Monday, November 14, 2005 4:28:18 PM
Núna liggur síðan mín
www.lognid.isniðri, en það er auðvitað vegna þess að Vefhotel.com gat ekki staðið sig almennilega með vefhýsinguna. Ég gerði víst þau stóru mistök á sýnum tíma að sækja um frítt lén þar og því var Vefhotel.com eigandi lénsins lognid.is
Ég reyndar sendi vefhotel.com póst í sumar eða vor um að ég vildi kaupa af honum lénið (mitt) og flytja vefhýsinguna annað þar sem vefhotel.com gat ekki staðið við yfirlýsingar á síðunni sinni um 100% uppiverutíma vefja sem geymdir eru hjá þeim. Oft var pósturinn minn ekki að virka og síðan lá á tímabili niðri 2-5 daga vikunnar og svo var kerfið víst það slakt að Argentínskir hakkarar fóru inn á kerfið hjá vefhotel.com og skemmdu margar síður, m.a. mína og eitthvers sveitarfélags á Íslandi. Vefhotel lofaði að vefsíðurnar yrðu lagaðar, en ég var víst að gera það sjálfur. Þess vegna tel ég að þessi blessaði Haukur Vagnsson, sem er með vefhotel.com, sé bara ómerkilegur ligamörður.
kveðja
Lognið Stormsson