Monday, December 14, 2009 6:20:39 PM
Sit upp í sófa og nenni ekki að elda. Urg.
Klukkan er 18:18 og hérna eru tveir ungir drengir sem þyrftu að fá kvöldmat.. Æ, ætli maður standi ekki upp og setji kartöflur í pott og hjálpi tilbúna plokkfisknum inn í ofninn. Ohhh, það er svo erfitt að vera húsmóðir!
Ákvað að smella hérna inn einum pósti þar sem ég var að rekast á þetta gamla blogg mitt. Gaman að þessu:D
Friday, December 7, 2007 10:33:16 AM

Átti sérdeilis yndislegan afmælisdag í gær. Reyndar fyrir utan einar slæmar fréttir en meira um þau leiðindi miklu síðar..
Vaknaði í fáránlega góðu skapi sem er mjög ólíkt mér því oftast er ég svefnpurka og alls enginn morgunhani. Þegar ég sá veðrið komst ég í ennþá betra skap og sveif svo í gegnum daginn á rósrauðu skýi, allt mjög nice. Elska afmælisdaginn minn, það er eitthvað svo mikil stemmning að eiga afmæli. Þeir sem eru manni kærastir hringja og/eða senda sms og maður er eitthvað svo vinsæll. Svo er það reyndar búið næsta dag, en hey, gaman meðan það endist..
Bauð stelpunum í afmæliskaffiboð í gærkvöldi og það var bara mjög nice. Um morguninn var ég í smákökugerð í Tónabæ og um daginn í vinnunni. Lítið álag á mér þann daginn sem var mjög fínt. Já, svo fór ég í mæðraskoðun og fékk að hlusta á hjartsláttinn í krakkanum.
All around a very nice day:)
Saturday, December 1, 2007 5:45:59 PM
Mér fannst athyglisverður þátturinn Tekinn með Audda í gær. Svava í 17 var heldur betur tekin þegar hún var að borða í Laugum með kæróinum sínum og einkaþjálfara. Verð samt að segja að mér fannst mjög mikið til í þessu gabbi.
Gabbið gekk út á það að kolbrjáluð móðir var að bögga Svövu þar sem hún átti unglingsdætur sem vilja vera í nýjustu tísku. Umrædd móðir lifir á kennaralaunum og snerist gabbið út á að hún var brjáluð vegna þess að það tekur hana u.þ.b. klukkutíma að eyða mánaðarlaununum sínum í þrjár gallabuxur (sem kosta 20.000 kall hver) í 17 búðinni sem Svava rekur.
Þó þetta hafi verið hrekkur þá er ég samt alveg sammála mömmunni. Manni hreinlega blöskrar þegar maður lítur á verðmiðann t.d. á gallabuxum í þessum búðum og stundum þegar ég hef verið að borga ógeðslega mikinn pening fyrir gallabuxur þá hefur mér liðið eins og það sé verið að gera mann að fífli. Eins og mamman sagði í hrekknum í gær þá breytast þessar gallabuxur líka iðulega eftir fyrsta þvott.
Helvítis.
Mér fannst Svava koma frekar illa út úr þessu. Þó að það hafi verið dónalegt að ónáða hana meðan hún var að borða þá er verðlagningin í búðunum hennar fáránleg. Og unglingsstúlkur vilja það sem aðrar unglingsstúlkur eru í og það eru rándýr föt í tískuverslunum. Þetta setur pressu á foreldra.
Shame on thee, shopowners!
Friday, November 30, 2007 12:48:17 PM
Er veik heima. Einhvern veginn alveg búin á því. Komst bara ekki fram úr í morgun og er með alls konar kvilla eins og hausverk og vanlíðan. Er samt aðallega bara alveg ofboðslega rosalega þreytt. Some R&R er því í gangi hjá mér núna.
Annars finn ég hjá mér einlæga þörf fyrir að komast eitthvert út á land, helst upp á eitthvert fjall (í þessari hugsýn minni er veður a non-issue) og hreinlega hugleiða og ef til vill óma smá (ohm) eins og munkarnir í Tíbet gera. Já, eða kannski frekar hlusta á þá ohm-a í i-podinum mínum. Hef látið glepjast af einhvers konar kaupæði undanfarið. Er hreinlega búin að vera á útopnu með veskið í annarri og kortin í hinni. Vá, meika ekki meira af því. Ást er ekki hlutir, Svava.
Hef því ákveðið að upphefja andleg gildi mín og setja þau í forgang og gjörsamlega drepa áðurrætt kaupæði. Lenti í smá kaupæðis-manísku-stresskasti í hádegishléinu mínu á miðvikudaginn í Ikea (hvað er að okkur Íslendingum með þetta kaupæði okkar? - þetta var í hádeginu á miðvikudegi og það var bara brjálað að gera á kössunum) sem ég held að hafi bara skilað mér í rúmið - veikri. Ætla því að hvíla veskið um sinn. Það þarf ekki allt að gerast í einu!
Later..
Thursday, November 29, 2007 11:20:08 AM
Ég er komin með splunkunýjan hornleðursófa í stofuna heima. Me happy:)
Tuesday, November 27, 2007 9:57:08 AM

