May angels lead you in
Wednesday, May 10, 2006 3:39:49 PM
Helgin var frekar undarleg hjá mér 
Á föstudaginn skellti ég mér í próf og massaði heimspekina!
kellan getur þetta og reyndi svo að hjálpa lötu óléttu Sædísi að læra undir enskupróf en hún var eins og óþekkur krakki !
Svo fór ég heim að snæða og horfa á neighbours og náði svo í Ernu því að við ætluðum að fara að þrífa bílzenegger og láta henda undir hann sumardekkjunum.
Afrekuðum það að fara með bílinn og láta skipta um dekk og kaupa okkur svampa til þess að þrífa bílinn, en eitthvern veginn enduðum við á því að leigja okkur sumarbústað og vorum komnar upp í munaðarnes eftir smástund
Fórum bara tvær og tókum skóladót og yndislegann mat með og höfðum það bara kósí.
Á föstudagskvöldinu grilluðum við okkur pizzu og héngum í pottinum og yfir sjónvarpinu. Mr Tiny kom til okkar og kúrði svo með okkur um nóttina því að hún nennti ekki að keyra heim
Á laugardaginn var GEÐVEIKT veður og vorum við á sundfötunum meiri partinn af deginum, annað hvort í pottinum eða liggjandi á pallinum
Skelltum okkur svo í Borgarnes að kaupa Ís og á mótorhjólasýningu =) Fórum svo aftur upp í bústað að tjilla og elduðum dýrindis kjúlla. Svo kom Binnzenegger til okkar og við skelltum okkur í borgarnes þar sem að ég og Erna eignuðumst þvílikt "sæta" aðdáðendur. Skutluðum svo Jónasi upp í Dúddaholt þar sem að Dúddi reddaði okkur bensíni, kornvíni og kolum!?
kíktum svo smá á ball í venus áður en við fórum upp í bústað í pottinn og að grilla banana. Horfðum svo á Scrubs og clueless áður en við fórum að sofa 
Daginn eftir var svo hent sér í pottinn og sólbað, þrifið bústaðinn og beðið eftir löggunni sem kom og opnaði bílið hans binna því að læsingarnar biluðu. Svo stoppuðum við í hyrnunni og snæddum áður en haldið var heim á leið.
Þegar ég kom heim þá var pabbi minn bara búinn að kaupa hjólhýsi, sem er reyndar komið á sölu núna því að hann sá annað flottara og svo skellti ég mér í matarboð til Gurru frænku og endaði þetta yndislega kvöld á því að fara í pottinn til Karitasar og svo að spila party og co hérna á skólabrautinni.
Mánudagurinn fór í leti og rúnt með Rebbzen
Þriðjudagurinn fór í dönskupróf og vinnu og í dag ætla ég að loka mig út í hjólhýsi og læra fyrir náttúrufræðiprófið sem ég fer í á morgun. Er samt veikur lítill andskoti en hef engann tíma til þess að liggja í rúminu og vola.
Þykir leitt að þurfa að enda þessa færslu á sorglegu nótunum en á Sunnudaginn fórst maður sem að ég kannaðist við í mótorhjólaslysi, pabbi Danna vinar míns. Hann John Cramer var mjög góður maður og er leitt að sjá hann fara, vil ég bara votta, Danna, Geiru, og öðrum aðstandendum samúð mína.
Þeir deyja ungir sem guðirnir elska..
Lifið heil og reynið að meta þá sem að í kringum ykkur eru, því að maður veit aldrei hvenær tíminn er á þrotum..
Hvíl í friði John..

Á föstudaginn skellti ég mér í próf og massaði heimspekina!
kellan getur þetta og reyndi svo að hjálpa lötu óléttu Sædísi að læra undir enskupróf en hún var eins og óþekkur krakki !
Svo fór ég heim að snæða og horfa á neighbours og náði svo í Ernu því að við ætluðum að fara að þrífa bílzenegger og láta henda undir hann sumardekkjunum.
Afrekuðum það að fara með bílinn og láta skipta um dekk og kaupa okkur svampa til þess að þrífa bílinn, en eitthvern veginn enduðum við á því að leigja okkur sumarbústað og vorum komnar upp í munaðarnes eftir smástund
Fórum bara tvær og tókum skóladót og yndislegann mat með og höfðum það bara kósí.
Á föstudagskvöldinu grilluðum við okkur pizzu og héngum í pottinum og yfir sjónvarpinu. Mr Tiny kom til okkar og kúrði svo með okkur um nóttina því að hún nennti ekki að keyra heim
Á laugardaginn var GEÐVEIKT veður og vorum við á sundfötunum meiri partinn af deginum, annað hvort í pottinum eða liggjandi á pallinum
Skelltum okkur svo í Borgarnes að kaupa Ís og á mótorhjólasýningu =) Fórum svo aftur upp í bústað að tjilla og elduðum dýrindis kjúlla. Svo kom Binnzenegger til okkar og við skelltum okkur í borgarnes þar sem að ég og Erna eignuðumst þvílikt "sæta" aðdáðendur. Skutluðum svo Jónasi upp í Dúddaholt þar sem að Dúddi reddaði okkur bensíni, kornvíni og kolum!?
kíktum svo smá á ball í venus áður en við fórum upp í bústað í pottinn og að grilla banana. Horfðum svo á Scrubs og clueless áður en við fórum að sofa 
Daginn eftir var svo hent sér í pottinn og sólbað, þrifið bústaðinn og beðið eftir löggunni sem kom og opnaði bílið hans binna því að læsingarnar biluðu. Svo stoppuðum við í hyrnunni og snæddum áður en haldið var heim á leið.
Þegar ég kom heim þá var pabbi minn bara búinn að kaupa hjólhýsi, sem er reyndar komið á sölu núna því að hann sá annað flottara og svo skellti ég mér í matarboð til Gurru frænku og endaði þetta yndislega kvöld á því að fara í pottinn til Karitasar og svo að spila party og co hérna á skólabrautinni.
Mánudagurinn fór í leti og rúnt með Rebbzen
Þriðjudagurinn fór í dönskupróf og vinnu og í dag ætla ég að loka mig út í hjólhýsi og læra fyrir náttúrufræðiprófið sem ég fer í á morgun. Er samt veikur lítill andskoti en hef engann tíma til þess að liggja í rúminu og vola.Þykir leitt að þurfa að enda þessa færslu á sorglegu nótunum en á Sunnudaginn fórst maður sem að ég kannaðist við í mótorhjólaslysi, pabbi Danna vinar míns. Hann John Cramer var mjög góður maður og er leitt að sjá hann fara, vil ég bara votta, Danna, Geiru, og öðrum aðstandendum samúð mína.