Sucy in the sky....

Subscribe to RSS feed

Kreppulíf!

jæja... Kreppulífið er bara að leika vel við mig!

Maður er allavegana að spara en ekki að spreða! Ef það er einhverntíman tími til að læra loksins að spara þá er það núna... ! Sem er bara ágætt! idea

En vildi bara koma með smá pistil og segja ykkur að ég, mamma og Björk fórum í heimsókn til Ömmu lang á Hvolsvelli og kíktum einnig á Tryggva frænda. Loksins hitti ég hann eftir langa bið en ég var búin að draga það allt of lengi að hitta hann og ömmu. Og ég ætla sko að fara aftur á næstunni. happy

Gerði lítið sem ekkert um helgina nema að hafa það mega nice. Á föstudaginn lá ég heima og sofnaði fyrir allar aldir.... laugardagurinn fór svo í heimsókn austur, kom heim og setti mynd í tækið og át gjörsamlega á mig gat af sælgæti! Ég er þannig... ef það er til nammi þá verð ég að klára það! Þá meina ég ALLT! awww

En ég fór líka og tók góða æfingu á sunnudagsmorgun og er enn að drepast úr strengjum bomb

En jæja, nóg í bili af useless information! wizard

Læt fylgja með myndir ef heimsókninni austur.

hafið það gott elskunar

Svalan

Betra er seint en aldrei!

Það er orðið tiltölulega langt síðan ég bloggaði síðast (eða við réttara sagt)! Fann einhverja löngun í dag til þess að koma einhverju frá mér og ákvað að blogga smá. Veit að famelían og fleiri eru duglegir að kíkja á síðuna við og við og hvernig væri þá að ég myndi standa mig.worried

Tímar vandamála og peninga er farinn af stað núna og er um að gera að standa saman og að fólk haldi sínu venjulega lífi áfram óspart. Kannski verður oftar spagettí og slátur í matinn á næstunni en það er eitthvað sem við getum alveg sætt okkur við. Minna af óþarfa innkaupum sem enda síðan í ruslinu eftir nokkrar vikur eins og tilboð og annað þar sem fólk heldur að þau séu að gera gríðarlega góð kaup.
Ég lýt á þetta sem áskorun á mig og okkur öll. Núna kannski lagast græðgin í Íslendingum í að eiga það flottasta hverju sinni og fólk fer kannski að hugsa um hlutina og nýta þá til lengri tíma. Henda minna og kaupa minna. Þá á þetta ekki að vera neitt vandamál. up Og að skilja bílinn eftir heima er líka þessi góði kostur sem við ættum að þekkja öll og kemur sér vel fyrir bæði okkur (peningalega - og heilsulega séð) og umhverfið sem er víst á hraðri niðurleið undanfarin ár eftir mikla mengun. yuck
Ég er ekki að standa mig nógu vel sjálf ef við förum að tala um umhverfisvæn atriði sem Íslendingar ættu að taka til sín en það gæti komið með tímanum. rolleyes

En hvernig væri að tala um einhvað annað en kreppu? Við ættum að vera búin að fá okkur fullsödd af því tali í bæði sjónvarpi og útvarpi faint

Nú er um að gera að vinna sem mest og vera ánægður að maður sé yfir höfuð MEÐ vinnu! awww
Ég ætlaði nú að fara til útlanda með Kidda mínum um jólin en ég hugsa að það sé dottið upp fyrir sig til betri tíma... kannski að maður flytji út í skóla eða einhvað...það er frekar sniðugt á meðan ástandið er svona... bara að mennta sig eða gera einhvað af viti. Safna peningum en ekki eyða þeim.

En tölum aðeins um mig... happy
Ég er farin að vinna í Lyf og Heilsu Kringlunni og er búin að gera síðan 1.júní sl. og líkar svona rosalega vel. Kláraði auðvitað stúdentin í maí og ætla að taka mér smá skólapásu áður en ég fer í meira nám. Stór ástæða þess er sú að mig langar að læra svo mikið að ég veit ekki hvar ég á að byrja!
Langar út að læra, samt ekki... og svo framv. right

Sumarið var ekkert nema skemmtilegt og veturinn að taka við núna og býst ég við að hann verði bara mest kósý kreppu vetur sem við munum upplifa til þessa! coffee

Knús á ykkur öll þangað til næst er ég verð í bloggstuði !

