My Opera is closing 3rd of March

Like a drifter I was born to walk alone..

I'd rather be hated for who I am, than loved for who I am not

Subscribe to RSS feed

Long kiss goodnight.

Jæja, maður verður að fara að taka þetta blogg sitt af krafti, því að samkvæmt Óla Haralds þá eru blogg eins konar portfolio um líf manns.

En já, í gær höfðum ég og Dagný það kózý og horfðum á Long Kiss Goodnight, fengum smá nostalgíu fíling.

Og um helgina ætla ég að fara með henni heim í sveitina og kíkja víst í e-ð party í Húsafelli.. næntín beibí!

Held að ég sé hætt að lifa spennandi lífi því að ég hef ekkert til að skrifa um.

Páskafrí á næstunni og þá ætla foreldrar mínir að skella sér til Costa Del Sol meðan ég hangi heima og rotna. Því óska ég hér með eftir því að einhver taki það að sér að vera foreldri minn um páskana, fela eggið mitt og elda góðann mat fyrir mig.

Þótt það sé ekkert svakalegt álag á manni í skólanum þá get ég ekki beðið eftir páskafríinu, þá get ég bara kúrt allan daginn undir 3 sængum án þess að þurfa að hugsa um að vakna eða fara í bað eða neitt! Get bara verið skítug og nasty ein heima.. mmmm

En já Þar sem að samband mitt og Dagnýar er að komast á alvarlegt stig þá fæ ég að hitta foreldra hennar um helgina. Okkur finnst vera kominn sá tími þar sem að hún eyðir miklum tíma með mér og foreldrum mínum. Svo erum við jafnvel að hugsa um að byrja að búa, þar sem að hún eyðir hvort sem er svo miklum tíma hér. Hugsanlega förum við að hugsa út í barneignir á næstunni.



February 2014
M T W T F S S
January 2014March 2014
1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28