My Opera is closing 3rd of March

Elísabet skrifar

um lífið og tilveruna

Subscribe to RSS feed

Bjartur dagur

Þessi dagur er búin að vera mjög bjartur og er enn , ég þarf að halda mig inni og er það ekki auðvelt í svona góðu verði , ekki veit ég hvort það er kalt ,enda alltaf hægt að klæða kulda af sér. Dagurinn hefur verið rólegur hjá mér , verið svolítið á msn - inu og hringdi svo í vinkonu mína sem býr út í Portúgal ,já það er gott að vera í Og einum og geta valið sér vin í útlöndum. Ég bíð eftir því að þeir setji Nýja Sjálandi í vini þá get ég hringt í fjölskylduna mína þar. í kvöld ætla ég að horfa á Ungfrú Reykjavík á Skjá einum ,ég hef reyndar ekkert fylgst með stelpunum ,ég segi stelpunum þar sem mér hefur fundist þetta vera hálfgerð börn undan farin ár , en þetta kemur í ljós um miðnætti.