Sjúkrasagan..
Sunday, February 10, 2008 1:00:47 AM
Jæja, síðustu 2 dagar hafa ekki verið glimrandi skemmtilegir fyrir mig :I
Síðustu vikur hef ég verið frekar orkulaus og andstutt og stundum verið að fá svona svima, en ég var ekkert að pæla í því nema ég var veik í þessari viku og varð enn orkulausari svo að mamma hvatti mig til að fara til læknis..
..Ég fór til læknis á fimmtudaginn sem að hélt bara að ég væri ekki að fá nógan svefn en hún ákvað samt að senda mig í blóðprufu á föstudagsmorguninn.
Ég vaknaði á föstudaginn og skellti mér í blóðprufu og dreif mig svo bara í skólann, fór í þýsku, lærði í eyðunni minni og fór svo í sálfræði.. í hádeginu kíkti á loks á símann minn og þar voru 10 missed calls frá minni unaðslegu móður..
..ég hringdi í mamms sem var alveg brjál og ég átti að drífa mig heim og fara upp á spítala því að það átti að leggja mig inn. Ég var s.s bara með 62 í blóði en fólk er vanalega með 120 og svo var ég rosalega lág í járni.. s.s. það vantaði helminginn af blóðinu minu í mig
Ég dreif mig uppá spító þar sem við tóku alls kyns spurningar og fínerí áður en ég var dressuð í sjúkrahús náttföt og send ofan í rúm! þar sem blóðprufur og fínerí voru teknar.
Það kom öllum, bæði læknum og hjúkkum mjög á óvart að ég stæð í lappirnar því að það vantaði jú helminginn af blóðinu í mig.. en þetta sínir bara og sannar að ég er superman
Það sem bjargaði mér var að mamma mætti í vinnuna kl 3 (reyndar á aðra deild) en hún kom með náttföt, séð og heyrt og tölvuna mina handa mér. sem var vel þegið þótt ég hafi ekki komist á netið.
En s.s útúr þessum blóðprufum var ákveðið að gefa mér 2 einingar af blóði.. s.s 2 poka af annara mana blóði.. og var það látið leka inn á nokkrum klukkustundum.. þar sem að engar auka verkanir voru af því fékk ég að lúlla heima en þurfti að mæta aftur í morgun til þess að athuga árangurinn..
.. í morgun var svo tekin aftur blóðprufa af mér og ég látin kúra í lazy boy í 4 klst meðan beðið var niðurstaðna og er ég s.s komin upp í 79 í blóði og fékk að fara aftur heim..
En núna þurfa þeir bara að komast að því hvort ég sé með blóðleysi tengt járnskorti (það er víst hægt) eða hvort að það blæði eitthvers staðar inn í mér, en það telst mjög líklegt..
þannig að næstu 2 vikur þarf ég að koma annan hvern dag og fá einn poka af járni í æð, því að járn eykur blóðið eða eitthvað.. síðan á næstu dögum taka við alls kyns skoðanir, magaspeglun, kvensjúkdómalæknisskoðun o.fl.
En blóðið er s.s að aukast eitthvað þótt að ég sé óttalega orkulaus og aumingjaleg og svo að vonandi komast læknarnir að því sem fyrst hvað amar að mér svo að ég geti bara losnað við það
En ákvað bara að skrifa blogg um hvað ég er í gangi því ég var að fá endalaus msg á msn og nennti varla að vera að svara sökum orkuleysis og að mér finnst þetta ekkert skemmtilegt mál..
bottom line s.s. : vantar helminginn af mínu blóði, er núna með 2 poka af annara manna blóði rennandi um æðar mínar (ég vona að það sé úr súpermanneskju svo að ég fái súperpowers), miklar rannsóknir taka við og ég fer 2 hvern dag upp á spító í soldinn tíma að fá helv. nál í æð og járn að leka þar inn
Er óttalegur aumingji þessa dagana svo get well soon straumar myndu koma sér mjög vel =)
Kv. Lilli Lasarus..

Svona leit ég út í gær nema með 2 rauða poka og ég þurfti að liggja því að eini staðurinn sem æð fannst á var olnbogabótin.. og svona mn ég líta út annan hvern dag næstu 2 vikur.. jeij for me..