My Opera is closing 3rd of March

Like a drifter I was born to walk alone..

I'd rather be hated for who I am, than loved for who I am not

kosningar 2007

Vil bara byrja þessa færslu á því að kvetja fólk til þess að lesa nýjasta bloggið hennar Þórdísar Kolbrúnar, en hún Þórdís er æskuvinur og félagi og einnig frambjóðandi sjálfstæðisflokksins í norð-vestur kjördæmi, sem er einmitt okkar ágæta kjördæmi, en færsluna má nálgast hér Heimasíða Þórdísar

En svo vil ég benda ykkur sem eruð að minni kynslóð á það að í staðinn fyrir að gagnrýna það sem að okkar ágæta ríkisstjórn hefur og hefur ekki gert síðustu ár á það að kynna ykkur aðeins hvernig málin voru þegar að það var síðasta vinstri stjórn hér á landi.

Byrja á því að minnast á það að vinstri stjórnin kláraði ekki einu sinni kjörtímabilið áður en að ég minnist aðeins á atvinnuleysið. Hef tekið eftir því að þeir af vinum mínum og fleirum sem að eru dyggir stuðningsmenn stjórnarandstöðuflokkanna eru mikið á móti þeirri uppbyggingu sem að núverandi ríkistjórn hefur komið á. Þau gagnrýna álverin og fleira sem að er í gangi. En þau hugsa ekki út í það gífurlega atvinnuleysi sem að var þegar að vinstri stjórnin var síðast við völd. Foreldrar mínir voru þá (og eru enn) í blóma lífsins og pabbi sem að er verktaki í sjálfstæðum atvinnurekstri var atvinnulaus 1/3 af árinu og þeir 2/3 hlutar ársins sem að hann var í vinnu fóru rétt svo í það að borga skuldirnar sem að söfnuðust á þessum 1/3 hluta sem að hann var atvinnulaus. Núna er nánast ekkert atvinnuleysi á Íslandi, minni byggðarlög úti á landi eins og t.d okkar ástkæri bær eru í fullum vexti og fullum blóma og hvað heldur fólk að margir myndu t.d búa á Akranesi ef að við hefðum ekki stóriðjuna í næsta nágrenni við okkur. On the top of our mind geta allir talið til a.m.k 10 manns sem að vinna við stóriðju og eru að þéna mikla monninga.

Ef að við hefðum ekki álver og járnblendi verksmiðju hérna þá væru engin hvalfjarðargöng, alls engin uppbygging hér á skaganum, við værum örugglega byggðarlag í svipaðri stærð og borgarnes eða aðrir minni bæjir (að þeim ólöstuðum) Er það virkilega það sem að við viljum?
Alls enga uppbyggingu á landsbyggðinni, fólk flýji af landsbyggðinni og að hún leggjist í eyði því að það eru engin störf þar? Austfirðirnir væru örugglega löngu lagstir í eyði ef það væri ekki fyrir bæði álverið í reyðarfirði og kárahnjúkavirkjun.

OG það er almennur misskilningur að það sé verið að taka allt landið undir stóriðju, það landsvæði sem notað er undir stóriðju er bara pínu pínu lítill hluti af landinu. Hvalfjörðurinn er t.d að mínu mati einn af fallegustu stöðum á landinu samt hýsir hann bæði álver og járnblendi verksmiðju. Það er alveg hægt að njóta náttúrunnar þótt að hún hafi stóriðju líka.

Að lokum vil ég minna ykkur enn og aftur á að kíkja á færsluna hennar Dísu Kollu og minna ykkur á að nýta kosningarrétt ykkar á morgun til þess að kjósa rétt. Kjósa áframhaldandi uppbyggingu, kjósa framfarir í velferðarmálum og kjósa það að við höfum það áfram jafn gott og við höfum.

Ekki hlusta bara á þá sem eru með endalaus loforð en engar áætlanir um að framkvæma, ekki kjósa þá flokka sem að leggja meiri áherslu á að sverta stjórnarflokkana í staðinn fyrir að reyna að koma sínum eigin stefnumálum á framfæri.

Setjið X við uppbyggingu..
Setjið X við D

smá fríkosningar og próf!

Comments

Unregistered user Saturday, May 12, 2007 2:01:40 AM

Þórdís Kolbrún writes: "ekki kjósa þá flokka sem að leggja meiri áherslu á að sverta stjórnarflokkana í staðinn fyrir að reyna að koma sínum eigin stefnumálum á framfæri." --> Hvað ég er hjartanlega sammála þessu. Flott færlsa, hlakka til að sjá þig á morgun. Góðar stundir! Blái plebbinn :-)

Unregistered user Saturday, May 12, 2007 11:17:19 AM

Karí writes: Samt líka ágætt ef fólk er að hafa þessa endalausu uppbyggingu og larídarí byggja álver og svona, að kannski hafa mannskap til að vinna á þessum stöðum... og þá íslenskan mannskap... Varla erum við að virkja svona mikið svo við getum flutt fleiri pólverja inní landið ;D Hehe... í dag er laugardagur og ég er ekki búin að ákveða hvað ég ætla að kjósa... óboy :)

Unregistered user Sunday, May 13, 2007 11:42:24 AM

Þórdís Kolbrún writes: Olei olei olei !! :-) Once again - Blái plebbinn

Unregistered user Monday, May 14, 2007 10:54:12 PM

sædís writes: god hvað ég er gömul...ég er búin að fara á tupperware kynningu..ókey það er í lagi..en núna er vinkona mín farin að blogga um stjórnmál!! mér kveið sko fyrir þeim degi..ég hugsaði út í þetta fyrir svona 1 og hálfri viku...bara omg hvað geri ég þegar vinkona mín skrifar um stjórnmál..þar sem ég var að skoða blogg hjá frænku minni sem er stjórnmálamaður eða eitthvað...ó boy!

Write a comment

New comments have been disabled for this post.