo í fatasaum, skapandi skrif og stærðfræði í haust í FVA smile síðan var bara vinna um kvöldið og vinna á þriðjudag.

í gær var ég í fríi og tók mér smá hjólatúr, kíkti á Rebekku í vinnuna og aðeins upp á dómó að læra að elda nýjan rétt sem að við ætlum að bjóða á, svo hjólaði ég heim og eldaði pasta fyrir faðernið og skemmti mér svo i langan göngutúr með karíinu smile

í dag fór ég svo til RVK með Karítas og Lindu að versla föt fyrir árgangsmót og náði ég að versla með 2 kjóla og buxur fyrir gjafabréfið sem ég fékk frá mínum yndislegu dómó starfsmönnum :* takk elskurnar..

á morgun er svo það sem maður hefur beðið eftir i 5 ár..

fyrsta árgangsmót '87 árgangsins á Akranesi.. þar sem að við erum þekkt fyrir að vera frekar awesome árgangur verður vonandi ógeðslega gaman bigsmile en fjerið byrjar um 4 leytið þegar að við hittumst upp í skóla smile ætla að vígja pelann sem að ég fékk í útskriftargjöf en magga og ragga gáfu mér m.a. ígrafinn pela smile sem mun innihalda eitthvern unaðslegann snafs á reunioninu..

svo er bara vinna framundan í næstu viku og svo erum við í ungum sjálfstæðismönnum að fara að brasa svolítið smile

en sökum reunions missi ég af ættarmóti um helgina og vona ég bara að foreldrar mínir og fleiri skemmti sér vel smile

svo er bara að bíða eftir að bústaðurinn verði kominn upp, en verið er að mála að innan og ekki langt í að hann verði kominn á sinn stað, búið að panta öll húsgögn og svoleiðis =)
verður sko ekki amalegt að geta skotist í smá bústaðarteiti eða smá bústaðar relaxation! gaf mömmu og pabba einmitt nýja party og co í silfurbrúðkaupsafmælisgjöf wink svo það verður hægt að hafa stuð á minni-minni borg wink

en ég bið ykkur bara vel að lifa og jafnvel að kommenta til að gleðja mitt litla hjarta.

no one wants to be defeated...Þór og UJ taka höndum saman

Comments

Unregistered user Friday, May 30, 2008 8:50:20 PM

bergþóra =) writes: til hamingju littla útskrifaða hnoðmúffukrúttið mitt.. :* skemmtu þér mega vel í kvöld :D

Unregistered user Monday, June 2, 2008 5:31:40 PM

Ásdís writes: Mig langaði smá að koma á reunion, en ákvað að vera í staðin að jafna mig eftir endajaxlatöku, skálaði samt fyrir ykkur í sýkla og verkjalyfjum.. vita líka allir að 10 ára reunion eru miklu meira töff :) Ég bíð enn eftir að þú uppfyllir gamalt loforð um langt og ástamlegt slúður bréf Knús á þig:*

Write a comment

New comments have been disabled for this post.