My Opera is closing 3rd of March

Elísabet skrifar

um lífið og tilveruna

Subscribe to RSS feed

Saga um vankunnáttu

Ég hef lítið bloggað undanfarið og er það vegna þess að undanfrnar vikur eða svei mér mánuði hef ég mikið verið í rannsóknum og er það ekki skemmtilegt efni að blogga um en fyrir svona ca. hálfum mán. fór ég til læknis upp á Landspítala við Hringbraut sem er ekki í frásögu færandi nema að hún vildi senda mig í Tölvusneiðmynd og það var eins og himinn og jörð væru að farast þegar ég kom með beiðnina upp á röntgen . Ég er nefnilega með Bráða latex ofnæmi sem á ekki að vera neitt mál upp á spítala en konan í afgreiðslununni var ekki alveg að ná því. Þannig er að ég þarf að fá stera sprautu 1. klst fyrir rannsókn en hún var alltaf að tuða hvar færðu efnið ( sterana) ég sagði hér, þá sagð hún , nei þú hlítur að vera með þá á þér , ég sagði , nei ég er ekki gangandi apótek, nei læknirinn hlýtur að hafa látið þig hafa þá ,ég sagði þá aftur að ég ætti að fá efnið hér hjá þeim og þá sagði hún og hver á að sprauta þig , ég sagði . þú hlýtur að vita það ,ekkki veit ég það ,ég er bara að koma hingað í rannsókn. Var orðin pínu pirruð . þetta hefur alldrei verið svona mikið mál. Við sættumst á að hún talaði við röntgenlækninn og hann ákveði þetta og hún léti mig svo vita. Fyrir mér var þetta ekkert mál. Það hlaut einhver að vera þarna fyrir innan sem kann að sprauta ,annars er þetta illa mentað fólk og ekki fært um starfið sem það er í. Ég fékk tíma viku seinna.
Á Þessari viku fékk ég nokkur símtöl frá geilsafræðingum og voru þeir þá að fræðast um Latex ofnæimið , þetta var þá vankunnátta sem þetta snérist um. Ég er svo heppin að eiga frænku sem er hjúkrunarfræðingur á Bráðamóttökunnivið Hringbraut og hringdi ég í hana og sagði henni söguna og sagði hún að það væri ekkert mál að sprauta mig og auðvita fengi ég efnið hjá þeim.
Þegar hún var búin að sprauta mig og ég búin að bíða í Latex fríu umhverfi í 1 klst. gekk þetta mjög vel en tók bara 5 mín. Þess má geta að geislafræðingarnir hringdu í frænku mína til að fræðast fyrir rannsóknina þegar þau fréttu að hún ætlaði að sprauta mig.
Þetta var þvílíkt ævintýri