Svalan

eitt próf búið.... one to go!

Jæja... þá er fyrsta prófið búið hjá mér og aðeins eitt eftir (sem er 14.maí) .
Lítið eftir af framhaldsskóla hjá mér takk fyrir ! smile En það verður smá veisla síðan 23 maí þegar útskriftardagurinn er og ætla þeir nánustu að láta sjá sig þeir sem geta.
Mig hlakkar ekkert SMÁ til að tilla húfunni á kollinn og getað svo blastað með Lottu 16 OG 17 maí. En 17 maí þá er Eric Pryds á Broadway fyrir þá sem ekki vita! smile Allir að mæta, þetta verður fyrir bæði 16-19 ára og síðan um nóttina verður 20 og uppúr! Hann er kreisí DJ og þið viljið EKKI missa af honum, get lofað ykkur því wink

En ég ætla að fara að knúsa Kidda og Brúnó í góða veðrinu!

Lotta gangi þér vel í prófunum þeim sem eftir eru! smile Break a leg!

Knúsar

Svala

Ég er búin að dimmitera og við vorum KÆRLEIKSBIRNIR!!! smile
Voðalega krúttlegt wink
Getið séð fleiri myndir udir photos!

Þrauki þrauk!!

Hjartanlega sammála þér svala mín það léttir yfir manni annanhvern dag þegar það er sól stundum bara í 2 tíma hehe klikkaða veðrið okkar á íslandi!!

IF YOU DONT LIKE THE WETHER JUST WAIT A MINUTE,IT WILL CHANGE!!lol

Aðeins vika er eftir af skólanum svo nokkur próf svo maður þarf að þrauka endasprettinn þar sem kennarar eru að rukka inn verkefni og ritgerðir .. og talandi um verkefni ég þarf að skila einu slíku á video þar sem ég þarf að segja frá sjálfum mér stafa alla fjölskyldu aldur og búsetu segja sögu lýsa fólki segja frá heilum degi OFL ALLT Á TÁKNMÁLI ég kann að stafa nafnið mitt thats it hehe svo ég ætla reyna leika fimum fingrum nuna á eftir knockout

Margir hafa hvartað undan sambandsleysi og svar mitt er ég tala við ykkur eftir próf þá skal ég hringja á hverjum degi ,, er búin að vera voðalega einhverf í náminu svo SORRY dúfurnar minar og sérstaklega svala whistle
en ég tek undir það að það verður fjör eftir próf þá ætlar lotta að taka bjór í hönd og skála fyrir sjálfum sér og vinkonu sinni og klappa duglega í bakið á henni svölu minni sem er bara búinn með námið .. ýkt dugleg love

svo þarf maður að taka aðeins á ræktinni þar sem Lottan er orðin jafnt og 10 svölur nei djók 9 faint

Famlög og Væmnisheit

KARLOTTA bye

Update!

Nú er sumarið aðeins handan við hornið og ég er bara komin í svolítið sumarskap þegar það er svona sól í borginni. Léttir yfir manni bara ! smile

En það er lokaspretturinn hjá mér í skólanum núna, lokaverkefni, próf, ritgerðir og ég veit ekki hvað og hvað. Auðvitað kemur þetta með skelli á sama tíma, ég veit ég er ekki ein um það að vera að drukkna í verkefnum núna! wink Dimmision 25.apríl og síðan lokapróf og ég er svo heppin að fara bara í einungis tvö angel af 8 áföngum takk fyrir! Útskriftardagurinn er síðan 23.maí og þá verður húfan sett upp og lyft sér eitthvað hressilega upp! Getið bókað það! cheers
En áður en það gerist þá er sjálfur Eric Pryds að spila á Broadway!!! Þá verð ég líka búin í prófum allavega og bara að bíða eftir húfnni góðu! Megið búast líka við mér þá að tralla með lalla! drunk

Ég mun að minnsta kosti ekki leggjast í dvala þangað til... eða allavega ekki lengi.

See you around!

