Ég geng ekki ein..
Sunday, August 27, 2006 5:25:29 PM
Nú er ég komin til danmerkur og komin í skólann og alles, og er að bræða það með mér hvort að ég eigi að halda áfram að blogga hér eða blogga bara á KRíb síðunni.. En ég er að komast á það að það sé sneðugt að hafa þetta líka svo að ég geti "einkabloggað" smá
Vil ekki alveg vera að röfla endalaust á kríbinu 
En annars þá ætla ég að skrifa eitthverja lýsingu á því hvernig undanfarnir dagar hafa verið, þótt ég hafi gert það á kríbið þá er ágætt að gera það líka hérna
Fimmtudagur 24/8
Dagurinn fór í það að klára að redda öllu sem átti eftir að redda, klára að pakka og kveðja alla. Það var mjög sárt að kveðja systir mina og krakkana og Gurru frænku, en ennþá sárara að kveðja pabba og mömmu. Dagurinn fór þó vel og ég neita því ekki að það hafi örlað á smá eftirvæntingu. Rósa og krakkarnir komu í kvöldmat svo var snæddur ís og klárað svo bara að pakka. Svo ætlaði ég að reyna að sofa smá, en vitandi það að ég gæti bara sofið í 2 klst var svo stressandi að ég ákvað bara að fara í langt bað og specca tv, svo kom það óumflýjanlega, að kveðja mömmu. Ég hafði kvatt pabba fyrr um kvöldið því hann var farinn að sofa. En á endanum sat ég bara í fanginu á mömmu að röfla eitthvað um að ég væri hætt við
Svo fórum við með töskurnar út og læstum okkur úti, og mamma þurfti að vekja pabba greyið kl hálf 4 um nótt
En Svanka beib og Rebekka voru komnar að ná í mig og ég náði að kveðja mömmu án þess að grenja, því ég var nýmáluð og ógeðslega sæt, svo var bara brunað upp á flugvöll.
Föstudagur 25/8
Við pæjurnar, ég svanka og rebba stoppuðum í esso að kaupa e-ð að éta og brunuðum svo á flugvöllinn, þegar þar var komið hittum við Hrund og Dröfn(mömmu hennar Rósu systir) í checkininu! En ég og Rebekka vorum í smá veseni, vorum báðar með 10kg í yfirvigt, en Rebekka snilli sá að fólkið fyrir framan okkur í röðinni var með lítinn farangur og við fengum að tjekka okkur inn með þeim, sem var splendid! Svo var bara rölt um fríhöfnina, keypt sér varalit, maska og svitarlyktareyði og svoleiðis, hitti líka aðeins björgvin mág minn var var á leiðinni á formúluna í Istanbul, that bastard! Eyddum tíma með Hrund og kvöddum hana svo því að hún var að fara í skóla í London.
Flugið gekk svo ágætlega fyrir sig, ég náði að dotta í svona korter með hléum, en Rebekka greip alltaf reglulega í mig og vakti mig, enda flughræddur andskoti. Svo lentum við í Köben og þar sem að við vorum svo snemma að tjekka okkur inn á Íslandi þá þurftum við að bíða hevy lengi eftir töskunum, en við settumst bara og tjilluðum. Svo náðum við að redda okkur sjálfar í lestina og niður á hovedbanegade. ÞEgar þar var komið biðu stelpurnar okkar og hjálpuðu okkur að rölta með farangurinn upp á hótel, þegar þangað var komið var bara skipt um föt og farið aðeins á strikið að kaupa nauðsynjar og svo beint upp á hótel aftur því að við vorum að fara á MASSIVE ATTACK OG CARDIGANS bestu tónleikar í heimi, segi ekki meira
á eftir að setja inn myndir og svoleiðis =) En þegar þær verða komnar, og myndböndin sem ég tók þá eigiði eftir að pissa á ykkur úr öfund!
EFtir tónleikana var svo gott veður að við ákváðum að rölta bara upp á hótel
Sofnuðum svo sælar eftir 40klst vöku
Laugardagur 26/8
Vöknuðum snemma til að fara í fisketorvet að versla, forum þangað með lest, ég náði að versla mér killer boots en lítið annað því að peningaleysið fór að segja til sín, en tókum svo smá rölt á strikinu eftir fisketorvet en þar var allt að loka svo við fórum bara á kfc að snæða og svo upp á hótel að horfa á dvd og klára að pakka.
