My Opera is closing 3rd of March

Like a drifter I was born to walk alone..

I'd rather be hated for who I am, than loved for who I am not

Subscribe to RSS feed

Tonn af innbyrgði reiði!

Djöfull er ég ógeðslega reið og pirruð núna!

Ég kom hingað í krogerup til að fá smá innsýn inn í blaðamennsku, því að það er það sem að mig langar að gera í framtíðinni og hér var í boði að taka blaðamennsku áfanga.

Ég er eina sem er ekki dönsk í áfanganum, ég skil ekki mikið en ég geri mitt besta. En nei, núna erum við að fara að gefa út blað og ég fæ ekki að vera með í því.

Því að ég er ekki dönsk!

Kennarinn var að fara yfir upp á töflu hvaða greinar við ætlum að hafa í blaðinu og bauð mér að koma með eitthverja uppástungu og svo sagði hann að ég mætti spurja hinar stelpurnar hvort ég mætti fylgjast með þeim skrifa!

En auðvitað var ekki í boði fyrir mig að skrifa

Þessi skóli lætur mig alltaf verða pirraðari og pirraðari.. er að hugsa um að fá að skipta um fag o Sem er frekar súrt, því að aðal ástæðan fyrir því að ég fór hingað var að fá smá innsýn í blaðamennskuna, hvort að hún væri virkilega það sem að mig langar að leggja fyrir mig í framtíðinni..

Held það sé alveg morgunljóst að mig langar ekki að vinna á dönsku dagblaði.

Ég þoli ekki að væla og vil ekki vera að væla um að fá að skrifa í blaðið "þeirra" þegar ég er klárlega ekki velkomin sad

Er ógeðslega sár og bitur og lítil í mér núna!

Eina sem að þau spurðu mig um í þessum tíma var hvort ég væri með ofnæmi fyrir eitthverjum mat því að við erum að fara í mat heima hjá kennaranum í kvöld o

Sár og bitur Íris segir bless..
February 2014
M T W T F S S
January 2014March 2014
1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28