Knúsar og kossar

Svala

12. mars og 13.mars

Nú erum við orðnar 21 árs pæjur ! wink

12. mars og 13.mars

Nú erum við orðnar 21 árs pæjur ! wink

12. mars og 13.mars

Nú erum við orðnar 21 árs pæjur ! wink

12. mars og 13.mars

Nú erum við orðnar 21 árs pæjur ! wink

FLEX MUSIC fagnar þriggja ára afmæli á Nasa 19.mars!

D. Ramirez er stolt útgáfufyrirtækisins Ministry Of Sound. Hann heitir réttu nafni Dean Marriott og kemur frá Bretlandi. Fáir tónlistarmenn hafa náð eins góðum árangri í heimi skítugs elektró tech-house tónlistar eins og D. Ramirez. Er hann því einn af fáu tónlistarmönnum sem hafa náð að standast tímanna rás, enda búinn að vera lengi í bransanum. Dean hefur nýlega komið fram með mörgum af vinsælustu plötusnúðum veraldar um þessar mundir og virðist ekkert lát ætla vera á vinsældum hans og er það staðreynd.

Hið virta tímarit DJ Magazine ákvað að velja D. Ramirez sem besta tónlistarmann Bretlands í danstónlist árið 2007. Hann hlaut hin virtu Ivor Novello verðlaun fyrir endurhljóðblöndun á laginu Yeah Yeah með Bodyrox sem flest allir plötusnúðar heims voru fljótir að grípa en það lag varð í öðru sæti á Breska vinsældarlistanum og því fyrsta á Spænska vinsældarlistanum. Þess má geta að útgáfa þess lags rataði í 11. sæti árslista Party Zone á Rás 2 fyrir árið 2006 og á topp 10 árslista klúbbaþáttarins Flex á Xinu 9.77.

D. Ramirez fylgir ekki vinsældarlistum og vinnur sína tónlist út frá því og er ekki þekktur fyrir að fjöldaframleiða froðupopp. Hann hefur nýlokið útgáfu á tveimur plötum. Önnur platan ber heitið Rewind - Fast Forward sem er gefin út á Slave Recordings sem er hans eigið útgáfufyrirtæki. Meðal tónlistarmanna sem koma fram á þeirri plötu eru Ferry Corsten, Roger Sanchez, Plump DJs og Peace Division. Hin platan er sett saman af D. Ramirez sem ber heitið Session 13 og er ein virtasta sería Ministry Of Sound sem hlotið hefur miklar vinsældir um heim allan og er Ísland engin undantekning.

Umsagnir tónlistartímarita um D. Ramirez:
"D. Ramirez hefur lagt grunnin að elektró tech-house tónlist í heiminum í dag og hefur betri stöðu en allar þær hermikrákur sem fylgt hafa í kjölfarið. Það sem þessi plötusnúður veit ekki hvernig skal ganga frá klúbbum í dag er ekki þess virði að vita." - Mixmag

"Ég hef ekki enþá kynnst neinum tónlistarmanni sem breytti yfirborði danstónlistar í Bretlandi eins mikið og D. Ramirez. Og mig grunar að ég þurfi að bíða í langan tíma í viðbót." - Dave Jenkins, IDJ Magazine.

D. Ramirez kemur fram á NASA við Austurvöll þar sem fólki finnst gaman að dansa og hreyfa sig. Ásamt honum munu þeir Ghozt (Hefur spilað með Deep Dish, Desyn Masiello og Deadmau5 t.d.) og Eyvi (Hefur spilað með Sander Kleinenberg, Tiesto og Dirty South t.d.) sjá til þess að kvöldið verði vel sveitt og alveg í anda þeirrar klúbbageðveiki sem Flex Music stendur fyrir. Þetta á sér stund á miðvikudeginum fyrir Skírdag þann 19. mars næstkomandi.

Miðasala fer fram í Mohawks og á midi.is og á afgreiðslustöðum midi.is og kostar aðeins krónur 2.500 í forsölu en 3.000 við hurð.

Þú getur unnið þér inn boðsmiða með að fylgjast vel með klúbbaþættinum Flex á Xinu 97.7 öll laugardagskvöld frá 22 til 24.

http://www.flex.is