Thursday, October 8, 2009 7:57:01 PM
Jæja ég er í óðaönn að pakka niður fyrir okkur mæðgurnar. Úff maður ég vildi að ég ætti einhver flott föt arg. Þið verðið bara að þola mig í sömu gömlu lörfunum he he:) Ætla að bæta úr þessu hið fyrsta. Lummulumm

Veðurguðirnir eitthvað að stríða okkur en ég læt þá ekki buga mig, ég skal fara á Escape-num mínum suður og hana nú, fer bara í ríkið á selfossi og kaupi eitthvað til þess að þyngja hann svolítið he he. Allavega ég mæti með tösku fulla af góðu skapi, víni og spilum. Er búin að gefa Önnu Rafns upp númerið á lyklakassanum á Sóleyjargötu 25, svona ef hún verður á undan mér og solleiðis. Verðið bara í bandi ef þið eruð fyrstar og ég gef ykkur upp lykilorðið

Við erum í íbúð 4
knús og kremja
Sirrý
Saturday, October 3, 2009 9:54:12 AM
Hæ allar

Hvað segist? Eru ekki allar í stuði? Ég er það að minnstakosti he he. Kallinn verður í Argentínu þessa helgi, en ég er búin að koma dætrunum fyrir í pössun. Ó já ég ætla að mæta og hef heilmikið fyrir því

Þess vegna er eins gott að þið mætið og gleðjist með mér

Þegar upp kom að kallinn væri að fara til Argentínu að keppa í Wipeout á sama tíma varð ég frekar fúl og datt ekki í hug að einhver myndi nenna að passa dæturnar og hvolpana 10, EN vinkona mín ætlar að græja þetta og í staðinn fær hún 75 þúsund króna hvolp. Mér finnst það góður díll þar sem að ég vil ekki missa af þessari helgi. Hlakka geggjað til að hitta ykkur. kv. Sirrý
Monday, September 14, 2009 8:02:26 PM
Þetta átti auðvitað að vera 9.-11.okt ekki 9.-10. úff púff förum ekki að glata heilum degi
Monday, August 31, 2009 10:25:16 PM
Jæja skvísur þá er það ákveðið. Við erum búnar að bóka Sóleyjargötu 33 í Reykjavík þann 9. október - 10. október. Anna Rafns ætlar að græja fyrir okkur skötusel fyrir föstudagskvöldið, nammi namm. Ég kaupi eitthvað af mat eins og brauð, ost, smjör, mjólk og þess háttar. Svo förum við saman á laugardeginum og verslum inn fyrir laugardagskvöldið. Þá getum við rætt okkar á milli hvað okkur langar í

Er ekki annars stemmari fyrir þessu??? Það er svefnpláss fyrir 6 og sængur fyrir 6, ef við erum fleiri sem gistum þá erum við með dýnur

Þetta verður voða gaman, hlakka mikið til að sjá ykkur.
Gaman að heyra frá þér Harpa, það væri mikið gaman ef þú gætir komið, við erum ógeðslega skemmtilegar he he

Endilega láttu okkur vita hvað þú ákveður

kv. Sirrý
Líst ekkert smá vel á þetta, þarf að fara að venja drenginn við

hlakka til að sjá ykkur
Sunday, August 30, 2009 7:16:56 PM
Hæ hæ í frystikistunni minni er skötuselur sem er mjög góður t.d. vafinn í beikon og grillaður:chef: , ef einhver áhugi er að borða það. Látið mig bara vita og ég splæsi sel:D kveðja Anna Grf
Sunday, August 30, 2009 1:45:52 PM
Var að fá þær fréttir að besta vinkona mín ætli að halda uppá 30 ára afmælið sitt 10. okt. Hún á afmæli 13. sept þannig að mér datt ekki í hug að hún myndi halda uppá það þarna

Eini gallinn er að þessi helgi er sú eina í október sem er laus í stóru íbúðinni á Sóleyjargötunni

EN það getur verið að hún haldi þetta á föstudeginum, þá myndi ég bara kíkja til hennar og koma svo aftur til ykkar

Fæ ég brottfararleyfi??

kv. Sirrý
Saturday, August 29, 2009 2:05:02 PM
Hæ skvísur, væri ekki réttast að skiptast á skoðunum hér inni?
Sýnist stefna í Reykjavíkurdvöl, hvað segið þið um það?
Bæ ðe vei þá gilda reglur um Reykjavíkurpíur!!!! Það eiga allir að gista. Dóra fær kannski undantekningu út af litla snáða, en ENGINN annar

Þetta er okkar helgi og við eru ekki til viðtals, við getum vænað og dænað og gert nákvæmlega allt sem við viljum og það í göngufæri við miðbæinn.
Fyrir þær sem ekki hafa verið inná fésinu þá er verið að tala um íbúð kennó á Sóleyjargötunni

kv. Sirrý
Tuesday, November 25, 2008 3:44:08 PM
Hvað er að frétta? Gerðist ekkert í sumarbúastaðnum sem vert er að segja frá:yikes: eða er sú ferð algjört hush hush:D Hvað er annars að frétta hjá ykkur hinum. Vona að það sé allt í besta lagi hjá ykkur á þessum síðustu og verstu:cry: Allt í fína hjá okkur Ingu, kveðja Anna Grf
Wednesday, September 24, 2008 7:50:10 PM
Hæ allar
Virknin er mikil

Finnst ég vera að tala við sjálfa mig hérna inni he he he

Nýkomin frá París og alveg í skýjunum. Fínt að fara að hugsa um næsta geim. Hvað segiði er ekki góð mæting?
kv. Sirrý
Wednesday, August 20, 2008 10:15:59 AM
Hei hei allíhúbba.
Líst vel á sumarbústaðinn, læt mig ekki vanta

17. til 19. október á Flúðum vííí.
Engar afsakanir teknar gildar, er það nokkuð

Hlakka mikið til að hitta ykkur.
Knús og kremja
Sirrý