My Opera is closing 3rd of March

Like a drifter I was born to walk alone..

I'd rather be hated for who I am, than loved for who I am not

blöggens!

Jæja, loksins hendi ég inn eins og 1 stk bloggi smile er bara búin að vera hörmulega upptekin undanfarið!

Var beðin um að taka við dominos búð í RVK á meðan að verslunarstjórinn þar fór í sumarfrí og hefur bara gengið mjög vel smile en ég á bara morgundaginn eftir og þá er ég komin aftur á Akranesið mitt góða og fæ þar af leiðandi aðeins meira frí en þó ekki mikið smile

Svo eru breytingar í farvatninu í vinnumálunum í október en það kemur bara í ljós þegar að líður að þvi smile

Annars er minn unaðslegi bústaður kominn á sinn stað í Húsafelli og kominn pallur og heitur pottur og alles =) við skelltum okkur í útilegu í Húsafell í ágúst krakkarnir og ég og Hjalti nutum góðs af þessum 2 bústöðum sem ma og pa eiga þar =) kíkti svo 1 nótt helgina eftir það líka og ætla mér að fara aftur næstu helgi wink

alltaf sól í húsafelli!!!bigsmile

En írskir dagar voru þessa helgi og fóru bara að mestu leyti vel fram smile ég og Silla höfðum þann vafasama heiður að vera með þeim síðustu sem að fóru heim af ballinu og vaknaði svo gífurlega hress seint og síðarmeir á sunnudag

annars er ég búin að vera veik í dag sem að er meiri horror en vanalega því að foreldrar mínir létu flytja stöð 2 og tilheyrandi uppp í bústað og hef ég því ekkert til að gleðja mig við. Í gær horfði ég á sportið á stöð 1 heillengi áður en ég fattaði hvað það væri leiðinlegt, í dag er ég að horfa á real housewives of orange county og var að enda við að horfa á age of love! er alveg með hroll dauðans!

En þetta ætti að duga í bili .. styttist í afmælið mitt rétt rúmlega mánuður og mæli ég með því að allir fari að safna bigsmile

og ásdís! það er ósanngjarnt að skamma mig ef að þú stendur þig ekki sjálf wink (sakna btw búsa sad)

Þór og UJ taka höndum saman kokteilapartý!

Comments

Unregistered user Wednesday, July 9, 2008 3:04:01 AM

The Booze writes: Ég hafði löggildaafsökun, en hef þó bætt úr þessu núna. Ég býð spennt eftir rómatískri bústaðarferð með Badda Kúl næsta sumar, bið að heilsa honum, mátt allveg skella kveðju á Línu líka.

Write a comment

New comments have been disabled for this post.