Við stelpurnar fórum út að borða á Kringlukrána á sunnudagskvöldið. Það var virkilega notalegt að borða þarna. Mjög góður matur (fékk mér
marina sjávarréttapizzuna - æði). Staðurinn hefur heldur betur bætt ímynd sína. Mér hafði alltaf fundist einhvern veginn að þetta væri svona fylleríis-veiðistaður fyrir eldra fólk um fimmtugt og yfir um helgar sem svo ylti þarna út varla-standandi-í-lappirnar ástandi. En nei, nei þetta er bara sérdeilis næs veitingastaður.
Við Siggú fórum svo á myndina Foreldrar í Kringlubíó. Virkilega góð mynd þó mér hafi fundist persóna aðalleikkonunnar (sem vann Edduna fyrir bestu leikkonuna vegna leiksins í myndinni að mér skilst) dáldið ótrúverðug. Gaman að leikurunum úr Börnum var fléttað þarna inn í. Við Siggú lifðum okkur svo inn í myndina að við vorum í hálfgerðu rusli yfir aðstæðum persónanna í myndinni.. En alltaf gaman þegar maður lifir sig inn í myndir. Það þýðir að þær séu góðar:-)
Monday, November 26, 2007 9:12:54 AM
Þetta er meðal frétta á mbl.is í dag:
Erlent | AFP | 26.11.2007 | 08:28
Drápu 11 ættingja írasks blaðamanns
Vopnaðir menn drápu í gær 11 ættingja írasks blaðamanns, sem vinnur við fréttavef. Blaðamaðurinn, sem heitir Dia al-Kawaaz, sagði við AFP í morgun, að fjórir vopnaðir menn hefðu ráðist inn í hús fjölskyldu hans í Bagdad og myrt tvær systur hans, eiginmenn þeirra og sjö börn á aldrinum 5-10 ára.
Nú eiga íslenskir blaðamenn það stundum til að vera ásakandi og árásargjarnir í skrifum sínum (t.d. DV). Ég tala nú ekki um á netmiðlum. Við ættum kannski að vera þakklát fyrir þann gífurlega mun sem er á Íslandi og Íran?!
Shit. Ég er í rusli. Hvernig er hægt að myrða saklaust fólk og halló! BÖRN.
OMG.
Saturday, November 24, 2007 11:46:36 AM
Free as the bird
Í fyrsta skiptið í fimm ár (og nú er ég bara að tala um háskólaárin ekki menntaskólaárin) er ég ekki í e-m heavy próflestri:)
I'm so happy I could just burst!
Þvílíkt frelsi. Ekkert stress! Hljóðin í blokkinni og frá fólkinu fyrir ofan mig pirra mig ekki baun í bala. Ég bara hlæ af því ég þarf ekki að einbeita mér að læra milljón og einn hlut utan af.
So me am so happy. Life is beautiful and I´m enjoying every second of my stress free life.
Aaaahhhahaha:) That's me laughing for no apperent reason at all.
Sunday, November 18, 2007 10:48:39 AM

Á mbl.is er þetta stjörnuspáin mín í dag (er bogamaður):
Margir möguleikar halda heimi þínum ferskum og eftirsóknarverðum. Þér tekst að framkvæma mikið fyrstu tvo tímana, en svo kemur bakslag.HVAÐA BAKSLAG?????!!!!
Hvaða stjörnuspekingur setur svona lagað í stjörnuspá fyrir fólk? Doesn't he know about gullable people like me?
1 2 3 4 5 Next »