Sunnudagur 27/8
Í dag þurftum við að vakna mjög snemma til að fara í sturtu og svoleiðis því að við áttum að skila herberginu kl 9. Okkur tókst það og tókum svo taxa niður á hovedbanegade þar sem að við ætluðum að láta geyma farangurinn því að við áttum ekki að mæta í skólann fyrr en kl 3, en nei þá var bara mökk dýrt að láta geyma farangurinn þannig að við ákváðum að hanga bara þar eins og rónar, sem var alveg fínt, kíktum í búðirnar og ég sendi smá pakka heim, Ragga og Bergþóra fóru að leita að símabúð til að láta aflæsa símunum sínum en auðvitað var allt lokað. Svo loksins eftir mikinn harmleik komumst við í lestina, kynntumst líka hevy sætum strák á lestarstöðinni, og ég dibsaði hann. Svo komum við í humlebæk, sem er bærinn sem skólinn er í en þegar þangað var komið var GRENJANDI rigning og leigubílstjórarnir voru með dólg, við pöntuðum bara 2 taxa, en það dugði okkur í köben, en hérna neituðu þeir að troða í taxana þannig að við þurftum að taka 3 bíla. En svo var komið í skólann og sagt til nafns og fengið herbergi og svoleiðis. Ég er í herbergi 43 með yndislegri danskri stelpu sem heitir Cecille og hun er rosalega ligeglad. Svo var smá stund þar sem að okkur var skipt í hópa og áttum að kynnast og svo var kvöldmatur og hérna er ég að blogga
En hér eru smá upplýsingar
Er komin með nýtt email, því ég gat bara opnað hitt í borðtölvunni heima, en emailið er irisidk@hotmail.com ef ykkur langar að senda mér bréf
Svo blogga ég líka á blog.central.is/krib
Og er komin með danskt nr sem er 0045 26993534
Sakna allra, kærlig hilsen
Vil ekki alveg vera að röfla endalaust á kríbinu 
En annars þá ætla ég að skrifa eitthverja lýsingu á því hvernig undanfarnir dagar hafa verið, þótt ég hafi gert það á kríbið þá er ágætt að gera það líka hérna
Fimmtudagur 24/8
Dagurinn fór í það að klára að redda öllu sem átti eftir að redda, klára að pakka og kveðja alla. Það var mjög sárt að kveðja systir mina og krakkana og Gurru frænku, en ennþá sárara að kveðja pabba og mömmu. Dagurinn fór þó vel og ég neita því ekki að það hafi örlað á smá eftirvæntingu. Rósa og krakkarnir komu í kvöldmat svo var snæddur ís og klárað svo bara að pakka. Svo ætlaði ég að reyna að sofa smá, en vitandi það að ég gæti bara sofið í 2 klst var svo stressandi að ég ákvað bara að fara í langt bað og specca tv, svo kom það óumflýjanlega, að kveðja mömmu. Ég hafði kvatt pabba fyrr um kvöldið því hann var farinn að sofa. En á endanum sat ég bara í fanginu á mömmu að röfla eitthvað um að ég væri hætt við
Svo fórum við með töskurnar út og læstum okkur úti, og mamma þurfti að vekja pabba greyið kl hálf 4 um nótt
En Svanka beib og Rebekka voru komnar að ná í mig og ég náði að kveðja mömmu án þess að grenja, því ég var nýmáluð og ógeðslega sæt, svo var bara brunað upp á flugvöll.Föstudagur 25/8
Við pæjurnar, ég svanka og rebba stoppuðum í esso að kaupa e-ð að éta og brunuðum svo á flugvöllinn, þegar þar var komið hittum við Hrund og Dröfn(mömmu hennar Rósu systir) í checkininu! En ég og Rebekka vorum í smá veseni, vorum báðar með 10kg í yfirvigt, en Rebekka snilli sá að fólkið fyrir framan okkur í röðinni var með lítinn farangur og við fengum að tjekka okkur inn með þeim, sem var splendid! Svo var bara rölt um fríhöfnina, keypt sér varalit, maska og svitarlyktareyði og svoleiðis, hitti líka aðeins björgvin mág minn var var á leiðinni á formúluna í Istanbul, that bastard! Eyddum tíma með Hrund og kvöddum hana svo því að hún var að fara í skóla í London.
Flugið gekk svo ágætlega fyrir sig, ég náði að dotta í svona korter með hléum, en Rebekka greip alltaf reglulega í mig og vakti mig, enda flughræddur andskoti. Svo lentum við í Köben og þar sem að við vorum svo snemma að tjekka okkur inn á Íslandi þá þurftum við að bíða hevy lengi eftir töskunum, en við settumst bara og tjilluðum. Svo náðum við að redda okkur sjálfar í lestina og niður á hovedbanegade. ÞEgar þar var komið biðu stelpurnar okkar og hjálpuðu okkur að rölta með farangurinn upp á hótel, þegar þangað var komið var bara skipt um föt og farið aðeins á strikið að kaupa nauðsynjar og svo beint upp á hótel aftur því að við vorum að fara á MASSIVE ATTACK OG CARDIGANS bestu tónleikar í heimi, segi ekki meira
á eftir að setja inn myndir og svoleiðis =) En þegar þær verða komnar, og myndböndin sem ég tók þá eigiði eftir að pissa á ykkur úr öfund!EFtir tónleikana var svo gott veður að við ákváðum að rölta bara upp á hótel