Update á sjúkrasögu..
Tuesday, February 12, 2008 11:47:20 PM
Smá update á sjúkrasögu:
Nú er ég búin að fara í gyn skoðun, ómskoðun og magaspeglun en samt virðist ekkert vera að koma í ljós, en þeim fannst líklegast að eitthvað myndi finnast á þessum stöðum. Þannig að nú er bara að bíða og vona að járn og b12 gjöfin lagi eitthvað og allt líti betur út í næstu blóðprufu
En málið er bara það að ég er hrædd.. virkilega hrædd við allt þetta, hvað varð um allt þetta blóð? afhverju fór það? mun það ekki örugglega lagast? afhverju verður mér alltaf illt í 2 daga eftir að ég fæ nál í mig og svoleiðis
þetta veldur mér óttalega miklu hugarangri og ég er rosalega lítil í mér þessa dagana.
En það þýðir samt ekki, ég er búin að senda öllum kennurunum mínum tölvupóst og þeir svöruðu allir nema einn og voru mjög skilningsríkir en ég ætla samt að drífa mig í skólann í morgun, þótt að ég sé svona orkulaus og vilji helst bara liggja upp í rúmi þá þarf maður að fá smá human contact til þess að verða ekki geðveikur.
En annars er ég rosalega fegin að ég var hætt að reykja áður en þetta allt dundi yfir því að ég hefði örugglega orðið geðveik á að hanga stanslaust inni á spítala án þess að mega reykja og á móti því keðjureykt á meðan ég væri heima.
En systir min kom á Akranes á sunnudagskveldið og í nótt skelltu hún og vinkona hennar sér til tenerife. Skil ekki alveg afhverju þær fóru á þessum tíma, en á meðan hun var að labba inn í vélina var hún að tala við pabba í símann og meðal aldurinn í fluginu var 70 ára.
Svo er hin systir min á leiðinni til danmerkur með sínum ektamaka um helgina og fær íris einn gríslíng til sín á fimmudagskvöld og ætlar hann að vera hér á heimilinu yfir helgina, eða þangað til á sunnudag en þá mun ég kúra með gríslíngunum öllum heima hjá þeim.
En já... s.s það er ekkert komið út úr niðurstöðunum og búið að útiloka það sem að þeim þótti líklegast, svo nú er bara að bíða og vona að það komi eitthvað gott í ljós
au revoir..
Nú er ég búin að fara í gyn skoðun, ómskoðun og magaspeglun en samt virðist ekkert vera að koma í ljós, en þeim fannst líklegast að eitthvað myndi finnast á þessum stöðum. Þannig að nú er bara að bíða og vona að járn og b12 gjöfin lagi eitthvað og allt líti betur út í næstu blóðprufu
En málið er bara það að ég er hrædd.. virkilega hrædd við allt þetta, hvað varð um allt þetta blóð? afhverju fór það? mun það ekki örugglega lagast? afhverju verður mér alltaf illt í 2 daga eftir að ég fæ nál í mig og svoleiðis
þetta veldur mér óttalega miklu hugarangri og ég er rosalega lítil í mér þessa dagana.En það þýðir samt ekki, ég er búin að senda öllum kennurunum mínum tölvupóst og þeir svöruðu allir nema einn og voru mjög skilningsríkir en ég ætla samt að drífa mig í skólann í morgun, þótt að ég sé svona orkulaus og vilji helst bara liggja upp í rúmi þá þarf maður að fá smá human contact til þess að verða ekki geðveikur.