My Opera is closing 3rd of March

Like a drifter I was born to walk alone..

I'd rather be hated for who I am, than loved for who I am not

Subscribe to RSS feed

Erfitt líf..

Undanfarið hefur mikið gerst í mínu lífi til þess að blogga um og hef ég ákveðið að blogga um það sem að var gott fyrst, og það sem var slæmt síðar.
Ég náði 30 einingum á þessari önn, sem er mjög gott, eina sem ég náði ekki var Kvikmyndun og það er af því að harði diskurinn í tölvunni minni floppaði áður en ég náði að skila verkefnunum sem ég átti að skila.
Seinusta helgi var mjög góð að vissum tímapunkti.
Á föstudaginn skellti ég mér á kaffihús með Ara og fór svo heim á fyllerí með mömmu, pabba og Rebekku, þvílíkt stuð!
Á laugardaginn skellti ég mér svo í útskriftarpartý hjá Bergþóru sætu og enduðum á mörkinni.
En á laugardagsnóttina fékk ég mjög slæmar fréttir. Jón Valur skólafélagi minn hafði séð ástæðu til þess að taka sitt eigið líf og ég vona að hann hvíli í friði.
Erfitt að sjá eftir skólafélögum sínum en ennþá erfiðara að skija afhverju fólk þarf að fara.
Vona bara að Jón Vali líði betur þar sem að hann er staddur núna og vona að hann viti að það sakna hans allir.
Maður verður hálf andalaus þegar að maður skrifar um svona hluti og því held ég að ég muni ekkert blogga meira núna, blogga líklegast aftur þegar ég kem frá Lanzarote o
Vil bara biðja ykkur öll um að læra að meta þá sem að eru í kringum ykkur og alls ekki skilja í vondu! reynið að láta alla vita hversu vænt ykkur þykir um þá og hugsið út í það að lífið er allt of stutt til þess að eyða því í eitthverja vitleysu eins og ósætti og fýlu!

En þegar eitt líf slökkar kviknar nýtt, og vil ég bara óska Siggu og Eyjó til hamingju með litlu prinsessuna sem kom í heiminn í morgun.. örugglega gullfalleg eins og móðir sín o ætla að kaupa eitthvað sætt á hana úti áður en ég fer og kíkji á hana smile

Undarlegt að hugsa til þess að vinir mans séu komnir með börn, Sigga og Zanný báðar komnar með litlar prinsessur og Sædís og Snædís með lítil kríli á leiðinni. o

En að lokum vil ég bara segja ykkur öllum að mér þykir vænt um ykkur :*


Hvíl í Friði Jón Valur, Við söknum þín!



May angels lead you in..
February 2014
M T W T F S S
January 2014March 2014
1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28