No title
Monday, August 13, 2007 11:57:59 PM
Jæja, þá er tvítugasti afmælisdagur minn liðinn að lokum.
Loksins er ég gjaldgeng í áfengis og tóbaksverzlun ríkisins! Jeij!
Minnsta gleðin tengist því þó, því að hún Þórlína Jóna móðir mín var svo vel tímasett fyrir 20 árum síðan að hún ákvað að poppa mér út á sama dag og verslunarmiðstöðin Kringlan opnaði, og í tilefni af því var mér boðið til athafnar í dag í kringlunni þar sem að mér, og tveimur öðrum samafmælingum mínum var veitt gjafakarfa í beinni í Íslandi í dag (ég er að segja ykkur það, skúnkurinn er strax búinn að plögga sér í fréttirnar)
En já, ég bjóst við einhverri lítilli bastkörfu með nokkrum gjöfum í, en þetta var svo miklu meira en það.
Það sem að ég fékk var meðal annars:
• Málverk frá Gallerí Fold
• Gjafakörfu með kaffi og fleiru frá Kaffitár
• Gjafakörfu með kaffi og fleiru frá Te og kaffi
• Klút og leggings frá spútnik, en ég skilaði reyndar leggingsunum og verslaði mér 2 kíló af kjólum í staðinn takk fyrir, 4 kjóla og 1 stk tösku..
• Bol, Regnhlíf, snyrtibuddu og tösku frá only, en skilaði bolnum því hann var ekki alveg minn tebolli, og ætla að versla eitthvað fallegt þar síðar.
• Cruser skó frá skór.is, enn og aftur ekki minn tebolli svo að þeim var skilað líka
• Gjafabréf að verðmæti 20.000 kr frá Levis búðinni, en þar sem að ég er ekki þekkt fyrir að versla þar þá er það til sölu.. any takers?
• Gjafabréf að verðmæti 10.000 kr frá Blend búðinni
• Reikning í Kaupþing banka með innistæðu upp á 5000kr
• Gjafakort í kringlunni með 20.000 kr innistæðu
• Picnic sett frá símanum, s.s kæli/hitatösku með öllum græjum og teppi sem pakkast saman í tösku, ég og bergþóra erum strax búnar að plana rómantískt picnic með rauðvíni og ostum
• Nánast alla Marc Anthony hárvörulínuna og Spray on tan og tan body scrub frá Lyf og Heilsu
• Gjafabréf á kringlukránni að verðmæti 3000kr
• Gjafabréf frá Subway og Sbarro
• Gjafabréf fyrir 10x 1 klst í Ævintýralandi kringlunnar, en það týndist því miður :/
• Ótrúlega flott hálsmen, eins og það sem að mig hefur dreymt um í mörg ár, en því miður var pakkinn ekki merktur svo að ég hef ekki hugmynd um frá hverjum það er.
• Green Tea sturtusápu frá L’occitane
• Peningaveski frá Marc o’Polo en ég skilaði því, vil frekar peninga en peningaveski
• Viltu vinna milljarð? Sá yðar sem syndlaus er og konungsbók fékk ég frá Eymundsson, en ég átti þær allar svo að ég skilaði þeim og fékk innleggsnótu sem fer mjög líklega upp í skólabækur.
Ef að þetta var ekki besti afmælisdagur sem að ég hef átt þá veit ég ekki hvað.
Svo þegar að ég kom heim þá var Rósa systir mín í heimsókn og hún laumaði nú að mér einhverjum aur í tilefni dagsins Takk fyrir það :*
En dagurinn í dag er ekki bara merkisdagur fyrir þær sakir að ég og kringlan eigum afmæli, heldur á meiriparturinn af minni nánustu fjölskyldu líka afmæli í dag. Rósa er 31 árs í dag, Pabbi er 54 ára og mamma er 48 ára, og já það er bara fengitími 1x á ári hjá okkur.
Svo í gær átti prinsessan mín afmæli, prinsessan sem að ég fékk næstum því í afmælisgjöf fyrir 12 árum síðan hún júlía mín varð 12 ára í gær
En svo er ég líka búnað fá leyni afmælisgjöf frá karí
En já, besti afmælisdagur ever, og þið munið það pæjurnar mínar að ykkur er boðið í mat á Skólabrautinni á morgun.
Hinn heimsfrægi kokkur án klæða Bjarni ætlar að elda af sinni heimskunnu snilld með konu sína hana Línu sér til halds og trausts, en ef að ég þekki hana rétt þá snarar hún hnallþórum fram úr erminni eins og ekkert sé.
Takk fyrir mig allir, og ég vona það sé svona gaman fyrir alla að verða tvítugir =)

Fæ svo svona kvikyndi á morgun
kommentið!