My Opera is closing 3rd of March

Elísabet skrifar

um lífið og tilveruna

Subscribe to RSS feed

24.04.1983

Ég vaknaði kl.07. þvoði mér um hárið með hjálp mömmu ,því ég var með sítt og krullað hár. Fékk mér að borða. Mamma var nú ansi syfjuð enda hafði hún ekkert sofið um nóttina. Þegar ég var búin að klæða mig í sérsaumaða kjólinn sem Gerða frænka , systir hennar mömmu saumaði greiddi mamma mér. Ég er mjög stolt af kjólnum mínum, hann var offwhite með mjöum grænum og sægrænum röndum til skiptis. Jakkinn var of við var offwhite. Skórnir voru grænir lakkskór. Binna amma sótti okkur og fór með okkur í kirkjuna , nánustu ættingjar voru hræddir um að ég myndi myssa jafnvægið í kirkjunni þegar ég labbaði inn kirkjugólfið og upp tröppurnar í Bústaðakirkju en sem betur fer gekk allt að óskum. Mér er sagt að ég hafi verið eina i hópnum sem brosti þegar við komum inn kirkjugólfið.
Eftir athöfnina keyrði Binna amma okkur í ljósmyndatökuna , hún tókst ljómandi vel, Ljósmyndarinn vildi hafa mömmu með á einni eða tveim myndum en hún var nú ekki alveg tilbúin í það en auðvitað lét hún undan.
Veislan var haldin heima hjá Gerðu systir hennar mömmu, hún lánaði húsnæðið, þar sem við bjuggum í svo lítilli íbúð. Eins og þið hafið lesið þá var ég ekkert að fylgja tískunni og vera í bleiku eins og allar hinar stelpurnar. Eins var neð gestalista, ég bauð bara þeim nánustu sem þýddi að ég þekkti alla í Fermingunni. Það voru eingin börn, nema frændi minn sem varð 7 ára á arinu en hann er sonur Gerðu , svo æskuvinur minn sem er jafngamall mér hann Finni. Í veisluna mættu um 30 manns sem mér þykir mikið þar sem megnið af mínu skyldfólki er úti á landi. Það voru margir ansi þreyttir í veislunni þar sem Alþynigis kosnigar voru daginn áður og fólk hafði auðvitað vakað kosninanóttina.
Þennan dag var alveg sérlega gott veður sól og hiti, það er annað en í dag. Þegar búið var að drekka kaffið fór ég að opna pakkana, en ég safnaði þeim saman og opnaði þá alla í einu sem var ekki algengt á þeim tíma skilst mér. Ég fékk mjög góðar gjafir og sumar á ég enn þann dag í dag.
Þetta var mjög góður dagur.