My Opera is closing 3rd of March

Like a drifter I was born to walk alone..

I'd rather be hated for who I am, than loved for who I am not

Subscribe to RSS feed

with no lovin' in our soles.. and no money i our coats...

Alveg síðan að ég sá Þrek og Tár eftir Ólaf Hauk Símonarson í uppsetningu einhvers áhugamannaleikfélags í Borgarfirðinum (systir min var að leika) hefur lagið Þrek og tár verið uppáhalds lagið mitt og þá helst í flutningi Erlu Þorsteinsdóttur (stúlkunnar með lævirkjaröddina) og Hauks Morthens.

Þetta lag og Taboo með Spoon (ófánlegt?) eru mín uppáhalds íslensku lög.. bæði þá eru melódían og textinn ótrúlega falleg og hefur þetta lag staðið með mér í gegnum súrt og sætt.

Þegar ég finn fyrir votti af vanlíðan eða tilvistarkreppu er vaninn að skella laginu á fóninn og láta sig hverfa inn í unaðsheiminn sem að það skapar.

Mæli með því að þið náið ykkur í þetta lag og látið það sefa sorgir ykkar ef að ykkur líður illa.


Þrek og tár


Viltu með mér vaka er blómin sofa
vina mín og gang suður að tjörn.
Þar í laug við lágan eigum kofa.
Lékum við þar okkur saman börn.
Þar við gættum fjár um fjölvar nætur
fallegt var þar út við hólinn minn.
Hvort er sem mér sýnist að þú grætur.
Seg mér hví er dapur hugur þinn.


Hví ég græt og burt er æskan bjarta
bernsku minnar dáin sérhver rós.
Það er sárt í sínu unga hjarta
að sjá hve slokkna öll þín skærstu ljós.
Ó hve fegin vildi ég verða aftur
vorsins barn og hérna leika mér.
Nú er lamað þrek mitt, þrotinn kraftur
þunga sorg á herðum mér ég ber.


Hvað þá gráta gamla æsku drauma,
gamla drauma bara ór og tár.
Láttu þrekið þrífa stýristauma.
Það er hægt að kljúfa lífsins ár.
Kemur ekki vor að liðnum vetri?
Vaikni ei nýjar rósir sumar hvert?
Voru hinar fyrri fegri betri?
Feld'ei en glöð og hugrökk vert.

Þú átt gott þú þekkir ekki sárin,
þekkir ei né skilur hjartans mál.
Þrek er gull en gull eru líka tárin,
guðleg svölun hverri þreyttri sál.
Stundum þeim er þrekið brýnt og kraftur
þögul höfuð féllu tár um kinn.
En sama rósin sprettur aldrei aftur,
þótt önnur fegri skreyti veginn þinn.

Höfundur texta: Guðmundur Guðmundsson
Höfundur lags: Otto Lindblad


Annars er lítið að frétta hér af skólabrautinni.

Í gær fór sætasta mamman í laser aðgerð og fór svo í eftir tjekk í dag og er sjónin hennar orðin jafngóð og þeir bjuggust við að hún myndi verða eftir 6 mánuði =)

Ég eyddi nóttinni ælandi, meðal annars yfir allt gólfið hjá mér og þurfti að fara í bað í nótt og vekja mömmu til að þrífa, með svona litlu barna gubbupest þar sem maður ræður ekkert við sig sad

Pabbi skellti sér í tölvubúð fyrir litla barnið sitt í dag og ég fékk loksins réttan harða disk í flakkarann svo ég get hætt að spekka Grey's í tölvnni minni =)

Annars þá var útborgað í dag og auðvitað fékk ég alltof lítið útborgað, þoli ekki að standa í svona veseni...

fór að hugsa áðan hvað ég á eftir að fara á útsöluna í eymundsson og kaupa mér nokkrar vel valdar bækur, og jafnvel í fatabúða útsölur að kaupa mér nokkra vel valda kjóla.. ..en allt kemur fyrir ekki .. ég er í verslunarbanni þangað til að danmerkur ferð kemur..

Reyndi að blogga málefnalega um daginn en það fór ekki betur en svo að bloggið neitaði að seiva það.. held það sé merki um að ég eigi ekkert að vera að blogga málefnaleg.. enda ekkert mjög málefnaleg..

Annars stafar vanlíðan dagsins af því að Bórakrúttið mitt kom að kveðja mig áðan, en hún leggur af stað í loftið til Ungverjalands eftir 1 og hálfa klst.. sad Sakna hennar strax..

En það er kominn tími til þess að ég dvelji smá í draumalandi svo að ég verði fersk fyrir þessa 2 tíma sem ég þarf að mæta í á morgun.

Kem með annað blogg á næstunni þar sem að ég mun vonandi nenna að skrifa um eitthvað annað en gubb o

Kv. Snoop Dogg intern.. resident? .. attending?
February 2014
M T W T F S S
January 2014March 2014
1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28