My Opera is closing 3rd of March

Like a drifter I was born to walk alone..

I'd rather be hated for who I am, than loved for who I am not

Subscribe to RSS feed

comeback!!!

Þar sem að Ásdís, einn af örfáum vinum mínum sem skoða bloggið mitt og kommenta ákvað að væla óbeint um nýja færslu hef ég ákveðið að henda einni inn..

Bara samt af því að Ásdís lifir svo "ó"spennandi lífi í US and A og ég veit að líf hennar væri óbærilegt án blogganna minna.

En annars er ekkert í fréttum héðan af Skólabrautinni, ég fór jú til Danmerkur og eyddi allt of miklu þar, vegna svívirðilega lágs gengis krónunnar.

Svo tók páskafrí við þar sem að ég vann eins og hestur og skellti mér á 1 djamm, partý hjá Unnari og Anítu og mörkina.

Svo tók bara skólinn við og þar sem að maður er orðinn fágaður útskriftarnemi hefur líf mitt einkennst af tilvistarkreppum, dimmisjon búninga reddi, dimmisjon almennu reddi, þýsku, ritgerðum, prófum og fleiru sem fylgir annarlokum.

En það er allt að smella saman fyrir dimmisjonið sem að verður þann 25. apríl og vona ég að það verði ógleymanlegur dagur =) svo er það bara útskriftin 24. maí, árgangspartý 30. maí og svo bara endalaus vinna í sumar og allt næsta ár, því að ég tók þá ákvörðun að fara ekki í háskólann strax, ætla að vinna eitt ár á meðan ég ákveð mig hvað ég vil gera, vil ekki ana út í háskólanám án þess að vera ákveðin, þó er ég búin að narrowa valið niður í þrjá hluti, lögfræði í HR, Heimspeki, Hagfræði og Stjórnmálafræði (HHS) á Bifröst eða íslensku í HÍ. eins og sést hef ég mjög breytt áhugasvið og því mjööög erfitt að velja. smile

Annars er ég bara í smá krúttkasti, systir mín kom hingað í dag með yngsta krílið sitt og verð ég eiginlega bara að sína ykkur myndir af dúllunum mínum smile þ.e.a.s systkinabörnum mínum..



Fyrst eru það prinsarnir mínir Símon Orri og Tristan Sölvi sem að sjást hér óendanlega sætir í brúðkaupi foreldra sinna smile Tristan kom hérna í dag undir því markmiði að öskra á mig svo að ég myndi vakna, en hann virðist hafa miklar áhyggjur af því hversu mikið frænka hans sefur.. þess vegna varð hann fyrir miklu vonbrigðum þegar ég var vakandi, en við lásum eina bók saman og fengum okkur svo plasiks! (kellogs special K) Símon var að byrja að æfa sund og hann er eitthvað það yndislegasta sem ég hef kynnst =) var að leita að blaði í dag og fann umslag sem hann hafði gert handa mér áður en ég flutti til danmerkur.. utan á umslaginu stóð "til íris. þú ert best" og innan í voru fullt af myndum sem hann hafði teiknað af drekum og riddurum smile



Næst er það prinsessan hún Júlía Björk sem er að verða 13 ára, finnst það frekar súrt þar sem að það þíðir að ég er að verða 21 árs o Júlía er algjört æði, komin smá á gelgjuna en samt yndisleg og bráðgáfuð eins og frænka sín smile gaf mér ótrúlega fallegt málverk um daginn sem að hún málaði sjálf smile



Svo eru það hinir prinsarnir mínir, fann ekki betri mynd af þeim en bæti úr því næst smile en þetta eru Arnar Freyr og Mikael, synir bróðir míns, svo er bróðurómyndin þarna á myndinni líka (sönnun fyrir því að ég eigi bróðir Ásdís) þeir eru algjör krútt, Arnar var að fermast núna en því miður missti ég af því útaf Danmerkurferðinni, Mikael er líka algjör perla, þeir knúsa mann alltaf og kyssa þegar að maður hittir þá og eru bara alveg hreint æðislegir =)

Eins og þið sjáið (með þið meina ég ásdís og bergþóra) þá er ég mjög stolt af öllum krúttunum mínum, og svo er líka annað á leiðinni smile En ég held samt að það sé eitthvað að mér, er alltaf að dreyma að ég sé ólétt og svo í algjöru krúttkasti núna..

eitthvað eru eggjastokkarnir að láta vita af sér.. en þeir munu ekki verða notaðir fyrr en ég og Rebekka getum framkvæmt hugmynd okkar um súperbarnið sem Ásdís ætlar að bera fyrir okkur.. múhahaha

from skólabraut with love
bjarnadóttir, íris bjarnadóttir
February 2014
M T W T F S S
January 2014March 2014
1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28